Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Síða 78
78
haugr er við kenndr fyri sunnan Agðanes, fór ór Þrándheimi til Is-
lands ok nam Hvalfjarðarströnd ena nyrðri frá Bláskeggsá til
Laxár ok út til lœkjar, þess er fellr út frá Saurbœ ok bjó á
Ferstiklu. Hann átti Gunnvöru, dóttur Hróðgeirs ens spaka. Þeira börn
váru þau Þórhalli, faðir Kolgríms, föður Steins, föður Kvists, föður
Kala ')• Bergþóra var dóttir Kolgríms ens gamla, er átti Refr í
Brynjudak.
Enn segir í Landnámabók 23. kap.: »Finnr enn auðgi, sun Hall-
dórs Högnasonar fór ór Stafangri til íslands. Hann átti Þórvöru, dótt-
ur Þórbjarnar frá Mosfelli, Hraðasonar. Hann nam land fyri sunn-
an Laxá til Kalmansár. Hann bjó at1 2) Miðfelli. Hans sun var
Þórgeirr, faðir Hólmsteins3), föður Þórunnar, móður Guðrúnar, móður
Sæmundar, föður Brands byskups. Skeggi í Skógum var sun Þórunn-
ar, faðir Styrmis ok Bolla í Skógum«.
Svo segir í Landnámabók 25. kap.: »Hafnar-Ormr fór ór Stafangri
til íslands ok nam öll lönd um Melahverfi út til Aurriðaár3 5) ok
Laxár ok inn tii Andakílsár ok bjó í Höfn. Hans sun var Þór-
geirr höggvinkinni, faðir Þórunnar, móður Þórunnar, móður Jósteins,
föður Sigurðar, föður Bjarnheðins. Þórgeirr höggvinkinni var hirðmaðr
Hákonar konungs Aðalsteinsfóstra. Hann fekk á Fitjum kinnar sár ok
orð gótt.
Brœðr tveir bjoggu í landnámi þeira Finns ok Orms: Hróðgeirr
enn spaki í Saurbœ en Oddgeirr at Leirá. En þeir Finnr ok Ormr6}
1) Trúlegt er, að Kalastaðir, næsti bær fyrir utan Saurbæ, sé við Kala
þennan kenndir. Styður og þar að, að nöfn er enda á -staðir eru ekki elzt, en
Kalastaðir hafa síð byggzt, sé tilgátan rétt.
2) Hauksbók hefir »í«, sem er skakkt. Réttast er víst »undir« eins og Harð-
arsaga segir í 27. kap. (»undan« svarar til »undir»). Harðarsaga hefir þó optast
»í« (eða »ór«, er til þess svarar). Þó hefi eg eigi rannsakað þetta til auðinnar
hlítar eptir staðháttum. En þörf væri á, að þetta gæti leiðrétzt um öll bæjanöfn,
því að það hefir víða ruglazt.
3) Hér hefir Sturlubók »Jósteins«.
4) Þetta er bersýnilega skakkt. Vötn tvö eru austan Akrafjalls. Heitir hið
eystra Hólmavatn eptir hólmi nokkurum, er þar er. Suður úr því fellur Kalmansá
milli Kataness og Kalastaðakots. Hið vestra vatnið heitir Eiðisvatn. Útnorður úr
því fellur Urriðaá út í Grunnafjörð. Skammt er á milli vatnanna, og eru því
þarna glögg landnámaskil. En alllangt er á milli mynnis Urriðaár og mynnis
Laxár, Lambhaganes allt. Ef Hafnar-Ormur hefir numið til Laxár, kemst það
landnám engan veg til Urriðaár, sem fellur allmiklu sunnar, svo sem minnzt
var á fyrr. »Aurriðaár ok« á þvi að falla burt á þessum stað. Aptur á móti hefði
það gjarnan getað bætzt við i 23. kap. á undan »Kalmansár« og yrði þá
merkjalýsingin þar glöggvari.
5) Þeir voru báðir úr Stafangri og hafa ef til vill verið skyldir, sbr. nöfnin
á afkomöndum þeirra. Þetta vita víst ættfræðingar.