Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Síða 83
83
þess, er þar byggði fyrstur. Segir Harðar saga, að hann væri mikill
bóndi1), og telur hann með héraðshöfðingjum2). Má vera, að hann
hafi orðið eptir hjá frænku sinni á Ferstiklu og setzt síðan að í landi
föðurbróður sins, er hann hefir þá fengið af Finni eða öllu heldur
erfingjum hans.
En hvað sem því líður, þá er hann manna líklegastur til að hafa
valið bæ sínum rangnefnið af ræktarsemi við frænda sinn. Bendir og
til þess, er Harðar saga talar um melana við Saurbæ, þá er Hólm-
verjar rændu þar3). En í Gufugerði hefir Þórsteinn öxnabroddur þótzt
óhultari fyrir víkingunum úr Geirshólma en í kvosinni í Stekkjarflóa.
Föst þjóðsögn er um, að Saurbær hafi staðið í Gufugerði, unz
hann brann, hvort sem það var í tíð Hallgríms Péturssonar eða ekki.
Þar eru nú óglöggvar tóptir. Mjög er þar fagurt bæjarstæði. Sér þar
yztu fjöllin á Reykjanesi í fjarðarmynninu sem bláa' hnúka, enn
fremur hina fögru hyrnu Glámunnar til landnorðurs. Gufugerði stend-
ur mjög hátt, og er þar því afar veðurnæmt. Þar gat því rokið fljótt
úr rústum, svo að nú sjáist kannske ekki örmul eptir. Eg sé fátt til
fyrirstöðu því, að þjóðsögnin sé rétt. Vottar þar enn fyrir ævaforn-
um túngarði að sunnan og vestan, enda mun þar minnst blásið.
Frekara skal hér eigi farið út í sögu Saurbæjar. Ef til vill vinnst
mér síðar tími til að kanna hana og semja eptir föngum.
III.
Skipta má Saurbæjarlandi í tvennt til glöggvunar við skýring ör-
nefna. Sýsluvegur liggur um landið mitt í austur og vestur sunnan við
háls, þann er áður er á minnzt. Þar eru melgötur sléttar og harðar og
hefir ávallt verið frægur reiðvegur, enda snemmendis minnzt melanna
við Saurbæ4). Nú mun eg taka syðra hluta Saurbæjarlands og fara
réttsælis. Fyrst skal þó túnið tekið sér og sami háttur upp hafður.
1. Bærinn stendur nú norðan við mitt tún uppi á brekku
nokkurri eigi langt frá firðinum. Tröð er frá bænum norður úr tún-
inu. Austan að henni renna tvær rásir. Milli þeirra, rétt við tröðina
er harðbalalegt, og heitir þar Harðhaus. Hesthús tvö úr torfi standa
austan við syðri rásina. Austur af þeim er nokkurt stykki allstórt,
stórþýft og jarðfastir klettar á milli. Þar heitir Ferstikluvöllur suður
að því, er áður var heimreiðin af austri en er nú móvegur. Má vera,
að uppgjafaprestur hafi setzt að á Ferstiklu en haft ítak til slægna í
1) Harðar saga, 11. kap. 2) Harðar saga, 31. kap.
3) Harðar saga, 25. kap.
4) L. c.
3*