Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Qupperneq 84
84
Saurbæjartúninu upp í eptirlaun sín, svo sem títt var. Má vera, að nafnið
sé frá dögum séra Hallgríms Péturssonar, er lengi dvaldist hjá Eyólfi
syni sínum á Ferstiklu, eptir að hann lét af embætti, unz hann lézt þar.
Norðan við Ferstikluvöll er mýrkennt vestast, en austan við deig-
lendið eru hús tvö, norðar Stakahús, nú tvístætt fyrir lömb og tópt
norðan við rétt við túngarðinn. Hið syðra hét Einhylukofi. Þar er nú
tópt ein.
Tvístæðuhesthús voru á hólnum austan við áður áminnzt hest-
hús en vestan við Ferstikluvöll. Djúp dæld er þar vestur af. Kirkju-
garður er austan við bæinn, og var áður fallegur torfgarður um.
Norðan við hann voru ákaflega fallegir hólar. Þeim var jafnað við
jörðu með kirkjugarðinum, og fannst skyr og lítið eitt af ösku í þeim
fallegasta, er næstur var bænum. Milli kirkjugarðsins og hússins var
fyrr hestarétt, og heitir svo enn upp að svonefndum Hjallhól, sem er
norðan við bæinn. Þar norður af er lind, sem Steingrímur Thorsteins-
son yrkir um sem Hallgrímslind í túni, en það er skáldskapur hans. í
kirkjugarðinum er steinhella á gangveginum út í kirkjuna. Er hún
ílöng og markaður á kross með tveim skorum samsíða (tvöfaldur)
og stig niður úr. Þar hvílir séra Engilbert, er prestur var í Saurbæ.
Lækur fellur eptir miðjum vellinum, og er áður á minnzt. Út
undan honum austanhallt er bæjarkletturinn en vestanhallt Einbúi.
Upp af Einbúa vestan bæjarlækjar var kot og hét í Hjallagerði. Er
það nokkuð frá sjó. Tröð gengur vestur úr túninu frá fjósinu og
brunnhúsi, sem eru sunnan undir brekku, þeirri er bærinn stendur á
og fyrr var getið og þó vestanhallt, en austan við lækinn. Norðan
við tröðina er gerði og heitir Hjaltestedsflöt eptir séra Ólafi Hjalte-
sted, er var prestur í Saurbæ og lét slétta hana. Hafði hann til þess
vinnumann, er hét Brandur hinn sterki, og var það dagslátta hans.
Norðan við Hjaltestedsflöt er Þinghússtún. Man eg þar tóptir þing-
hússins norður undir túngarði.
2. Austast sunnan götu er Kringlumýri. Austan og sunnan við
hana fellur Saurbæjará. Kemur hún upp í Þúfufjalli í sundi einu
fyrir ofan Ferstiklu, rennur fyrst til norðurs, en beygir aptur suður
Leirdal og heitir þá Leirdalsá. Loks fellur hún til sævar fyrir austan
túnið í Saurbæ. Eru í henni fossar þrír, sá syðsli Skútafoss. Melkast
hátt er sunnan undir Kringlumýri hinum megin ár. Á melnum sunnan
við það er Hallgrímssteinn. Suður af melkastinu austan og sunnan
við Hallgrímsstein heitir Oddsmýri eptir lögun. Merkjasteinn er uppi
á melkastinu og þó sunnanvert en merkjasker út undan Oddsmýri
og heitir Snekkja. Fjarar allt af út í hana en fellur aldrei yfir hana.