Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Blaðsíða 101
Kirkjulækur, Ásmundarstaðir, Kirkjuból.
Bæjarnafnið Kirkjuból í Norðfirði virðist eigi ýkja fornt, þótt
býlið sé það. Nú (1920) stendur bærinn austan Kirkjubólsár og hefir
staðið svo lengi, sem sagnir ná til. Hinsvegar eru vestan árinnar og
nokkrar teigshæðir frá henni minjar af niðurlögðu býli og er það
nefnt Ásmundarstaðir. Vottar þar fyrir talsverðum rústum á þrem
stöðum, en bersýnilega mjög fornum; ennfremur túngarði allmiklum
og ferhyrntum reit allstórum, sem ætlað er að sé kirkjugarður forn.
Hann liggur fast út við túngarðslagið að norðan.
Tún virðist hafa verið þarna mjög stórt og er það nú sumpart
grasivaxið þýfi, en sumpart vaxið gisnu lyngi og grasi. Að öllu sam-
antöldu virðist túnstæði og bæjarstæði þarna bæði fegurra og betra en
þar sem byggðin er nú og gegnir furðu, að býlið skuli hafa verið
flutt á óvistlegri stað, þótt að vísu sé góður, frá þeim betri, en þjóð-
sagnir og staðhættir benda til þess að svo hafi gjört verið, nema
hér hafi í öndverðu verið 2 aðgreind býli á sömu jörð og hvort með
sínu nafni, en þá virðist betra býlið hafa lagst í eyði.
Bæjarnafnið Kirkjuból í Norðfirði hefi ég ekki getað fundið í þeim
IX bindum sem út eru komin með registri af íslensku fornbréfa-
safni. Ekki er þar heldur að finna neina Ásmundarstaði í Norðfirði.
En í Wilchins máldaga fyrir Skorrastaðarkirkju er talað um fiskveiði,
sem Sörli af Skuggahlíð hafi afhent staðnum, í Helluhyl til móts við
Kirklækinga. Nú er máldagabók Wilchins af flestum árfærð 1397
og er ítakíð því mjög fornt. En Kirkjulækjarnafnið er nú hvergi til í
Norðfirði og verður því að ætla, að býli sem á 13. og 14. öld hét
þessu nafni og átti land að Helluhyl hafi lagst í eyði, eða skift um nafn,
því að Kirklœkingar geta vart aðrir nefnst en búendur eða eigend-
ur Kirkjulœkjar. Eigi er óliklegt að svonefnd Kirkjubólsá, sem aðeins
er stór bæjarlækur, hafi áður haft nafnið Kirkjulœkur og býlið og
jörðin verið samnefnd. Bendingu um þetta ætti örnefnið Helluhylur
að geta gefið, ef vissa væri fyrir því, hvar hann var, en svo er ekki.
Þó er ekki ólíklegt að hér sé átt við hyl þann, sem nú er nefndur
Klapparhylur, niður frá Skuggahlíð. En núverandi landamerki Kirkju-
bóls eru fyrir vestan þann hyl og virðist það eða Kirkjulækur því ekki
hafa átt land að hylnum möts við Skuggahlíð, því að hylurinn stendst
á við Skálateigsland, sem liggur milli Skorrastaðar og Kirkjubóls,