Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Side 106
106
benda á mann, er verið gæti til aðstoðar við kortagerðina. Tók for-
maður og fundarmenn þeim undirtektum forsætisráðherra með þökkum.
Var síðan setið að samræðum og hressingum til miðnættis.
Nokkru eftir fund þennan benti formaður ríkisstjórninni á mag.
Steinþór Sigurðsson sem aðstoðarmann við kortagerðina og var
hann síðan ráðinn til þess starfa á sumrum.
II. Aðalfundur 1930.
Hann var haldinn á lestrarsal Þjóðskjalasafnsins miðvikudaginn
17. des. 1930, kl. 5 siðdegis.
Formaður minntist þessara félagsmanna, er látizt höfðu síðan
síðasti aðalfundur var haldinn:
Bjarni Jensson, læknir.
Bjarni Símonarson, prófastur.
Bogi Melsteð, mag. art.
Eiríkur Briem, prófessor.
Halldóra Björnsdóttir á Presthólum.
P. Hauberg, fv. umsjónarmaður kgl. myntasafnsins í Höfn.
Valdimar Briem, vígslubiskup.
A. Stampe-Feddersen, frú, Khöfn.
Karl v. Amira, prófessor, Múnchen.
Minntust fundarmenn hinna látnu og risu úr sætum sínum.
Því næst lagði formaður fram endurskoðaðan reikning félagsins
fyrir árið 1929. Hafði fastasjóður félagsins aukizt á árinu um 200 kr.
og var í árslok 3500,00 kr. Hins vegar hafði kostnaður við prentun
árbókarinnar, ásamt fylgiriti, orðið svo mikill, að tekjur ársins höfðu
eigi hrokkið til. Var félagið í árslokin í skuld að upphæð 465,20 kr.,
nær jafnstórri og kostnaðurinn hafði orðið við útgáfu fylgiritsins
(Bæjanöfn á Norðurlandi III., Eyjafjarðarsýsla). Vegna þessa hafði
stjórn félagsins eigi séð sér fært að gefa út sérstaka árbók fyrir
árið 1930, og kvað formaður því vera í ráði að sameina árbækurnar
fyrir 1930 og 1931. Skýrði formaður síðan frá ritgerðum, er borizt
höfðu til birtingar i árbókum félagsins.
Síðan urðu nokkrar umræður um framtíðarstarfsemi félagsins,
m. a. um samning og útgáfu registurs við árbækurnar síðan 1904,
svo og um fjárhag félagsins, einkum um hækkun ríkissjóðstyrksins
til þess.