Fylkir - 01.08.1916, Síða 7

Fylkir - 01.08.1916, Síða 7
FYLKIR. 7 fyrir 30—60 þúsund árum, nl. síðan á seinni ísöldinni; eins kunnu þeir að veiða dýr og smíða sér ýms vopn og verjur. Full 100—200 þúsund ár halda fornfræðingarnir séu liðin síðan fyrstu menn skyldu sig frá öpunum og öðrum dýrum og fóru sjálfir að sigra þau og heimsöflin með hugviti sínu og hagleik, og um leið að tryggja sér heill og frið með því að setja sér lög og reglur, sem þeir sjálfir og eftirkomandi kynslóðir skyldu hlýða, og einnig að gera sér grein fyrir því, hvaða lögum himininn og lífið hér á jörð væru bundin og hverju menn skyldu trúa. Á þessum óra-tíma, 100—200 þúsund árutn, það er 1000 til 2000 öldum, sem þó er ekki nema Vio til V20 af æfi jarð-lífsins, hefur mann- kynið næstum látlaust og sleitulaust strítt fyrir því að auka þekking sína, bæta ástand sitt og efnahag og um leið að leysa ráðgátur lífsins, hugarins og heimsins. Þeir sem furða sig á þessum háu tölum, sem virðast ekki samrýmanlegar við það tímatal, sem biblían og fróðir menn gefa stundum frá sköpun heimsins, geta, ef þeir vilja, fengið frekari upplýsingar um aldur mannkynsins og framsókn þess, í ýmsum alfræði- bókum og fornfræðum (Arkeológi) og mannfræðum eftir merka sér- fræðinga í þeim vísindagreinum, svo sem þá Meyer, Lenormant, Borda, Quatrefage og fleiri, er segja frá þeim menjum er fundist hafa og sem enn finnast í ýmsum löndum Norðurálfu, Asíu, Afríku og Ameríku, nl. menjar smíðisgripa, beinagrinda, dysja, rústa, húsa og borga, er sýna hvernig mannkynið hefur lifað á bernskuárum sínum, og hvernig ýmsir kynbálkar þess hafa starfað og strítt fyrir tilveru sinni og íramför, frá ómunatíð, þar til söguöldin byrjar. Ofurlítið yfirlit yfir skoðanir og ályktanir nokkurra hinna helztu sannleiksleitandi merkismanna heimsins, sem hafa látið eftir sig rit eða gert markverðar uppgötvanir, samið vitur lög eða stjórnað þjóðum og kynbálkum af miklum dugnaði og forsjá, held eg verði ekki alveg óvel- komið né algeriega óþarft fyrir þá, sem ekki hafa ráð né efni á að útvega sér rit og bækur merkustu vísindamanna og sagnfræðinga, svo sem þeirra Herders, Buckles, Bailly o. fl., né heldur tíma til að lesa þær.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.