Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 16

Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 16
16 FYLKIR. allur þorri fólksins, ef ekki »lærðu« mennirnir, höfðu á mér sem reikn- ingsfróðum manni og raffræðingi, færum að sýna og sanna, í það minsta reikningslega, og með tilvísunum til trúverðra bóka og verk- fræða rita og fréttablaða erlendis og hér á Akureyri, hvort rafur- magnið gœti keppt við kol og gas til hitunar hér á íslandi og sér- staklega hér á Akureyri, og svo hvar bœrinn gæti auðveldast fengið aflið, og hve mikið aflstöðin mundi kosta, ef allur útbúnaður vœri með vanaverði. Heldra fólk Akureyrar hélt sig fjærri fyrirlestrum mínum; hugsaði víst sem svo, að úr því þeir, Jón Þorláksson, landsverkfræðingur, og Guðmundur Hlíðdal, lærður rafurmagnsfræðingur, hefðu báðir ritað, (sá fyrnefndi í »Lögréttu« fyrir 2'/2 ári, G. Hlíðdal í Búnaðarritinu í fyrra) að rafmagnið mundi óvíða hér á landi geta fullnægt þörfum manna til upphitunar íveruhúsa, nefnilega, orðið nálægt því eins ó- dýrt og ofnkol, svo væri þýðingarlaust og gagnslaust að ræða um það framar,— herra Jón Rorláksson, landsverkfræðingur, »stórgáfaður maður,« sem tekið hafði hæstu einkunn í reikningi við Kaupmanna- hafnar háskólann, útlærður verkfræðingur (í öllum greinum?) og yfirverk- fræðingur hér á íslandi, með 3—4 þúsund króna laun um árið, mundi ekki hafa fleygt frá sér vit-litlum og villandi reikningum um svo lítið atriði sem það, hvort rafmagnið gæti keppt við kol og gas sem hita-lind eða ekki; og herra Guðmundur Hlíðdal, »útlærður« raffræðingu frá tekniska skólanum í Mitweiten, þar sem hann hafði fengið silfur- medalfu og ágætis einkunn í reikningi, og sem var yfirverkfræðingur við bygging rafstöðvarinnar á Seyðisfirði, og hefur síðan verið settur leiðbeinandi verkfræðingur í því, sem rafiðju snertir, undir umsjá yfirverkfræðings, Jóns Porlákssonar, maður mjög skýr og gætinn, mundi líka vita hvað hann segði þegar hann ritaði, að þrátt fyrir hina miklu þörf, sem væri á að hita hús hér á landi, þá mundi þó óviða verða unt að koma nægilegri rafmagnshitun á. Sbr. grein hans »Um rafveitu á sveitabæjum« í Búnaðarritinu 29. árg. 3. hefti, bls. 169. En verkamenn og vinnufólk þessa bæjar og bændurnir, sem þá

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.