Fylkir - 01.08.1916, Side 17

Fylkir - 01.08.1916, Side 17
FYLKIR. 17 voru hér utan úr sveitum á kaupfélags og sýslunefndarfundum, skemtu sér heldur við að sjá Tante Charles leikna í Goodtemplarahúsinu, eða þá við spil og víndrykkju eða við dansa og hljómleika, því að hvar- vetna hljómaði söngur, eða þeir gengu á »klúbbana« og ræddu þar um landsmál og sveitamál, eða reyndu málsnild sína á að segja sögur, sem þeir höfðu numið á fyrirlestrum, sem hér hafa verið haldnir, sög- ur úr »heimi andanna« jafntog þessum heimi, frá »tvíförum« og fylgjum og svipum og »fyrirbrigðum« og sálum á nærskyrtunni, endurfæðingu frelsarans og holdgun hugarins og annað þvílíkt, um sálir lifenda, sem brigðu sér úr ham sínum að vild, bara festar á örfínum þræði við hann, og færu svo langar leiðir og gerðu sig áþreifanlegar í hundrað mílna fjarlægð, gengu á vog og vægju 60 pund, en hamurinn léttist jafn- mikið, líkt og prófessor Haraldur Níelsson sagði hér í fyrra á fyrir- lestri, eða þeir reyndu mátt hugsana sinna með því að fá aðra á sitt mál, eða til að hugsa um sig, eða með því að senda kærum vini sínum hugskeyti, með því að einblína á hann eða horfa í áttina til hans og standa svo á öndinni og..............— Petta og því um líkt fanst öllum þorra Akureyrarbúa svo miklu uppbyggilegra' en að heyra nokkuð, sem eg kynni að segja um rafmagn og afnot þess hér á Ak- ureyri og norðan lands. Peir gátu ekki verið að setja sig inn í, hvað þær væru þessar hitaeiningar, né hve mikið eitt hestafl eða eitt kilówatt væri; það var of torskilið fyrir þá; en þeir vissu alt um eilífð- ina, endurfæðinguna, holdgun hugsananna, »lífið eftir dauðann* og upprisuna, og hvernig dauðir menn geta matast, — þó ekki dauðiflin. Yfirleitt tóku menn lítt í það, að neitt væri reynt á þessu ári til að undirbúa rafmagnshitun hér í bæ, og sumir voru svo hreinlyndir að segja mér, að menn héldu mig vera hálf-geggjaðan, að vera að tala um það nú, eftir að þeir Rorkell kennari Rorkelsson, Guðm. Hlíðdal og Jón Þorláksson hefðu ritað um málið og öllum komið saman um að upphitun íveruhúsa með rafmagni gæti "því aðeins komið til greina hér á landi, að rafaflið seldist »afar-ódýrt«, kostaði helzt ekki nema fyrn- ing af einhverri ekki mjög mikilli fjárupphæð, sbr. ritg. J. Þorl. í

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.