Fylkir - 01.08.1916, Síða 24
24
FYLKIR.
húsa með rafmagni geli orðið jafnódýr og hentug eins og upphituti
þeirra með kolum eða öðru eldsneyti, eru greinar eftir ofangreinda
fræðimenn, nl. ritgerð »Um notkun rafmagns* eftir R. Þorkelsson,
birt í 22. —23. tbl. íslendings f. á., greinin »Raf magn úr vatnsafli«,
eftir Jón Rorláksson landsverkfræðing, birt f Lögréttu 50—60 tbl. VIII.
árg. og 1. tbl. IX. árg., og grein Guðm. Hlíðdals, rafmagnfræðings,
»Um rafveitu á sveitabæum« í Búnaðarritinu 3. hefti 29. árg. (f. á.).
Eg byrja á ritgerð hr. Rorkels Porkelssonar, sem prentuð er sein-
ast þeirra, og sem er þeirra styzt og þó fult eins ákveðin og Ijós í
því, er frumatriði húsornunar snertir eins og hinar, og sem hefir
mikla þýðing sökum hins mikla álits, sem höf. hennar nýtur, bæði
sem fræðimaður og kennari.
Höf. segir, sjá 22. tbl. ísl., I. bls., 3. dálki:
vRafmagn til húshitunar. Ef rafmagn á að ryðja sjer til rúms
við húshitun, verður það að geta staðist samkepnina við ofnana. í
góðum ofnum kemur að notum við húshitun yfir 90°/o af hitagildi
eldsneytisins, en til þess að ofnarnir reynist svona vel þurfa þeir að
vera í góðu lagi og rétt með þá farið. Jeg geri ráð fyrir að jafnað-
lega komi aðeins 70% af hitagildi kolanna að notum, þegar þeim er
brent í ofnum. Kolin eru og öll eigi jafnhitamikil, en sennilega mun
vera óhætt að setja hitagildi þeirra 7500 hitaeiningar. Eftir því koma
5250 hitaeiningar út í herbergið þegar kolum er brent. Setjum nú að
meðal verðið sé að meðaltali 25 krónur smálestin, þá kostar 1 kiló-
gramm kola 2]/« eyri og fyrir 1 eyri fást 2100 hitaeiningar. Viljum
vér nú nota rafmagn til húshitunar þá fást 830 hitaeiningarBfyrir hverja
kilówatt stuud, og til að geta kept við kolahitun ætti rafmagnið
samkvæmt þessu að kosta 2/b eyris pr. kw.st. Vegna þæginda, sem
rafmagnshitun er samfara, geri jeg ráð fyrir að nóg (þannig) væri að
selja rafurmagnið á ]/2 eyri pr. kw. st. Sumir halda því þó fram, að
það ætti helzt eigi að kosta yfir ]/3 eyri, ef það eigi að standa sam-
kepnina við kolin.«
í 23. tbl. »ísl.« gerir sami höf lauslega áætlun, hvað rafmagns-