Fylkir - 01.08.1916, Qupperneq 25

Fylkir - 01.08.1916, Qupperneq 25
FYLKIR. 25 stöð nógu stór til að lýsa og hita Akureyrarkaupstað muni kosta, og hvort hún gæti borið sig, svo húshitun með rafurmagni yrði ekki dýrari enn vanaleg húshitun með kolum og sverði er, og kemst hann að þeirri niðurstöðu, að stöðin þyrfti að hafa í það minsta 2500 kw. afl (=3300 hestöfl) og mundi kosta alls í það minsta 800,000 krón- ur, svo að renturnar einar og fyrningar til afborgunar (10°/o) næmu árlega fult 80,000 krónum, og væru þó útgjöld til reksturs og við- gerða ekki hér með talin, en tekjurnar af stöðinni fyrir straum til iðju, Ijósa, eldunar og hitunar yrðu ekki yfir 57,400 krónur á hverju ári, svo að tekjuhallinn yrði fult 22,600 krónur, sem eigendur hennar hlytu að tapa árlega. Slíka stöð, með öllum leiðslu-tækjum, væri varla hugsandi, segir P. R., að fá bygða fyrir minna en 800,000 kr., og til vaxtagreiðsla og fyrningar þyrfti þá 80,000 kr. »TiI þess gengju allar ttkjurnar 57,400 kr. og hrykkju þó ekki til, og samt er eftir jafn nauðsynlag útgjöld, sem reksturskostnaður og viðgerðakostnaður. Slík stöð mundi þvf eigi geta borið sig, og það því fremur, að hvergi hér nálægt er unt að fá í einu lagi nógu mikið vatnsafl, heldur yrði að sækja aflið Iang- an veg og erfiðan, svo stofnkostnaðurinn færi vafalaust langt fram úr áðurgreindri upphæð.* Pessi ályktun Porkels kennara Porkelssonar veitti rafhitunar málinu talsverðan áverka, einkum af því bæjarstjóri, Páll Einarsson, var þvf Ifka mótfallinn. Svar mitt og andmæli gegn þessari ritgerð hr. Porkels kennara var prentað í blaðinu íslendingi 24. og 26. tbl. fyrra árs, og auk þess í bæklingnum, »Dugnaður Akureyrar og snilli*; þar og í »ísl.« mót- mælti eg því, að 1 kg. vanalegra ofnkola brendra í vanalegum stofu- ofnum gæfi til jafnaðar 5250 hitaeiningar til afnota, eða nálægt þvf svo mikinn hita; kvað vanalega stofuofna gefa aðeins 20 — 30°/o af hitamagni eldsneytisins sem í þeim væri brent, og beztu ofna með afbrigðum aðeins 50°/o; svo að úr einu kg. ofnkola fengjust til jafn- aðar aðeins 25—30% af hitamagni þeirra, þótt beztu ofntegundir væru

x

Fylkir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.