Fylkir - 01.08.1916, Síða 26
26
FYLKIR.
notaðar, sjá bls. 23 og 29 bækl. D. A. o. Snilli, en það gefur aðeins
1875 til 2500 hitaeiningar á hvert kola kg., og úr verri ofnum, sem
eru líka langt um algengari hér á Akureyri og í grendinni, fengist að-
eins uin 1500 til 2250 hitaeiningar fyrir hvert kg. kola sem brent er,
og þarf eg ekki um það að fjölyrða hér. Með öðrum orðum, eg
helt því fram, að hitamagnið, sem fengist úr einu kg. vanalegra kola
brendum í stofuofnum, þ: e. vanalegum ofnum, væri aðeins einn þriðj-
ungur til helmings þess, er hr. kennari Þ. R. taldi á að fengist; þar
af leiðandi þyrfti tvöfalt til þrefalt meira af kolum til að gefa það
hitamagn, er hann tiltæki, svo að í stað þess, að maður fengi 2100 h.e.
fyrir einn eyrir, fengi maður aðeins 700 — 1050 hitaein., en það er,
ef meðaltal er tekið 875 h. e., oglítið eitt meira en fæst, að því er f*.
P. segir, úr 1 kw.st. rafmagns. Svo að rafmagnið mætti kosta næstum
1 eyri kw.st., og gæti þó orðið jafn ódýrt og kol seld á 25 kr. smá-
lestin; en rafmagnið hefur verið selt á 1—2 aura kw. st. í Gautaborg,
Svíþjóð, í stórum stíl í fyrra, sbr blaðið »PoIitiken« 30. okt. f. á.,
cg engin gild á stæða væri til að ætla, að það gæti ekki selst jafn-
ódýrt hér á íslandi, svo framt nægilegt afl væri til og aflstöðvarnar
yrðu ekki ofdýrar vegna byggingarefnisins, eða fyrir vanþekkingu og
handvömm.
Svona stóð þetta mál í fyrra haust, og geta þeir, sem hirða að
kynna sér það frekar, séð ritgerðir mínar og svar Porkels kennara í
»ísl.« sama árs. Einungis vil eg því við bæta, að síðan ritl. »Dugnaður
Akureyrar og Snilli« var prentaður, hef eg fengið skýrslu frá bænum
Norrköping í Svíþjóð, er sýnir, að þar var ákvarðað árið 1913, að
selja rafmagn til húsornunar á 1 eyri kw. st., til þeirra sem tækju yfir
1000 kw.st. á ári og borguðu fastan prís fyrir, svo næmi í það minsta
24 kr. á ári. f þeim bæ var þá rafurmagn notað til húsornunar, og
bærinn sjálfur, sem telur eitthvað 60,000 íbúa, seldi rafmagnið með
nýnefndu verði. Með þessu lýk eg athugasemdunum við grein Porkels.
Pá er að sjá hvað Guðm. Hiíðdal, rafmagnsfræðingur, segir um
húshitun með rafmagni. f ritgerð hans »Um rafveitu á sveitabæum*, bls.
168-9 og 170, 3. hefli Búnaðarritsins, f. á., lesum vér sem fylgir: