Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 28

Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 28
28 FYLKIR. Hvernig lýst ykkur á þessa ályktun rafmagnsfræðingsins, hins þjóðkunnasta sem fsland á? Eða hversvegna fór hann að segja fólki frá hinum miklu gæðum og þægindum, sem rafmagnhitun hefði í för með sér? Eftir að hafa sagt skýrt og skýlaust, að yrði rafveitu komið á til sveita, svo ætti ekki að nota það aðeins til ljósa, heldur til suðu og »hélzt líka til hitunar*; og eftir að hafa gert Ijósa grein fyrir því, hve mikill hagnaður það væri fyrir bændur að geta hitað heimili sín með rafmagni, þá kemur hann með þennan úrskurð: að þrátt fyrir hina miklu vöntun, sem sé á betri húshitun, verði óvíða unt að koma nægilegri rafmagnshitun á! Er þetta ekki að kveða upp dauðadóm yfir rafmagninu sem hitalind innan-húss, til sveita? Ekki er þó svo að skilja af þessu, að rafmagnið geti ekki gefið af sér hita alt eins vel og Ijós (það getur þó soðið graut og steikt egg og ket), heldur hitt, að til að hita sveitabæi þarf 8 — 15 hestöfl, og dugar þó ekki samt »til að hita upp mörg herbergi eða stór«. Hve mörg? Hve stór? Höf. segir ekkert um það sjálfur, en lætur sér nægja, eftir að hafa sagt á bls. 170 sama heftis, hvernig nota mætti einn ofn til hitunar, þar sem stöðin gæfi 4 — 6 hestöfl, að vísa til ritgerðar Jóns Porláks- sonar, landsverkfræðings, prentaðri í blaðinu »Lögréttu« þessu máli til skýringar. Orð höf. á bls. 170 um eldun og hús-hitun eru þessi: »Væri aflstöðin ekki nema 4 — 6 hestöfl, þá mætti samt hafa einn ofn, sem full not væri að, þegar ekki væri soðið, þó fer þetta mjög eftir staðháttum og er sumstaðar hægt að hafa stöðina mun stærri án mikils aukakostnaðar en minna en 3ja hesta afl ættu stöðvarnar helzt ekki að hafa.« Meira segir höf. ekki í nefndri grein um upphitun íveruhúsa með rafmagni, en í lok greinarinnar segir hann: »Að endingu vil eg benda mönnum á hina ágætu ritgerð Jóns landverkfræðings Porlákssonar um sama efni í Lögréttu VIII. — IX. árg. 50 — 60 og 1. tbl., er þar meðal annars einkar skýr lýsing á orku vatns og öðrum orku tegundum,*

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.