Fylkir - 01.08.1916, Síða 32
32
FYLKIR.
klukkustund; við eldunina tapast nokkuð af hitanum — fer út í loftið,
f stað þess að fara inn í matarpottinn, en við herbergjahitun er ekki
um slfkt tap að ræða, og þess vegna má telja að þar fáist um 470
hitaeiningar úr hverju hestafli á klukkustund, en hitaeining kölium vér,
eins og áður er sagt,;þann hita, sem nægir til þess að hita 1 lítra af
vatni um 1° á Celsius. 10 hestöfl gefa þá um 4700 hitaeiningar á klt.
Retta er ámóta mikill hiti og fæst úr 1 kg. af meðal ofnkolum með
því að brenna þeim í miðlungs góðum ofni. Nú kostar þetta eina
kg. af ofnkolum ekki nema 2^/2 eyri í kaupstöðum hér, og má af
þessu sjá, að lítið verður úr 10 hestöflum þegar þau eru notuð til
hitunar. Rau eru þá ekki nema 2 — 3 aura virði um klukkutímann, en
mundu í kauptúnum og borgum seljast á 1,00 til 1,50 um klukku-
tímann til vinnu í verksmiðjum, og ennþá hærra verði til Ijósa. Rað
gefur þvi að skilja, að um herbergjahitun með rafurmagni getur þvi
aðeins verið að rœða, að framleiðsla rafurmagnsins sé afaródýr, eða
helzt að hún kosti ekkert annað en fyrningu einhverrar ekki mjög
mikillar stofnfjárupphæðar.*
Hérna höfum vér þá ályktun landsverkfræðingsins, Jóns Rorláks-
sonar um verðmæti rafurmagnsins til hitunar í samanburði við kol,
og hér tek eg gleraugun af og ný og fægi þau til að vera viss um
að eg Iesi nú rétt. Rað er 1,00 til 1,50, nl. 1 kr. til 1 kr. og 50 aura
sem 10 hestöfl kosta um 1 klukkutíma í kauptúnum og borgum er-
lendis til vinnu í verksmiðjum, og enn þá hærra til ljósa. 1 hestafls
tími kostar þá 10—15 aura til vinnu á verkstæðum erlendis og enn
þá hærra til Ijosa til jafnaðar, og samt ættu bændur hér á íslandi
að nota rafmagn til hitunar, þótt það yrði selt með sama verði og
höf. tilnefnir (1,00 — 1,50), þ. e. 40 til 60 sinnum dýrara en kola-
hitun þegar smálestin selst á 25 krónur!
Nei, það meinar Iandsverkfræðingurinn ekki; heldur hitt, að sé
rafurmagn einusinni til og hafi ekkert annað þarfara að gera, þá megi
nota það til að verma herbergi til sveita. Hann segir strax á eftir:
»F*etta á sér nú einmitt stað, ef ódýr rafmagnsstöð er bygð fyrir