Fylkir - 01.08.1916, Page 33

Fylkir - 01.08.1916, Page 33
FYLKIR. 33 einn eða fáa sveitabæi til ljósa og matreiðslu, ef kringumstæður leifa að gera hana svo stóra, að ekki þurfi að nota alt aflið til matreiðslu eða undirbúnings matreiðslu að staðaldri, þegar ekki er verið að elda, þá er aflið til matreiðslunnar ónotað, og ef ekki er hægt að ætla því annað hentugra verk, þá er sjálfsagt að nota það til herbergjahitunar, það kostar þá ekki annað en að hafa þar til gerða ofna og svo dá- lítið meira slit á vélunum, sem framleiða rafurmagnið.« Hér höfum vér kjarnan úr ritgerð J. P. landverkfræðings að því er upphitun herbergja snertir, og hann er sá, að rafmagnið geti kom- ið að notum til að auka hana, þegar það er til hvort sem er og hefir ekkert þarfara að gera, en annars yrði það mikið dýrara en hitun með kolum er, séu þau seld með vanalegu verði. Allir geta séð, hvernig höf. kemst að þessari niðurstöðu. Hann gengur nefnilega út frá því sem vísindalega sönnuðu, að úr einu kg. af meðal »ofnkolum« fáist 4700 hitaeiningar til afnota, það er, »komi út í herbergið*— svo eg noti orð Þ. R. kennara — og fari ekki út með reyknum. En er það svo? Hve mikinn hita hafa ofnkol til jafn- aðar? Ekki neinar 7000 h. é. hvað þá meir. Meðal góð ofnkol hafa aðeins 5000 — 6000 hitaein. alls. Og sá hiti finst aðeins í efnafræðis reynslu-ofnum, en fæst aldrei til afnota i vanalegum ofnum. Beztu stofuofnar gefa aðeins um 50°/o af hitamagni kolanna, sjá ofanritað, og miðlungs ofnar 20—30% en betri ofnar 25 — 33°/o. Eg hef því talið upp á 25 — 33 til jafnaðar, en 25°/o af 5000 hitaein. er 1250 h e. og 25°/o af 6000 h. e. er 1500 hitaein., en 30% af þessum hitagild- um eru 1500 — 2000 h. e., og meðaltalið af því er 1750 hitaeiningar. Telji maður á að betri ofnar gefi 33%, svo fæst úr miðlungs kolum 1666—2000 h. e.; að meðaltali um 1833 hitaeiu.; en það er2'/2falt minna en J. F*. telur á. Pví til sönnunar, að 1 kg. ofnkola geymi til jafnaðar aðeins 5000 hitaeiningar alls, vísa eg lesaranum til 7. bindis, bls. 574 Brockhaus Konv. Lexikon og á sömu bls. er að finna stað- hæfing þýzkra vísindamanna fyrir því, að vanalegir ofnar gefi til jafn- aðar aðeins 20 — 30% af hitamagni kolanna, sem í þeim er brent, til

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.