Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 41

Fylkir - 01.08.1916, Blaðsíða 41
FYLKIR. 41 grænser, men nærmer sig til at bli en forpligtelse set fra et nationalöko- nomisk synspunkt.« Af því eg heid að flestir kaupendur þessa rits skilji dönsku og norsku, svo læt eg vera að útleggja ofanritað í þetta sinn, en skal gera það, eða sjá um að það verði gert, ef margir kaupendur æskja þess. Ressi útdráttur úr ofannefndu riti herra Oldens, yfirkennara, við háskólann í Kristianíu vona, eg að nægi einn til að htekja þau um- mæii þeirra Þorkels kennara, Guðm. Hlíðdals og Jóns Þorlákssonar, að rafmagnið geti ekki kept við koi til herbergjaupphitunar hér á ísiandi, og að húsornun með rafurmagni verði hér óvíða möguleg; og eins vona ég að flokks-foringjar alþýðu, alþingi sjálft, stjórn- endur íslands og almenningur yfirleitt, þurfi ekki frekari sannana frá mér eða mínum penna, til að sýna að erindi mitt um elfíris ornun íveruhúsa hér á landi sé ekki eintómt skrum og þvættingur, eða þá að eg sé að reyna að blekkja augu almennings og draga menn á tálar. Eins og áður er sagt, fæst 1 hitaeining úr425 til 427 kg.sek.metr. erfiði og sania hitamagn fæst einnig úr Vsöo kwt. iðju; svo að 1 kwt. iðja = 860X427=367220 kg. sek. metra, og 1 kw.sek. = 102 kgs. metra erfiði, og 1 watt sek., þ. e. 1 joule=102 kg.s.m. eða rúml. Vio kg. sek. metra, Hér af Ieiðir, að hvar sem 1 kg., þ. e. 1 litri vatns, fellur l/io m. hæð á sek., þar er til orka, sem getur unnið 1 watts erfiði á sek., nl. 1 Joule, og því gefið 0,00024 hitaeiningu, þ. e. hit- að 0,00024 litra = 0,24 ten.sentim. vatns 1°C. á hverri sekundu. Og falli 1 lítri 1 m.hæð, þá er orka hans 10 falt meiri og nægir til að vinna 10 watta erfiði á sek. eða 10 joule, og getur því hitað 2,4 ten. s.m. vatns 1° á sek.; en falli 1 ten.m. vatns 1 metra hæð á hverri sek. þá er þar orka, sem getur gefið 10,000 watta á hverri sek., þ. e. 104 joule, eða 10 kwatt eða 13,6 hestöfl. Og sú orka nægir til að hita 2400 ten.s.m. vatns þ. e. 2,4 litra um 1 stig Celsius eða 1 lítra vatns 2,49 á hverri sek., þ. e. sama og að gefa 144 hitaein. á hverri mín.,eða 8640 hitaein. á hverri klst.; en það er jafnmikið og fæst úr 4 —5 kg. ofnkola brendum í góðum stofuofnum,— eða 3 kg. oínkola brendum

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.