Óðinn - 01.07.1931, Page 1

Óðinn - 01.07.1931, Page 1
OÐINN 7.-12. BLAÐ 1ÚLÍ-DESEMBER 1931 XXVII. ÁR Elliheimilið Grund í Reykjavík. [ Elliheimilið Grund. Eitt af hinum stærri menningarsporum, sem stigin hafa verið hjer á síðustu árum, er stofn- un hins stóra og vandaða Elliheimilis í Reykja- vík. Það var vigt 28. september 1930 og er eitt af myndarlegustu stórhýsum þessa lands. Sá maðurinn, sem mest og best hefur beitt sjer fyrir því, að koma þessu húsi upp, er cand. theol. Sigurbjörn Á. Gíslason, og er hann for- maður nefndar þeirrar, sem framkvæmd verks- ins hefur hvílt á og nú hefur á höndum for- stöðu heimilisins, en í þeirri nefnd eru, auk hans, Fiosi Sigurðsson trjesmiður, Haraldur Sigurðsson fyrv. verslunarmaður, nú forstjóri heimilisins, Júlíús Árnason kaupmaður og Páll Jónsson kaupmaður. Hafa þessir menn lengi unnið saman, af mikilli ósjerplægni, að því veg- lega marki, sem þeir nú hafa náð. Pessi 5 manna nefnd, eða meiri hluti hennar, var kosinn árið 1913 af Umdæmisstúku templ- ara í Reykjavík til þess að veita forstöðu mat- gjöfum til fátæks fólks 2 eða 3 mánuði af vetrinum. Varð sú starfsemi vinsæl í bænum og hjeltst í nokkur ár. Hún hafði bækistöð í Templarahúsinu uppi og var nefnd »Samverj- inn«. Forstöðukona var Maria Pjetursdóttir. Og er nefndin sá, hve starfi hennar var vel tekið, og menn voru fúsir til gjafa handa Samverjan- um, óx henni áræði, svo að hún tók sjer fyrir

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.