Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1995, Side 7

Tölvumál - 01.04.1995, Side 7
Apríl 1995 hluta til líkt kerfum sem í dag ganga undir nafninu “video-plot- ter”, en að hluta til hagrænir út- reikningar, svo sem samanburður á framlegð mismunandi valkosta í rekstri fiskiskipa, sjá [ 13] og[14]. Tölvan fór í reynslutúr með togara og þótti lofa góðu. Ekki fékkst þó neinn til að heija fullþróun og sölu á þessum tírna. Örfáum árum síðar kom áþekkt kerfí á markað frá Frakklandi. Það heitir Macsea og er íslenskt fyrir- tæki, Radiómiðun hf. nú meðeig- andi og seljandi þess. Annað svip- að kerfí sem selt er hér má nefna en það heitir Marbendill og er það íslenskt. Mörg fleiri verkefni um borð í fiskiskipum hafa nú verið tölvu- vædd. Taka má sem dæmi við- haldskerfi, birgðaskráningu neta- varahluta, vélgæslukerfi, togvindu- stýringar og olíueyðslumælingar. Þá hafa verið settar fram hug- myndir um og þróuð kerfi fyrir staðsetningar, tilkynningaskyldu og gagnasendingar milli skips og lands annars vegar hjá Kerfisverk- fræðistofu Háskólans, sjá [15] og [16], og hins vegar á vegum þró- unarfyrirtækisins Fangs hf. Rann- sóknir hafa verið gerðar á rekstri frystitogara og hugmyndir settar fram um stoðkerfi íyrir ákvarðana- töku (Decision Support Systems) m.a. um vinnslu, svo og fyrir ákvarðanatöku um samhæfingu veiða og vinnslu, sjá [17] og [18]. Um borð í fiskiskipum stefnir í sama vandamál og í frystihúsum. Tölvum og hugbúnaðarkerfum íjölgar en án samhæfmgar og möguleika á beinum gagnasam- skiptum. Brú í nýjum togara ein- kennist af fjölda tölvuskjáa með ólíkum ásjónum. Nýlokið er Eureka verkefni sem nefnt var HALIOS-VIS (Vessel Information Systems). Markmið verkefnisins var að hanna og þróa heildarkerfi, sem myndað gæti ramma um margvís- lega tölvunotkun um borð í fiski- skipum. Tekið var mið af “frysti- togara framtíðarinnar” og eftir- farandi upplýsingakerfi greind: Skipstjómarkerfi BIS Bridge Infonnation System Rekstrarkerfi MIS Management Information System Vélgæslukerfi EIS Engine Infonnation System Veiðarfærakerfi GIS Gear Information System Vinnslukerfi PIS Processing Information System Samskiptakerfi CIS Communication Informa- tion System Öryggiskerfí SIS Safety Information System Siglingakerfí NIS Navigation Information System Hannað var heilstætt netkerfi, sem gerir ráð fyrir ofangreindum sérkerfum, bæði hugbúnaði, tölv- um og öðrum búnaði, og annast samskipti milli kerfanna á raun- tímagögnum og öðrum upplýs- ingum. Háskólinn (undirritaður, Rögnvaldur Ólafsson, Oddur Benediktsson o.fl.) var aðili að þessu verkefni, sem lauk með því að nokkur fyrirtæki stofnuðu með sér fyrirtækjanet um framhald málsins, sjá [19]. Lokaorö Hér hefur verið stiklað á stóru hvað varðar hagnýtingu upplýs- ingatækni í sjávarútvegi á íslandi og er alls ekki um tæmandi um- fjöllun að ræða. Nefnd hafa verið dæmi um ferli hugmynda frá rann- sóknastigi til raunveruleika, þ.e. til framleiðslu og sölu. Þessi dæmi sýna virk tengsl Háskóla íslands við þessa mikilvægustu atvinnu- grein þjóðarinnar. Líklega eru fáir háskólar í heiminum í jafn góðu sambandi við atvinnulífið eins og hér. Þar hefur smæð örríkisins sitt að segja en einnig skipta áherslur í rannsóknum og þróunarstarfi miklu. Ljóst er að þekking er fyrir hendi hér á landi, bæði á viðfangs- efninu og þörfum atvinnugreinar- innar og einnig á nauðsynlegri tækni og fræðilegum aðferðum. Markaðurinn er nálægur og í flest- um tilvikum nýjungagjarn og kröfuharður. Vandamálin eru oft skortur á samvinnu fyrirtækja eða að stór og öflug fyrirtæki vantar. Einnig virðist sem þeir, er stjórna aðgangi að áhættufé, vilji helst ekki taka mjög mikla áhættu. Við stefnumótun í rannsóknum og þróunarstarfí á Islandi hlýtur athyglin að beinast að upplýsinga- tækni í sjávarútvegi. Slíkt þjónar tvíþættum tilgangi. Annars vegar stuðlar það að aukinni tæknivæð- ingu í mikilvægustu atvinnugrein landsins. Hins vegar opnar það leiðir fyrir nýjar útflutningsgreinar, ekki síst á sviði hugbúnaðar, sjá [20]. Það er í góðu samræmi við ímynd íslands að seljatæknibúnað fyrir sjávarútveg. Og hvað er eðli- legra val á markaðshorni ef við ætlum á annað borð að hasla okkur völl meðal annarra þjóða á sviði upplýsingatækni og hagnýtingu hennar? Páll Jensson er prófessor í rekstrarverkfrœði við vélaverkfrœðiskor Há- skóla Islands. Heimildir 1. Páll Jensson (ristjóri): Tölvu- og upplýsingatækni á íslandi. Skýrsla Rannsóknaráðs ríkisins nr. 2 1986. 2. Páll Jensson: Upplýsingatækni og nýting hennar. í Upplýsingar eru auðiind: Greinar um upplýsingastarfsemi í þágu vísinda og mennta. Samstarfsnefnd um upplýsingamál 1990. 3. Pétur K. Maack og Páll Jensson: Kostn- aðarhugtök við val á vinnsluleiðum i frystihúsi. Skýrsla Verkfræðistofnunar Háskóla íslands 1985. Frh. á nœstu síðu. Tölvumál - 7

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.