Tölvumál - 01.04.1995, Síða 15
Apríl 1995
Framleiðslustýring
Þegar tekin er ákvörðun um
framleiðslu og hráefniskaup er not-
að þekkingarkerfi, sem tengst getur
fiskmörkuðum. Þetta kerfi hefur
upplýsingar um pantanir og mark-
aðshorfur. Einnig eru byggðir inn
í það vinnslustaðlar fyrir einstakar
afurðir og forsendur fyrir fram-
legðarútreikning og afkastagetu.
Kerfið getur metið hráefni mið-
að við þær upplýsingar, sem fyrir
liggja og jafnvel gert boð í hráefni
á fiskmarkaði, ef því er að skipta.
Þá er tekið mið af þeirri framlegð,
sem ásættanleg er, að teknu tilliti
til verðs og markaðshorfa.
Fyrir hráefnislager getur kerfið,
út frá upplýsingum um hráefnið,
ákvarðað hvaða afurðir má fram-
leiða og hvað sé hagkvæmast mið-
að við verð og markaðshorfur.
Mynd 2.
Hússtjórnarkerfi
Hússtjórnarkerfí tengist öllum
tækjum í vinnsluferlinu og gerir
kleift að sjá á myndrænan hátt hús-
næði, staðsetningutækja, ástand á
hverjum áhættustað og annað sem
máli skiptir. Kerfið gerir kleift að
stýra tækjum og grípa inn í, þegar
ákveðnir þættir fara út fyrir skil-
greind mörk og jafnvel gera það
sjálfvirkt.
Birgðahald
Þegar vara er fullunnin er hún
merkt strikamerki, eins og áður var
getið. Jafnframt þarf að strika-
merkja flutningseiningar (bretti) og
tengja þær framleiðslueiningar-
númerum. Þetta er nauðsynlegt til
að hægt sé að skipa út vörunni eftir
framleiðslutíma.
Daglega eru sendar upplýsingar
um framleiðslu til sölusamtaka,
bæði hversu mikið hefur verið
framleitt og hversu margar flutn-
ingseiningar hafa verið fylltar þann
daginn. Með þeim upplýsingum
fylgja gæðaupplýsingar um fram-
leiðslueiningar í viðkomandi flutn-
ingseiningu.
Allar tilfærslur á
flutningseiningunni
eru skráðar og þannig
er hægt að vita ná-
kvæmlega hvar hver
einstök eining er á
hverjum tíma.
Afskipanir
Þegar gámar eru
hlaðnir eða vöru er
ekið frá framleiðanda
eru upplýsingar um
flutningseiningar
sendar söluaðila. Ef
um gáma er að ræða,
er staðsetning flutn-
ingseininga í gámnum
skráð og því hægt að
kalla upp mynd af
gámnum, þar sem
hleðsla hans sést ná-
kvæmlega. í hverjum gámi er síriti,
sem safnar upplýsingum um hita-
stig í gámnum og skilar þeim inn í
gæðakerfíð.
Gámar eru hlaðnir eftir fyrir-
mælum, sem berast vélrænt, frá
kaupendum eða sölusamtökum og
er hægt að prenta út hleðsluplan,
þar sem fram kemur hvar setja á
hverja flutningseiningu.Þegar vara
berst til útflutningshafnar, er henni
annað hvort skipað beint út eða sett
í geymslu. Geymslukerfið heldur
utan um einstakar flutningseining-
ar og staðsetningu þeirra.
Söluaðilar
Afurða- og birgðakerfi
Inngangur
Þetta kerfi hefur þann tilgang
að halda utan um allar upplýsingar
er varða afurðir eins og lýsingu,
framlegðarforsendur, kassamiða,
framleiðslu, birgðir, staðsetningu
þeirra, verðlista o. fl.
Framleiðendur geta haft aðgang
að upplýsingum í þessu kerfí, en
það á eingöngu við sameiginlegar
upplýsingar, sem þó er hægt að
takmarka aðgang að, og upplýs-
ingum um eigin birgðir, staðsetn-
ingu þeirra, stöðu og framleiðslu.
Afurðaupplýsingar
I þessum hluta fer fram skrán-
ing upplýsinga um pakkningu, þar
með taldar upplýsingar fyrir miða.
Hægt er að tengja pakkningu við
þau vörunúmer á umbúðalager,
sem notuð eru til að pakka viðkom-
andi vöru. Jafnframt er hægt að
geyma myndir af pakkningu og
tengja vinnsluleiðbeiningar við
pakkningalýsinguna, og einnig má
sjá pökkun á margmiðlunarformi.
í kerfinu er möguleiki á
HACCP greiningu, þar sem not-
andinn er leiddur áfram af kerfmu
við þá vinnu og þessi greining er
síðan tengd vinnslustöðlum.
Hægt er að mynda skrár fyrir
miðaprentara, sem síðan má senda
sjálfkrafa til valinna framleiðenda.
Framleiðendur geta sótt miða fyrir
tilteknar pakkningar hafi þeir að-
gang að viðkomandi pakkningu,
auk annarra upplýsinga, eins og
framlegðarupplýsinga og vinnslu-
leiðbeininga.
Bein tenging er við framlegðar-
kerfi, þannig að hægt er að skrá
upplýsingar fyrir það kerfi jafn-
Tölvumál - 15