Tölvumál - 01.04.1995, Side 17
Apríl 1995
óðum og pakkningar eru stofnaðar.
Jafnframt er bein tenging úr fram-
legðarkerfi í umbúðaverð gegnum
pakkningaskrá í verðskrá umbúða-
lagers.
Skráning verðlista
Söluskrifstofur geta skráð verð-
lista inn í kerfið og sér það þá um
að reikna út skilaverð, verðsetn-
ingarverð o.fl. Þessar upplýsingar
er síðan hægt að senda beint til
framleiðenda.
Framleiðsluskráning
Skráning framleiðslu er vélræn,
þar sem því verður við komið. Gef-
inn er kostur á skráningu bretta-
númera. Framleiðsluskráning er
daglega send sölusamtökum, ef
þess er óskað og er þá hægt að
fylgjast með því hverjir hafa gefið
upp framleiðslu.
Framleiðsluskráning
Birgðaskráning gefur mögu-
leika á skráningu brettanúmera,
staðsetningu birgða og hleðslu
gáma. Mögulegt er að meðhöndla
blönduð bretti, brjóta upp bretti og
sameina bretti. Hægt er að skrá
birgðatilfærslur með vísun I bretta-
númer eða heila gáma.
Hægt er að halda utan um
birgðir erlendis og útbúa reikninga
og önnur skjöl fyrir afgreiðslur,
sem gerðar eru úr þeim birgðum.
Flutningur birgða
Allar hreyfingar birgða eru
skráðar og hægt er að tengja til-
teknar birgðaeiningar pöntunum á
hvaða stigi sem er.
Þannig er hægt að sjá um leið
og framleiðandi hefur skipað vör-
um um borð í strandflutningaskip
og koma þá boð til viðkomandi
afskipunarstjóra, sem getur ákveð-
ið að viðkomandi vörur eigi að fara
til afgreiðslu á tiltekinni pöntun eða
eingöngu til söfnunar.
Allar þessar upplýsingar eru
aðgengilegar söluskrifstofum
jafnóðum og framleiðandi getur
jafnframt séð stöðu eigin birgða.
Pantanakerfi
Inngangur
Pantanir eru meðhöndlaðar á
tveimur stigum. I fyrsta lagi er
skráning og í öðru lagi staðfesting.
Mögulegt er að skrá tilboð sérstak-
lega og jafnframt er til ferli, sem
gerir kleift að breyta þeim í pant-
anir.
Skráning pantana
Hægt er að skrá pöntun hvar
sem er í sölunetinu. Þannig er hægt
að skrá pöntun á viðkomandi
söluskrifstofu og kerfíð sér um að
senda pöntunina til aðalskrifstofu
og þarf þá ekki að skrá hana aftur.
Þegar pöntun er skráð er hægt
að athuga fyrri sölur og verð, at-
huga hvaða skilaverð viðkomandi
sala gefúr og framlegð. Skilaverðs-
og framlegðarforsendum (hráefnis-
verð, flutningskostnaður) verður
hægt að breyta til að skoða áhrif
breyttra forsenda.
Staðfesting pantana
Þegar pantanir berast, eru þeir
aðilar sem staðfesta þurfa pöntun,
látnir vita og geta þeir kallað óstað-
festar pantanir fram og meðhöndl-
að þær.
Sömu möguleikar eru á að
skoða fyrri sölur, skilaverð og
framlegð og lýst var hér að ofan.
Þegar pöntun er staðfest er hægt
að skoða stöðu birgða í viðkom-
andi afurð, staðsetningu o.fl. Jafn-
framt er hægt að sjá hvað annað á
að fara í viðkomandi viku til kaup-
andans, hvað fara á af afurðinni,
hvað hefur verið bókað o.sv.frv.
Þegar afgreiðslu er lokið er
send sjálfkrafa staðfesting eða
synjun til viðkomandi söluaðila um
netið og einnig til kaupanda á því
formi, sem óskað er eftir (fax,
tölvupóstur, EDIFACT). Jafnframt
eru send sjálfvirk boð til við-
komandi framleiðslustjóra, ef skrá
þarf samninga við framleiðendur.
Boð eru send til afskipunar-
stjóra um staðfestingu pöntunar og
getur hann þá gert athugasemdir
og eru þær þá sendar sjálfvirkt til
þess aðila, sem staðfesti pöntunina,
sem getur síðan breytt henni eða
gert aðrar athugasemdir og sent
þær sjálfkrafa til kaupanda, sölu-
skrifstofu eða annarra.
Skráning samninga um
framleiðslu
Hægt er að skrá samninga um
framleiðslu og sér kerfið um að
senda samninga vélrænt til fram-
leiðenda og síðan berst staðfesting
framleiðenda á viðkomandi samn-
ingi vélrænt.
Kerfíð heldur síðan utan um
stöðu samninga og er hægt að
skoða hana og vinna upplýsingar
um stöðu samninga, sem er þá
hægt að láta kerfið senda beint til
viðkomandi framleiðenda.
Útflutningskerfi
Þessu kerfi er ætlað að halda
utan um alla vinnu í sambandi við
útflutning og gera kleift að skipu-
leggja hann betur.
Afgreiðsluáætlanir
Mögulegt er að skipuleggja
flutning á vörum til útflutnings-
hafnar og sjá hvaða vörur eru til
staðar þar. Þannig er hægt að
skipuleggja afgreiðslu mun betur
en áður og jafnframt geta sölu-
skrifstofur erlendis séð stöðuna
eins og hún er á hverjum tíma.
Hægt er að skoða hvað gert
hefur verið í sambandi við hverja
pöntun til að afgreiða hana. Hvort
afgreiða á hana úr birgðum í
Reykjavík, hvaðan taka á afurðir
til að afgreiða hana, hvar þær eru
staddar, hvort bókuð hefur verið
fragt í strandflutningum eða út-
flutningi o.s.frv. Kerfið getur sent
vélrænt til framleiðanda upplýsing-
ar um lestun í strandflutningaskip
eða á flutningabíl.
Fragtbókanir
Kerfið getur séð um fragtbók-
anir sjálfkrafa ef þess er óskað,
Tölvumál - 17