Tölvumál - 01.04.1995, Síða 23
Apríl 1995
fullbúnir og kerfið verður senn
markaðsfært í heild sinni. I kerfmu
er að mestu leyti stuðst við
HACCP staðal auk annarra staðla
s.s. ISO 9000.
Kröfulýsing var gerð í sam-
vinnu við Krossvík hf. og má segja
að kerfíð sé tölvuvædd gæða-
handbók sem nýtist við skráningu
gæðaefitirlits og við stýringu þess.
Utvegsbankinn tryggir þannig að
eftirliti sé sinnt og að ekkert gleym-
ist en sú er einmitt raunin hjá mörg-
um fyrirtækjum sem notast ein-
göngu við handskráð gæðaeftirlit.
Gæðakerfi Útvegsbankans
skiptist í fjóra megin þætti: Þrifa-
og meindýraeftirlit, starfsmanna-
upplýsingar, kvartanakerfi og
gæðaskráningar. Gæðakerfið
tengist mjög náið öðrum hug-
búnaði sem Strengur hf. hefur sett
á markað. í því sambandi má nefna
aðra kerfishluta Fjölnis, s.s. út-
flutningskerfi, launakerfi og mark-
aðskerfi auk þess sem kerfið getur
tengst upplýsingabankanum
Hafsjó. Því er við þetta að bæta
að kerfið getur einnig tengst sjálf-
virkum vinnslueftirlitskerfum sem
safna upplýsingum frá iðnstýri-
tölvum og skynjurum s.s. hita-
mælum, mælum fyrir pækilstyrk,
vogum og fleiru.
Segja má að með tilkomu gæða-
kerfisins bjóðist íslenskum sjávar-
útvegs- og fiskvinnslufyrirtækjum
loks heildarstjómtæki þar sem allir
kerfishlutar hafa sama notenda-
viðmót og sækja gögn sín á einn
og sama staðinn.
Hafsjór af
upplýsingum
Mannkynið hefur fetað sig í
gegnum fjölmargar byltingar frá
því að Grikkinn Feidipídes hljóp
um 40 kílómetra leið frá Maraþon
til Aþenu. Ætlunin var að boða
sigur í stríði við Persa. Þegar Feidi-
pídes hafði fært tíðindin féll hann
dauður niður. í nútímaþjóðfélagi
fóma menn sjaldnast lífinu við að
boða tíðindi en tilvist fyrirtækja
getur engu að síður ráðist af
rniðlun og móttöku upplýsinga.
Upplýsingabankinn Hafsjór er
tæki sem miðlar gögnum til
stjórnenda fyrirtækja í sjávarútvegi
og fiskvinnslu. Þessi upplýsinga-
miðill er skrifaður í gagnagrunns-
kerfinu Informix sem Strengur hf.
hefur umboð fyrir á Islandi. Haf-
sjór hefur nú verið starfræktur af
Streng undanfarin 6 ár og er hann
í notkun hjá hátt á annað hundrað
fyrirtækjum, flestum í sjávar-
útvegi.
Meðal valkosta í Hafsjó eru
upplýsingar frá fiskmörkuðum
ásamt gögnum frá sölusamtökum
sjávarafurða (SH og ÍS), veiddur
heildarkvóti, helstu vísitölur, þjóð-
skrá, skipaskrá, gengi og gengis-
þróun, færð á þjóðvegum, veður á
helstu fjallvegum, áætlanir flugvéla
og viðskipti á verðbréfaþingi
íslands. Þá geta áskrifendur Haf-
sjávar fengið aðgang að Morgun-
blaðinu á tölvutæku formi og leitað
þar að vild í greinasafni.
Hafsjór hefur verið í sífelldri
þróun hjá Streng og stöðugt bætast
við nýir liðir. Morgunblaðið er t.d.
með nýlegri kostum í kerfmu.
Notendur sjávarútvegskerfisins
Útvegsbankans geta nýtt sér
aðganginn að Hafsjó til að flytja
þaðan gögn beint yfir í Útvegs-
bankann. Þannig má takmarka
innslátt og minnka hættu á villum
við gagnaflutning. Útvegsbanka-
notendur geta t.d. nálgast gengi
gjaldmiðla eða verð á afurðum hjá
sölusamtökum með þessurn hætti.
Allt sem þarf til að tengjast
Hafsjó er PC-tölva, mótald og
símalína en Strengur hefur lagt til
forrit sem tryggir samskiptin við
Hafsjó.
Þessa dagana er unnið að því
að færa Hafsjó í heild sinni yfir á
Internetið. í framhaldi af því geta
allir þeir tengst upplýsingabank-
anum sem aðgang hafa að Inter-
netinu. Það sem vinnst með því að
færa Hafsjó yfir á Internetið er
aðallega tvennt. Samskipti við
bankann verða einfaldari og ódýr-
ari auk þess sem notendaskilflötur
verður bundinn grafísku útliti Win-
dows. Að sjálfsögðu verður þó
áfram boðin áskrift að Hafsjó í því
formi sem nú er.
Jón Örn Guðbjartsson
er markaðsstjóri hjá
Streng hf
Tölvumál - 23