Tölvumál - 01.04.1995, Page 25
Apríl 1995
af því sem áður var.
Brú skipa í dag má líkja við
rannsóknarstofu þar sem fram fara
mælingar á nánast öllum þeirn
þáttum sem viðkoma siglingum og
veiðum. Sammerkt öllum þessum
tækjum er að um er að ræða sjálf-
stæðar vinnslueiningar (talstöð,
dýptarmælir, staðsetningartæki,
radar o.s. frv.) sem eru mjög full-
komnar og oftast mjög llóknar.
Af ýmsum ástæðum hafa
þessar “fljótandi rannsóknar-
stofur” ekki safnað niðurstöðum
mælinga að neinu marki. En með
tilkomu Macsea skipstjórnarbún-
aðarins hefúr verið tekið stórt skref
fram á við varðandi sjálfvirka
gagnaskráningu frá hinum mis-
munandi “mælitækjum” (dýptar-
mæli, GPS, lóran, hitamælum
o.s.frv.), en yfir 150 íslensk fiski-
skip eru nú búin Macsea. Tækni
sú sem Macsea skipstjómarbún-
aðurinn byggir á, þ.e. tölvutæknin,
á að mínu mati eftir að valda bylt-
ingu í allri siglinga- og fiskileitar-
tækni. Með sjálfvirkri gagnasöfnun
og nýrri aðferð í framsetningu
gagnanna má búa til nýja tegund
upplýsinga sem ekki hafa áður
þekkst. Tilgangur þessarar nýju
tækni er að auðvelda skipstjórnar-
mönnum alla ákvarðanatöku og
stuðla að því að hámarksafla verði
náð með sem minnstum tilkostnaði.
En takmarkinu verður ekki náð
nema að skipstjórnarmenn séu
tilbúnir til að tileinka sér þessa nýju
tölvutækni, því hér er um að ræða
nýja hugsun sem krefst nýrra
vinnubragða.
Til þess að gefa hugmynd um
Macsea kerfið og þau svið sem
kerfið spannar má nefna eftir-
farandi:
- Staðsetning og sigling skipsins
þar sem afstaða til lands er
sýnd.
- Botnsniðsjávarsýntogafstaða
veiðarfæra.
- Teiknimöguleikar og gagna-
grunnur fýrir myndræna fram-
setningu á persónulegum upp-
lýsingum.
- Aðgangur að Sjókortum
Islands á sérstökum geisladiski.
- Staðsetning og sigling annarra
skipa sýnd á skjá og skráð
(tengt radarkerfi skipsins).
- Fjarskipti um gervitungl,
Inmarsat.
- Fjarskipti um farsímakerfið.
- Skráning í Veiðigagnagrunn
(sérstakur gagnagrunnur er
heldur utan um afla og gefur
möguleika á alls kyns skýrslum
og fyrirspurnum).
- Fyrirspumir í Skipaskrána.
- Lögskráning áhafnar.
- Veðurspár frá frönsku veður-
stofunni, en einu sinni á dag
kemur fjögurra daga spá sem
inniheldur spá um vindhraða,
vindsteínu, hitastig og ölduhæð.
- Framsetning á botngreiningu,
þ.e. greining á botnhörkunni
(sandur, grjót, o.s.frv.).
- Myndræn gagnasöfn frá opin-
berum stofnunum, t.d. lega
sæstrengja, lokunarsvæði, vitar
o.s.frv.
Þeir 400 skipstjómarmenn sem
sótt hafa Macsea námskeið okkar
og hin öra útbreiðsla Macsea
búnaðarins hafa sannfært okkur
um að íslenskir skipstjórar eru
tilbúnir til að tileinka sér nýja og
framsækna hugsun. Hvaða skip-
stjóra hefði dottið í hug fyrir
nokkrum árum að hann ætti eftir
að skoða öll sjókort íslands sem
komið er fyrir á einum geisladiski
Tölvumál - 25