Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1995, Page 29

Tölvumál - 01.04.1995, Page 29
Apríl 1995 Framleiðslueftirlitskerfi fyrir fiskvinnslu Eftir Sigurpál Jónsson Við ritun greinar þessarar var stuðst við ritað efni frá Friðriki Guðmundssyni fisktækni og tölv- unarfræðingunum Bimi Þorvalds- syni og Tómasi Ríkarðssyni. Allir starfa þeir hjá Marel. Undanfarin ár hefur orðið mikil þróun á vinnslukerfum í fisk- vinnslu og er óhætt að fullyrða að íslendingar hafi verið þar í farar- broddi. í þessari þróun hefur hlut- verk upplýsingatækni verið stórt, en þar hefur starfsvettvangur Marel einmitt verið, að smíða bún- að og kerfi þar sem upplýsinga- tækni hefur verið byggð inn í vinnslubúnað. Á áttunda áratugnum voru tölv- ur að ryðja sér til rúms í íslenskum frystihúsum og þörfrn fýrir tölvu- vinnslu fór hratt vaxandi. Sérstak- lega voru það flóknir bónusút- reikningar sem vom reiknifrekir, en einnig voru menn famir að nota tölvur til að reikna nýtingu og framlegð. Nokkuð háði þó þessari vinnu að erfítt var að ná gögnum úr vinnslunni inn í tölvurnar. Þegar Marel hópurinn tók til starfa árið 1978 á Raunvísindastofnun Há- skólans og hjá Framleiðni sf. var það haft að markmiði að hanna og smíða tölvuvogir sem jafnframt væru skráningarstöðvar. Vogirnar skyldi vera hægt að tengja saman inn á tölvu, til að mynda kerfi sem gæti fylgst með efnisflæði í gegn- um vinnsluna. Árið 1980 var fyrsta fram- leiðslueftirlitskerfí Marel sett upp hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur og árið 1982 hjá Skjervoy í Norður Noregi. Úrvinnslutölvan í þessu kerfi var hönnuð og smíðuð af Marel og gekk undir nafninu SS- 200 Safnstöð. Þess má geta að ekki voru notaðir diskar í SS-200 Safn- stöðinni til að geyma gögn, heldur eingöngu samrása minni. Þetta gerði það að verkum að þær voru öruggar en dýrar. Við Safnstöðina mátti tengja allt að 24 vogir auk fiskateljara fyrir flökunarvélar og tölvusamskipta. Með kerfrnu mátti fylgjast með ýmsum lykiltölum í vinnslunni svo sem innvegnu magni í húsið, nýtingu og afköstum flökunarvéla, nýtingu og afköstum snyrtara og yfirvigt og afköstum í pökkun. Árið 1984 voru gerð forrit í Safnstöðina fyrir bónusskrán- ingar og þannig mátti losna við skráningar á pappír sem erfitt var að nota í blautu umhverfi frysti- húsanna. Á sama tíma voru þró- aðar aðferðir til að tengjast þeim tölvum sem þá voru notaðar til launaútreikninga. Það voru aðal- lega IBM System 34 og System 36 ásamt PDP-11. Alls voru seldir nokkrir tugir safnstöðva þar til MP/2 kerfið, sem keyrir undir MS- DOS, tók viðárið 1987. Fyrir u.þ.b. 8 árum varð mikil breyting í íslenskri fiskvinnslu, þegar menn tóku upp svokallaðar flæðilínur við flakasnyrtingu í frystihúsum. Áður höfðu að mestu tíðkast bakkakerfi þ.e.a.s. liráefnið var flutt í bökkum á milli vinnslu- þátta í framleiðsluferlinu. Á flæði- línum er hráefnið hins vegar flutt á færiböndum. Með tilkomu flæði- línanna skapaðist mikil vinnuhag- ræðing. Afköst jukust þar sem stærra hlutfall starfmanna starfaði beint við framleiðslu í stað ýmissa þjónustustarfa í bakkakerfunum. Nýting hráefnisins batnaði einnig þar sem hráefnið rann hraðar gegn- um framleiðsluna og ekki var þörf á lagersöfnun í bökkum meðan beðið var eftir næsta þrepi í fram- leiðsluferlinu. Þrátt fyrir að þessar flæðilínur hafi skilað fiskvinnslufyrirtækjum umtalsverðri hagræðingu höfðu þær ýmsa ókosti umfram bakka- kerfin. Framleiðslan var ekki eins sveigjanleg og áður, þ.e. erfitt var að vinna mismunandi gerðir af hráefni og pakkningavalið var háð fjölda þeirra færibanda sem í lín- unum voru. Annar verulegur ókostur var að þau vogakerfi sem notuð höfðu verið til framleiðslu- eftirlits voru hönnuð fyrir bakka- kerfin og réðu ekki við þessa vinnslu. Því var erfitt að koma við virku gæða-, nýtingar- og afkasta- eftirliti og ómögulegt var að binda slíkt eftirlit við þá einstaklinga sem í snyrtingunni störfuðu. Síðla árs 1991 hófu Marel hf., Þorgeir og Ellert hf., og Ingólfur Árnason tæknifræðingur í sam- vinnu við Fiskiðjuna Skagfirðing hf. á Sauðárkróki samstarf um hönnun á nýrri gerð af flæðilínu. Þessi lína var síðan sett upp hjá Fiskiðjunni í febrúar 1992. Stærsta nýjungin í þessum flæðilínum er einstaklingsbundið eftirlit með gæðum, afköstum og nýtingu. Línan er þannig uppbyggð að í henni eru þrjú færibönd. Eitt færi- band sem flytur hráefni inn á línuna, annað fyrir mismunandi afurðir frá snyrtistæðum og eitt fyrir afskurð og úrgang. Línunni er stýrt af vogum, sem tengdar eru saman á neti inn á móðurtölvu. Tölvumál - 29

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.