Tölvumál - 01.04.1995, Side 35
Apríl 1995
vélbúnaðarsala. Innan deildarinnar
fer fram kerfisforritun og kerfis-
stjóm.
Þjónustudeild hefur með hönd-
um almenna þjónustu við notendur,
samskipti við hafnir vegna skrán-
ingar upplýsinga um landaðan afla
og uppsetningu og aðhæfingu á
hugbúnaði fyrir einkatölvur. Þjón-
ustudeildin stendur fyrir kynning-
urn og námskeiðum fyrir þá sem
tölvudeildin þjónustar. Gagna-
safnsvörður er í þjónustudeild.
Helstu verkefni
Kvótakerfið er eitt af stærri
verkefnum sem tölvusvið Fiski-
stofu vinnur með. Fiskistofa fer
með daglega stjóm fiskveiða í land-
inu og umsjón með kvótakerfmu. I
umsjón með kvótakerfmu felst
úthlutun á aflamarki (magn sem
hvert skip má veiða á hverju fisk-
veiðiári), söfnun á upplýsingum
um landaðan afla og gjaldtöku
vegna umframafla. Sjávarútvegs-
ráðuneytið ákveður heildarafla
fyrir hvert fiskveiðiár að fengnu
áliti Hafrannsóknastofnunarinnar.
Þessu aflamarki er svo skipt á öll
fiskiskip sem hafa veiðileyfi í hlut-
falli við aflahlutdeild þeirra. Til
þess heldur Fiskistofa utan um skrá
fyrir öll fiskiskip í landinu bæði
núverandi stöðu skipsins og sögu
þess.
Lóðsinn er aflaskráningarkerfi
Fiskistofu og hafnanna og er það
tengt kvótabókhaldskerfinu. Nær
allar hafnir landsins eru með PC
tölvur og hugbúnað til þess að skrá
landaðan afla frá degi til dags.
Þetta kerfi nefnist Lóðs bæði hjá
höfnunum og samsvarandi kerfi hjá
Fiskistofu. Hver höfn skráir hjá sér
landaðan afla fyrir hvert skip eftir
fisktegundum. Hafnirnar senda
þessar aflatölur u.þ.b. daglega til
Fiskistofu með X.25 innhringi-
sambandi, sjá mynd 2. Þessar tölur
eru síðan keyrðar inn í gagnasafn
Fiskistofu. Síðan þarf að reikna
afla til kvóta. Það eru flóknar
reglur sem eru notaðar til þess að
reikna afla til kvóta og eru þær
háðar ýmsurn þátturn eins og t.d.
fisktegund, veiðarfæri, vinnslu o.s.
frv. Þessar reglur breytast og þarf
að halda utan um þær í forritunum
eins og þær gilda á hverjum tíma.
Fiskveiðiárið er frá 1. september
til 31. ágúst á næsta ári. Einnig
þarf að halda utan um aflaheimild
og veiðileyfi hvers skips en það eru
réttindi sem geta flust á rnilli fiski-
skipa. Við skráum því í tölvukerfíð
ýmsar upplýsingar um þessar milli-
færslur á réttindum. Kvóti er alltaf
skráður á skip en ekki einstaklinga.
Úr öllum þessum upplýsingum
reiknum við svo kvótastöðu sltipa
á hverjum tíma.
Þess rná geta að aflatölur sem
Morgunblaðið birtir í Verinu eru
tölvuunnar hjá Fiskistofu og fluttar
svo frá stofnuninn til blaðsins um
tölvukerfi Strengs. Strengur rekur
mikla upplýsingaveitu fyrir sjávar-
útveginn og er meðal annars tengd-
ur Fiskistofu á Interneti og miðlar
upplýsingum um kvóta og kvóta-
stöðu til hinna ýmsu aðila í sjávar-
útvegi.
Fiskifélag Islands safnar skýrsl-
um urn keyptan afla frá fiskverk-
endum. Þessar skýrslur eru bornar
saman við landaðan afla og þannig
fæst eftirlit með því að skráður afli
sé sem nákvæmastur.
Talsverður tími tölvusviðs fer í
að svara fyrirspurnum frá ýmsum
aðilum um upplýsingar úr gagna-
safni Fiskistofu. Það berast fyrir-
spurnir frá ráðherrum, alþingis-
mönnum, sjómönnum, útgerðar-
mönnum, hagsmunasamtökum,
skólum o.s.frv. Það er stefna Fiski-
stofu að reyna að svara öllum fyrir-
spumum um afla og fiskveiðar án
tillits til hver spyr og endurgjalds-
laust.
Tölvusvið sér um gagnagrunn
og ýmsa forritun fyrir Hafrann-
Gagnasöfnun á vegum Fiskistofu.
Mynd 1
Tölvumál - 35