Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1995, Side 39

Tölvumál - 01.04.1995, Side 39
Apríl 1995 gagnagrunninum en noklcuð er eftir af gömlum gögnun sem bíða flutn- ings þangað. Oracle gagnagrunn- urinn hefur reynst mjög vel en þau Oracle forritunarverkfæri sem við höfum eru mjög þung á vélunum hvort sem um er að ræða grafísk notendaskil (t.d. Motif) eða ekki. Veruleg forritun fer fram í C og C++ undir Unix en einnig notum við mikið skýrslugerð frá Oracle (SQL*ReportWriter) ásamt tölfræðilegar úrvinnslur, Hyper- tools, IslandWrite fyrir ritvinnslu, Applix, Fjölni fyrir bókhald o.fl. A PC og MAC vélum er nær ein- göngu aðkeyptur hugbúnaður, aðallega ritvinnsla og töflureiknar. Rannsóknaskip Hafrannsókna- stofnunarinnar eru með tölvukerfí. I tveimur skipum eru netkerfi, sem byggir á Unix og TCP/IP. Rann- sóknaskipið Bjarni Sæmundsson getur tengst tölvukerfi okkar með Skráning á afla hjá höfn Fax yfir landaöan afla sent höfn Fax yfir landaöan afla sent höfn / \ Fiskvinnsla Fiskmarkaður heimavígtun Mynd 2 Oraperl. Oraperl er PD forrit (upphaflega Perl en nú með viðbótum fyrir Oracle og SQL). Þetta er forritunarmál sem hentar vel fyrir skýrslugerð og runu- vinnslur. Enn fremur noturn við SQL*Forms og SQL*MENU frá Oracle. Mál eins og SED og AWK eru einnig notuð. Við höfum einnig tölvert af að- keyptum hugbúnaði. Þar má nefna pakka eins og SAS og Splus fyrir mótald fyrir farsíma og gengur það ágætlega sé skipið ekki of langt frá landi. Hér er um að ræða net- samband (TCP/IP) byggt á upp- hringibeini (router). I rannsóknaskipunum eru ýmis stjórn- og rannsóknartæki sem tengjast tölvum. Skipstjórarnir hafa MAC tölvu með hugbúnaði sem heitir Macsea. Macsea er notað til þess að skrá ýmsar upp- lýsingar um siglingar skipsins og einstök tog vegna rannsókna og eins til þess að kortleggja togin. I skipunum eru notuð bergmáls- tæki sem tölvuskrá mælingar og eru niðurstöður þeirra notaðar til þess að aðstoða við stofnstærðar- mælingar. Þetta kerfí notar Ingres gagnagrunnskerfi fyrir gagna- söfnun. Sondutæki er notað til þess að taka sjósýni. Tækinu er sökkt í sjó og tekin sýni á mismunandi dýpi. Það er tölvutengt og sendir tækið boð til tölvu um borð í skipinu um hita og seltu sjávar þar sem hvert sýni er tekið. Síðan er unnið nánar úr þessum gögnum og þau tengd öðrum mælingum sem eru gerðar á þessum sjósýnum t.d. eru ýmis sölt og svifþörungar mæld í sýn- unum. Hafrannsóknastofnunin rekur nokkur útibú um landið. Útibúið á Akureyri er nú tengt inn á tölvu- kerfi Fiskistofu um Internet, og stefnt er að því að tengja öll útibúin en tengingaraðferð er ekki ákveðin. Næstu viðfangsefni Það er stefna tölvusviðs að vera áfram í Unix umhverfi. Það er opið og sveigjanlegt. Þau verkefni sem eru framundan eru tölvuvæðing veiðieftirlitsmanna, hraðvirkari og betri tengingaraðferðir fyrir hafnir o.fl. aðila. Einnig er fyrirhuguð notkun Málabrunns fyrir fleiri stofnanir ef hann reynist vel. Nú er verið að smíða nýtt Lóðskerfi, Lóðs II, sem keyrir undir Win- dows. Stefnt að að því að setja það upp hjá höfnunum seinna á þessu ári. Lóðs II er samvinnuverkefni Hafnasambandsins, sjávarútvegs- ráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Fiskistofu. Verk- efnið var boðið út og er nú í vinnslu Auðun Sæmundsson er forstöðumaður tölvu- sviðs Fiskistofu Tölvumál - 39

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.