Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1995, Síða 41

Tölvumál - 01.04.1995, Síða 41
Apríl 1995 auknum gæðakröfum hefur Tækni- val hannað gæðaeftirlitskerfi, sem safnar öllum upplýsingum og raðar þeim á skýrslur eftir forskrift og veitir stjórnendum ómetanlegar upplýsingar í formi samantekta ástandsskráninga og gæðaskýrslna yfír valið tímabil. Miðlæg gæðahandbók Gæðahandbók fyrirtækisins er virk inn í gæðaeftirlitskerfinu, og geta notendur alltaf kallað á verk- lagsreglur, skoðunarleiðbeiningar og/eða viðbragðaleiðbeiningar frá þeim stað sem þeir eru á innan kerfisins. Töluverð óþægindi geta verið við að leita uppi viðbragða- leiðbeiningar þegar eitthvað kemur upp á hjá mælingamanni og freist- ingin mikil að stinga afbrigðilegum mæligildum undir stól! Þægindin við að hafa gæðabókina innbyggða í kerfinu eru mikil og viðhald hennar einfalt. Gæðahandbók fyrirtækisins er auk þess alltaf við hendina hjá öllum notendum kerfis- ins, en ekki bara upp í hillu hjá gæða- og framkvæmdastjóra. Skjámyndastýrt vinnslueftirlit Vinnslueftirlitskerfið byggir á samspili hráefnis-, vinnslu-, og afurðakerfis Hafdísar, svo og iðn- tölvu og nemum tengdum henni. Nemarnir eru þá settir upp við þau tæki sem vakta á, eins og t.d. færi- bönd, kælibúnt, sjóðara, laus- frysta, lofthitara, loftræstingar, raf- orku- og/eða vatnsinntök til að mæla vatnsnotkun. Nemarnir skila í sífellu upplýs- ingum sem færast sjálfvirkt inn í vinnslueftirlitið, svo og gæðaeftir- litið þar sem við á. Notandi getur gripið inn í, og stoppað eða breytt einstökum þáttum vinnslunnar beint frá skjánum á einfaldan hátt. Kcríið er einnig með virkar að- varanir, þannig að ef eitthvað fer út fyrir þann ramma er notandi Yfirsýn stjórnenda hefur skilgreint, kemur aðvörun á skjá, eða sírena/blikkljós/ sjálfvirkar hringingar í símboða. Þetta veitir stjórnendum verulegt öryggi og leyfir þeim að einbeita sér að atriðum er bæta þarf, en ekki að vera sífellt að skoða hluti sem eru innan gæðamarka, og þar af leiðandi í lagi. Rekjanleiki Til að skapa rekjanleika er fylgst með hráefninu/afurðinni frá byrjun til enda og ástandssaga þess skráð. Þessar skráningar eru tíma- merktar, og tengja þannig ástand vinnslunnar sem iðntölvan er búin að safna í gegnum nemana, við gæðaskráningarnar sem skráðar hafa verið inn í gæðaeftirlitið með aðstoð handtölvu, fastrar skrán- ingarstöðvar, skráningarpunkta frá iðntölvunni, eða handvirkra skrán- inga. Þetta skapar möguleika í rekjanleika afurðarinnar og er hægt að sjá, með því að skoða strika- merkið af afurðinni, hvaða dag varan var framleidd, við hvaða umhverfisástand, hvaða hráefni var notað, hvaða bátur landaði því, gæðamat og gæðaskýrslur hrá- efnisins, og við hvaða hitastig það var geymt í kæli. Einnig er á auð- veldan hátt hægt að sjá gallatíðni vinnslunnar þegar afurðin varð til, gæðaskýrslur afurðarinnar og hverjir voru á vakt umræddan vinnudag eða daga, svo eitthvað sé nefnt. Yfirsýn Eins og áður sagði er kerfið skjámyndastýrt, og geta yfirmenn verksmiðjunnar séð á svipstundu ástand einstakra þátta á skjánum í rauntíma og stýrt og eða breytt þeim án þess að fara á staðinn. Stærstu kostirnir eru augljósir. Aukin gæði framleiðslunnar, bætt nýting, aukið öryggi í vinnslunni, fullkomin yfirsýn stjórnenda í rauntíma og nákvæm ástandssaga er með þessum hætti skráð á rekjanlegu formi. Gæðastefna fyrirtækisins er framkvæmd á skýran og virkan hátt, og það þýðir síðasten ekki síst, ánægðari kaup- endur. Möguleikar á sérhæfingu í vinnslu og markaðsetningu aukast verulega, og hærra afurðaverð fylgir. Hafdís 2.0 er að sjálfsögðu íslensk framleiðsla, hönnuð og unnin af starfsmönnum Tæknivals í samvinnu við nokkur af'stærstu fiskvinnslu- og útvegsfyrirtækjum landsins. Bjarni Hákonarson er markaðsfulltrúi hjá Tœbiival hfi Tölvumál - 41

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.