Tölvumál - 01.07.2000, Page 3
Tímarit Skýrslutæknifélags íslands
-®©~
TCK.VUMAL
Bluetooth: Blátönn inn við beinið
Einar H. Reynis og Arnaldur F. Axfjörð
6
Þekkingarstjórn með hjálp gervigreindar
Guðmundur Guðnason
Rafræn viðskipti: SMT samskipti Eimskips og Landsbanka íslands Guðmundur Hermannsson 16
Af netfangaskrám Magnús Hauksson 19
Symbian og farandfyrirtæki Susie Helme 23
Gögn verða að upplýsingum Björn Þór Jónsson 27
Konur í íslenska upplýsingasam- félaginu Guðbjörg Sigurðardóttir 30
Ráðstefnur og sýningar 33
ISSN-NÚMER:
1021-724X
í þessu tölublaði er víða komið við og meðal efnis er grein um
stýrikerfið EPOC frá Symbian en fyrirtækið tók góðfúslega í beiðni
Tölvumála um að segja lesendum blaðsins frá þeim verkefnum sem
er verið að vinna að þar á bæ á sviði minnstu tölvanna.
Leitarvélar koma við sögu meira og minna hjá hverjum einasta
notanda á Netinu. Mikil gróska er í þeim geira og ánægjulegt að
innlendir aðilar hafa lagt sitt af mörkum til að auðvelda okkur hinum
leit en umfjöllun um þetta er einnig að finna í þessu tölublaði.
Leitarvélar taka á sig margvíslegar myndir. Einhver umtalaðasta
leitarvélin i dag er Google.com, sem er alveg undrasnögg og þykir
hafa margt til brunns að bera en áhugamenn um leitarvélar almennt
ættu að kíkja á vefsetrið Searchenginewatch.com. Til viðbótar við
þessar þekktu er allur sá urmull sem er fyrir staðbundnar leitir á vef-
setrum viðkomandi aðila en mögulegt er að nota forrit ásamt
sérstökum skrám til að leita þar án þess að fara inn á vefsetrin fyrst
og sömuleiðis er hægt að leita að efni á tugum vefsetra í einu.
Það má leiða að því sterkar líkur að án leitarvéla væri oftar en
ekki mjög torvelt, ef ekki ómögulegt, að finna upplýsingar og þar
fyrir utan slæðist oft ýmislegt merkilegt með í niðurstöðunni.
Tölvumál fara núna í sumarfrí en best að nota fyrst leitarvél til að
finna flug og gistingu á uppáhalds dvalarstaðnum.
Einar H. Reynis
Tölvumál
3