Tölvumál - 01.07.2000, Blaðsíða 12

Tölvumál - 01.07.2000, Blaðsíða 12
Blátönn táknar annað hvort IrMC biðlara eða IrMC miðlarahugbúnað. Þrísíminn Símtæki sem smíðað er samkvæmt þessari eig- indalýsingu má tengja við þijá mismunandi þjónustuaðila. f fyrsta lagi getur síminn virkað sem þráðlaus sími sem tengist almenna tal- símakerfinu hvort sem er heima eða á vinnustað og sætir gjöldum sem um hefð- bundin síma væri að ræða. í þessu tilfelli getur verið um að ræða upphringingu í gegnum grunnstöð, upphringingu beint milli tveggja tækja f gegnum grunnstöðina og aðgang að viðbótarþjónustum sem boðnar eru á ytra netkerfi. í öðru lagi geta símtækin tengst beint við önnur símtæki í þeim tilgangi að virka sem talstöðvar eða framlenging á handtólum. Með tilvísun til innanhússkallkerfa sætir tengingin engum gjöldum. í þriðja lagi getur símtækið virk- að sem farsími sem tengist farsímakerfinu og sætir gjöldum samkvæmt því. Sami samskiptastaflinn er notaður þegar sím- tækið virkar sem þráð- laus sími og sem kall- kerfi. Samskiptastaflinn er sýndur á mynd 7. Hljóðflæðið er tengt beint við samskipta- reglu grunnbandsins eins og sýnt er með ör- valínu framhjá L2CAP. Hið fulllcomna höfuðtól Höfuðtólið má tengja þráðlaust í þeim til- gangi að virka sem inntak og úttak hljóðs fyrir fjarlægt tæki. Höfðutólið eykur hreyfanleika notandans samhliða því að gefa næði fyrir einkasímtöl. Sem almenn dæmi eru kringumstæður þar sem höfuð- tólið er notað sem inntak og úttak hljóðs fyrir farsíma, þráðlaust símtæki eða ein- menningstölvu. Samskiptastaflanum fyrir þetta notkunarlíkan er lýst á mynd 8. Hljóðflæðið tengist beint við samskipta- reglu grunnbandsins eins og sýnt er með örvalínu framhjá L2CAP. Höfuðtólið þarf að geta sent AT-skipanir og tekið á móti Mynd 7 stöðukóta. Með þessum eiginleika getur höfuðtólið svarað hringingum og slitið símtölum án þess að eiga þurfi við sím- tækið. Samantekt Samskiptareglur Bluetooth eru ætlaðar fyrir viðföng í örri þróun sem byggja á Bluetooth tækninni. Lægri lög sam- skiptastafla Bluetooth eru hönnuð til að gefa sveigjanlegan grunn fyrir frekari þró- un samskiptareglna. Aðrar reglur, eins og RFCOMM, eru gripnar úr öðrum sam- skiptareglum og þeim er einungis lítillega breytt vegna Bluetooth. Samskiptareglur efri laga eru notaðar án breytinga. Með þessu er hægt að endumýta fyrirliggjandi viðföng þannig að þau virki með Blue- tooth tækninni og auðveldar er að tryggja samvirkni. Tilgangur hönnunarlýsingarinnar er að hvetja til þróunar samvirkandi viðfanga í samræmi við forgangsröðun notkunarlík- ana hjá markaðshópi SIG. Hönnunarlýs- ingin þjónar hins vegar líka þeim tilgangi að vera rammi fyrir frekari þróun. Söluað- ilar eru eðlilega hvattir til að finna upp fleiri notkunarlíkön innan þessa ramma. Með Bluetooth tækninni ásamt getu tölvu- og samskiptatækja í dag eru möguleikam- ir fyrir ný þráðlaus viðföng framtíðarinnar óendanlegir. Einar H. Reynis er ritstjóri Tölvumála og vinnur að þróunarmálum hjá Landssímanum. Arnaldur F. Axfjörð situr í ritstjórn Tölvumála og starfar hjá Áliti sem rekstrarstjóri og ráðgjafi. 12 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.