Tölvumál - 01.07.2000, Qupperneq 9
Blátönn
sambandsfrjálsa gagnaþjónustu til sam-
skiptareglna efri laga með hæfni til að
flétta samskiptareglur, hlutunar- og smöl-
unaraðgerðum og hópútdrætti. L2CAP
gerir viðföngum og samskiptareglum í efri
lögum kleift að senda og taka á móti
L2CAP pökkum að lengd allt að 64 kB.
Þó grunnbandsreglan láti í té SCO og
ACL greinagerðimar þá er L2CAP einung-
is skilgreint fyrir ACL greinar og stuðning-
ur fyrir SCO greinar er tilgreindur í Hönn-
unarlýsingu Bluetooth útgáfu 1.0.
Samskiptaregla þjónustuskynjunar
(SDP)
Skynjunarþjónustur eru þýðingarmikill
hluti af innviðum Bluetooth. Þessar þjón-
ustur em gmnnurinn fyrir öll notkunarlík-
önin. Með samskiptareglu þjónustuskynj-
unar SDP má gera fyrirspumir um upplýs-
ingar um búnað, þjónustur og þjónustueig-
inleika og setja upp tengingu milli tveggja
eða fleiri Bluetooth tækja í framhaldi af
því. SDP er skilgreint í hönnunarlýsingu
SIG fyrir samskiptareglu þjónustuskynj-
unar.
Samskiptaregla í stað kapals
SFCOMM
RFCOMM er samskiptaregla sem hermir
eftir raðtengingu og er byggð á ETSI
07.10 hönnunarlýsingunni. Þessi sam-
skiptaregla sem kemur í stað kapals herm-
ir eftir RS-232 stýri- og gagnamerkjum
yfir gmnnband Bluetooth og leggur til
flutningshæfni fyrir þjónustur í efri lögum
(t.d. OBEX) sem nota raðtengingu sem
flutningsmiðil. RFCOMM er tilgreint í
hönnunarlýsingu fyrir RFCOMM með
07.10.
Samskiptaregla talsímastjórnunar (TCS)
Tvíundarstýring talsíma
Samskiptareglan fyrir tvíundarstýringu
talsíma (TCS Binary eða TCS BIN), sem
er bitabundin samskiptaregla, skilgreinir
stjómmerki uppkalla sem þarf til að stofna
tal- og gagnasambönd milli Bluetooth
tækja. Reglan skilgreinir auk þess umsjón-
araðferðir fyrir hreyfanleika til að með-
höndla fjölda Bluetooth TCS tækja. Sam-
skiptareglan fyrir tvíundarstýringu talsíma
er skilgreind í hönnunarlýsingu fyrir sam-
skiptareglu talsímastjómunar Bluetooth
sem er byggð á ITU-T tilmælum Q.931 og
notar samhverfuskilyrði í viðauka D í
Q.931.
AT-skipanir í talsímastýringu
Bluetooth SIG hópurinn hefur skilgreint
mengi AT-skipana sem nota má til að stýra
þráðlausum símum og mótöldum í fjöl-
notalíkönum (sjá kaflana Alnetsbrú og
Hið fullkomna höfuðtólið). í Bluetooth
em þær AT-skipanir sem notaðar em
byggðar á ITU-T tilmælum V.250 og ETS
300 916 (GSM 07.07). Auk þess em skip-
animar sem notaðar em fyrir myndsendi-
þjónustur tilgreindar með útfærslunni.
Þessar skipanir geta verið:
• Fax Class 1.0 TIA-578-A og ITU T.31
Service Class 1.0
• Fax Class 2.0 TIA-592 og ITU T.32
Service Class 2.0
• Fax Service Class 2 - engin staðall
Aðfengnar samskiptareglur
PPP
f Bluetooth tækninni er PPP hannað til að
keyra yfir RFCOMM til að setja upp beint
samband. PPP er samskiptaregla IETF
(Internet Engineering Task Force) fyrir
beintengingar (Point-to-Point Protocol) og
PPP-netvirkni er aðferðin til að taka IP
pakka til eða frá PPP laginu og setja þá á
staðametið (LAN).
TCP/UDP/IP
Þessar stöðluðu samskiptareglur em skil-
greindar af IETF og notaðar fyrir sam-
skipti yfir Alnetið. TCP/IP staflar hafa
komið fram í margskonar tækjum eins og
prentumm, handtölvum og hreyfanlegum
handtækjum, enda em þeir taldir mest not-
aða fjölskylda samskiptareglna í heimin-
um í dag. Aðgengi að þessum reglum er
óháð stýrikerfi þó útfærslur byggi yfirleitt
á tengilslíkani fyrir forritunarskil. Út-
færsla þessara staðla í Bluetooth tækjum
leyfir samskipti við sérhvert annað tæki
sem tengt er Alnetinu: Bluetooth tækið,
hvort sem það er Bluetooth handtæki eða
gagnaaðgangstæki sem dæmi, er þá notað
sem brú yfir á Alnetið.
TCP/IP/PPP er notað í öllum útfærslum
á Alnetsbrú í Bluetooth 1.0 og fyrir OBEX
í komandi útgáfum. UDP/IP/PPP er einnig
í boði sem flutningur fyrir WAP.
Tölvumál
9