Tölvumál - 01.07.2000, Qupperneq 10

Tölvumál - 01.07.2000, Qupperneq 10
Blátönn A/leð jbví oð ía/ca upp vCard og vCalendar stuðlar SIG að frekari framgöngu á sam- skiptum persónuupp- lýsinga samkvæmt þessum vel skil- greindu og mikið not- uðu sniðum OBEX samskiptaregla IrOBEX (stytt í OBEX) er setu-sam- skiptaregla sem þróuð var af IrDA(7«- frared Data Association) til að skiptast á hlutum á einfaldan og sjálfvirkan hátt. OBEX, sem lætur í té sömu grunnvirkni og HTTP en á mun einfaldari hátt, notar biðlara/miðlarar líkan og er óháð flutn- ingstækni og forritaskilum flutningsvið- fanga, að því gefnu að það útfæri áreiðan- legan flutningsgrunn. Ásamt samskipta- reglunni sjálfri, sem er málfræðin fyrir OBEX samskipti milli tækja, þá lætur OBEX einnig í té líkan fyrir framsetningu á hlutum og aðgerðum. Auk þess skil- greinir OBEX samskiptareglan hlut fyrir möppulistun sem notaður er til að rása um innihald mappa á fjarlægum tækjum. RFCOMM er í fyrsta áfanga eina flutn- ingslagið sem notað er fyrir OBEX. Lík- legt er að útfærslur í framtíðinni styðji líka TCP/IP sem flutningslag. Snið innihalds. vCard og vCalendar eru opnar hönnunarlýsingar sem þróaðar eru af Versit Consortium of núna stýrt af Internet Mail Consortium. Þessar hönnun- arlýsingar skilgreina snið á rafrænu nafn- spjaldi og færslum í persónulegar dagbæk- ur. vCard og vCalendar skilgreina ekki neina flutningstækni heldur einungis það snið sem gögnin eru flutt á. Með því að taka upp vCard og vCalendar stuðlar SIG að frekari framgöngu á samskiptum per- sónuupplýsinga samkvæmt þessum vel skilgreindu og mikið notuðu sniðum. Hægt er að fá vCard og vCard hönnunar- lýsingar hjá Internet Mail Consortium og þær eru í frekari þróun hjá IETF. Önnur innihaldsnið sem flutt eru af OBEX í Bluetooth eru vMessage og vNote. Þessi snið eru líka opnir staðlar og eru notuð við samskipti á skilaboðum og minnispunktum. Þau eru skilgreind í IrMC hönnunarlýsingunni, sem einnig skilgreinir snið fyrir dagbókar- skrámar sem þörf er á þegar verið er að sam- stilla gögn milli tækja. WAP Hægt er að útfæra hulin reiknilíkön fyrir notkun með WAP eiginleikum. Bluetooth sem handhafi WAP er skilgreint í hönnunarlýsingunni Samvirknikröfur fyrir Bluetooth sem handhafa WAP. WAP vettvangurinn (Wireless Appli- cation Protocol Forum) er að semja hönn- unarlýsingu samskiptareglu fyrir þráðlaus samskipti sem virkar yfir ýmiskonar þráð- lausa víðnetstækni. Markmiðið er að færa innihald Alnetsins og talsímaþjónustur í stafræna farsíma og annan þráðlausan endabúnað. Á mynd 2 er samskiptareglu- stafli WAP innviðanna sýndur. Hugmyndin á bakvið valið á WAP er að endurnýta efri hugbúnaðarviðföngin sem þróuð eru fyrir viðfangaumhverfi WAP (WAE: WAP Application Environment). Þau innihalda WML og WTA rápara sem geta myndað gagnkvæm tengsl við við- föng á einmenningstölvum. Með því að smíða viðfangagáttir sem miðla milli WAP miðlara og einhvers annars viðfangs á einmenningstölvu er mögulegt að útfæra margskonar hulda reiknivirkni eins og fjarstýringu, gagnaflutning frá einmenn- ingstölvu til handtækis o.fl. WAP miðlarar leyfa einnig bæði efnisgjöf og efnissókn milli einmenningstölvu og handtækis og glæða þannig hugtök eins og upplýsinga- standur. Bygging WAP opnar einnig möguleika á sérbyggðum viðföngum fyrir handtæki sem nota WML og WMLScript fjölvamál- ið sem algild þróunartól. Snið innihalds. Innihaldssniðin sem studd eru fyrir WAP yfir Bluetooth eru WML, WMLScript, WTA atburður, WBMP og vCard/vCal. Þau eru öll hluti af WAE. Frekari upplýsingar um WAE má finna í Hönnunarlýsingu WAP vettvangs- ins. Notkunarlíkön Bluetooth og samskipta- reglur I þessum hluta er stutt lýsing á þeim notk- unarlíkönum sem markaðshópur SIG setur í forgang. Sérhverju notkunarlíkani fylgir eigindalýsing. Eigindalýsing skilgreinir samskiptareglumar og samskiptasérkenni sem styðja tiltekið notkunarlíkan. Blue- tooth SIG hefur tilgreint eigindalýsingu fyrir þessi notkunarlíkön. Auk þessara lýs- inga em fjórar almennar eigindalýsingar sem þær nýta á margvíslegan hátt. Hér er átt við lýsingu fyrir almennan aðgang 10 Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.