Tölvumál - 01.07.2000, Qupperneq 23

Tölvumál - 01.07.2000, Qupperneq 23
Symbian Symbian og farandfyrirtæki Susie Helme Gífurlega hröð út- breiðsla farsímatækn- innar um heim allan ýtir á samruna farsím- ans og borðtölvunnar Eftir því sem nútíma vinnuafl er meira á ferðinni, sjá þeir sem fást við upplýsingatæknistjómun að samtvinnun þráðlausra tækja með skrif- stofukerfum gæti leitt til aukinnar fram- leiðni. En hvaða leiðir eru upplýsinga- stjómendum færar að farand (e: mobile) tölvutækni fyrirtækja? Árið 2002 verður ekki greint milli far- andfjarskipta og tölvutækni á sama hátt og nú er gert. I könnun sem gerð var á Netinu hjá 400 fyrirtækjum sem notuðu Lotus Notes/Domino voru t.d. 90% þátttakenda á því að farandtæknibúnaður yrði nokkuð mikilvægur eða mjög mikilvægur í upp- lýsingastjómun innan fyrirtækjanna næstu tvö árin. Nú þegar sjást merki um að þessi eðlisbreyting sé hafin. Nú eru mörg tæki á markaði þar sem samskipta- og tölvutækni er meira og minna samtvinnuð. Þar á með- al em tæki eins og MC218 frá Ericsson, Psion 5mx og Revo, 9110 frá Nokia, ýmis búnaður frá Palm og nýjasta Windows-af- sprengi Microsoft, Pocket PC. Gífurlega hröð útbreiðsla farsímatækn- innar um heim allan ýtir á samruna far- símans og borðtölvunnar. Samkvæmt upp- lýsingum frá GSM-Alþjóðasambandinu (GSM Association), eru farsímanotendur um 500 milljónir. Þar af eru 300 milljónir GSM-notenda, í Evrópu, Afríku og Asíu. Á íslandi, þar sem upphaflega var notaður norræni farsímastaðallinn, NMT, hefur farsímanotkun vaxið hröðum skrefum síð- an GSM var tekið í notkun þar 1994. Á næstu fjóram ámm eftir það náði GSM- síminn yfirhöndinni og em nú þrír GSM- notendur á móti hverjum NMT-notanda samkvæmt upplýsingum frá Landssíman- um. Símafyrirtækin sáu fljótt möguleikana sem fólgnir eru í því að leyfa notendum að geta sent stórar gagnasendingar um loftið. Stigvaxandi vinsældir SMS-skilaboða knýja enn á um þetta. GSM-Alþjóðasam- bandið spáir því að í lok þessa árs verði sendir u.þ.b. tíu milljarðar GSM-skilaboða í hverjum mánuði. En stórar gagnasend- ingar í lofti em seinlegar á þeim hraða sem nú gildir því GSM900/1800-net leyfa aðeins sendingarhraðann 9,6 Kbps. En fjarskiptaiðnaðurinn hefur bmgðist við eftirspuminni með WAP (Wireless App- lication Protocol), samskiptareglum í nýj- um farsímum sem vafra má með um Net- ið. Því verður möguleiki á farandneti - fyrir aðgang og notkun innri neta fyrir- tækja t.d - bráðum nauðsynlegur þáttur í skipan upplýsingakerfa. Hvað þurfa þá stjómendur upplýsingakerfa að hafa í huga þegar farandfjarskipti og stefnur í gagnavinnslu fær aukið vægi? Að útbúa pakka Tilkoma gagnapakkaþjónustu gerir nú kröfur um nýjar gerðir tækja þar sem far- andfjarskipti og tölvumarkaður rennur saman. Um heim allan eru símafyrirtækin farin að skipta úr annarrar kynslóðar net- um (2G) yfir í meiri sendingarhraða, yfir í 2.5G sem notar GPRS (General Packet Radio Service) eða EDGE (Enhanced Data for GSM Evolution), sem senda gagnapakka á hraðanum 172,2 Kbps - 384 Kbps. Þriðju kynslóðar net (3G) verða ekki orðin almenn í Evrópu fyrr en eftir 2-3 ár, en þar er heitið gagnahraða allt að 2 Mbps. Þá yrðu sendingar á margmiðlun- arstreymi (video streaming) og önnur sér- hæfð þjónusta möguleg. í nánustu framtíð gera því gagnapakka- net og síaukið framboð símafyrirtækja á bandbreidd í farandfjarskiptum kleift að vrkka út þjónustusviðið - úr einfaldri tal- símaþjónustu í fjölbreytta (farand) þjón- ustu og viðföng, sambærilegt við það sem gerist í borðtölvu. En framleiðendur átt- uðu sig á því að ef þessi nýja tækni ætti að nýtast þyrfti nýja stefnu til að koma far- andtækninni inn í fjarskiptaheiminn. Áttu þeir þá að þróa eigin lófatölvur (PDA) í þessu skyni eða leitast við að koma á framleiðslustaðli? Um þetta leyti vom fyr- irtæki eins og Microsoft að reyna að ná markaðshlutdeild með Windows CE tækj- um. Palm hafði náð yfirráðum á markaðn- um með lófatölvur en Psion var með mesta hlutdeild í handtölvum. Tölvumál 23

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.