Tölvumál - 01.07.2000, Blaðsíða 32
Upplýsingasamfélagið
Hvetja konur til að
teggja út á upplýs-
ingahraðbrautina
og sækja þangað
menntun, störf og
launajöfnuð
Hvað er tíl róða?
Hvemig er hægt að fá fleiri konur til að
stunda nám og koma til starfa í upplýs-
ingatækni?
Opnum umræðuna - foreldrar, kennar-
ar, námsráðgjafar.
Mikilvægt er að við horfum á mótun
unga fólksins og það sem gerist á heimil-
unum. Við þurfum að spyrja spuminga
eins og:
• hafa stelpur og strákar jafn góðan að-
gang að tölvunnni heima?
• hvar er heimilstölvan staðsett - er hún
e.t.v. í herbergi stráksins en ekki
stelpunnar?
• fá strákamir frekar tölvubúnað í gjafir
en stelpur?
• fær stelpan e.t.v. þau óbeinu skilaboð
frá foreldrum sínum að tölvur og tækni
séu fyrir karla fremur en konur?
• hvaða skilaboð erum við í daglegu tali
að senda stúlkum um samleið kvenna
og tækni?
Hvernig er málum háttað í skólunum?
• koma strákamir í skólann með meiri
fæmi og ná þeir að ýta stelpunum til
hliðar?
• upplifa stelpumar minnimáttarkennd
gagnvart strákum vegna þessa?
• ná kennarar að hvetja stúlkur nægjan-
lega til dáða í tölvuheimi?
Hvaða skilaboð koma frá námsráðgjöfum?
• hvemig meta og kynna námsráðgjafar
störf í upplýsingatækniiðnaði?
• er þeim ljóst hversu gífurlega fjölbreytt
störf eru í boði fyrir fólk með sérþekk-
ingu á upplýsingatækni?
Finnum svör við þessum spurningum -
hver á sínum heimavelli.
Hvetjum fyrirtæki - fjölskylduvæn
stefna
Þau fyrirtæki sem í nútíð eða framtíð
þurfa að laða til sín vinnuafl með þekk-
ingu á upplýsingatækni ættu að móta og
kynna aðlaðandi vinnuumhveríl. Fyrirtæki
sem kemur til móts við þarfir fjölskyld-
unnar með sveigjanlegum vinnutíma,
möguleikum á að vinna hluta vinnunnar á
tölvu heima og sveigjanleika vegna veik-
inda barna stendur vel í samkeppni um
hæfileikafólk sem vill ná sáttum milli fjöl-
skyldunnar og vinnunnar. Fjölskyldu-
stefna fyrirtækja er því afar mikilvægur
þáttur í því að laða að og halda í hæfar
konur með tækniþekkingu. Vitneskjan um
slíkt vinnuumhverfi kvenna í tæknistörf-
um og jákvæða möguleika á að samræma
fjölskyldulíf og starfsframa ætti að hvetja
ungar konur til að leggja fyrir sig nám á
þessu sviði.
Því vil ég eindregið hvetja fyrirtæki
sem mjög eru háð tæknimenntuðu starfs-
fólki til að móta og kynna fjölskyldustefnu
af þessu tagi.
Breytum ímynd starfanna - sjá reynslu-
sögur (http://www.simnet.is/konur/)
Umræða og áfamhaldandi kynning á
þeim störfum sem eru í boði fyrir tækni-
menntað fólk er mikilvægur þáttur í því að
auka hlut kvenna í mótunarstörfum í upp-
lýsingatækniiðnaði. Til þess að skapa al-
mennan umræðugrundvöll hefur verið
safnað saman 30 reynslusögum um konur
sem stunda nám eða starfa á sviði upplýs-
ingatækni. Þessar sögur og ýmsar töluleg-
ar upplýsingar er hægt að skoða á vefnum
http://www.simnet.is/konur/ sem settur var
upp í tilefni ráðstefnunnar Konur og upp-
lýsingasamfélagið, sem haldin var í apríl
2000. Foreldrar, kennarar og námsráðgjaf-
ar eru eindregið hvattir til að skoða þenn-
an vef.
Skipuleggjum aðgerðir
Ymsar aðgerðir eru þegar í gangi sem
dæmi má nefna:
• Átak til að fjölga konum í tækni- og
raungreinum á háskólastigi og aðgerðir
til að auka hlut kvenna í forystustörfum.
• SÍVIT- þróunarverkefni um konur og
upplýsingatækni.
Öll verkefni af þessu tagi eru mikilvæg
lóð á vogarskálina.
Guðbjörg Sigurðardóttir er formaður
Verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið
32
Tölvumál