Bókasafnið - 01.02.1978, Blaðsíða 14

Bókasafnið - 01.02.1978, Blaðsíða 14
og gerir hagkvæmnisathuganir varðandi þau. Ongstad lagði mikla áherslu á að þekking á tölvunotkun yrði að vera hluti af menntun hvers bókavarðar ekki síður en flokkun og skráning. Bókaverðir yrðu að hafa næga þekkingu á þessari tækni til þess að geta hagnýtt sér hana og unnið með kerfisfræð- ingum og öðru fólki sem hefur sérmenntun á því sviði. Að öðrum kosti yrðu þeir óhjá- kvæmilega eftirbátar annarra við miðlun þekkingar. Hann sagði frá samstarfi því sem er á milli rannsóknarbókasafna í Noregi um tölvunotkun og sagði að víða væri mikil þörf á endurskipulagningu safna með tilliti til hinnar nýju tækni. Slíkt væri þó víða erfitt í framkvæmd. Þá taldi Ongstad að starfs- hættir við flokkun og skráningu á Norður- löndum væru það ólíkir frá landi til lands að erfitt væri að koma á fót tölvuvæddri sam- vinnu bókasafna milli þeirra (t.d. við NOSP-áætlunina, sjá síðar). Fyrirlesturinn eftir hádegi þennan dag flutti Ben Rugaas, rektor Statens bibliotek- skole. Fjallaði hann um notendafræðslu og leiðir til þess að gera hinn almenna notanda handgenginn bókasöfnum og öðrum upp- lýsingamiðstöðvum. Slíkt taldi hann gegna tvíþættum tilgangi, annars vegar létti það notandanum gagnaleit og hins vegar létti það störf bókavarða. Ævinlega yrði þó að hafa það að leiðarljósi að upplýsingaleit bæri ekkert markmið í sjálfri sér heldur væri hún tæki til þess að leysa tiltekin verkefni með öflun réttrar þekkingar. Rugaas taldi að notendafræðslu þyrfti að hefja þegar á skyldunámsárunum og ættu bæði kennarar og bókaverðir að sjá um hana. Slík fræðsla ætti að vera skyldubundinn hluti námsins og heppilegt væri að nemendur fræddust um gagnaleit í hverri námsgrein um leið og hún væri kennd. Rugaas taldi að í hverjum skóla fyrir ofan ákveðna stærð ætti að vera upplýsingasér- fræðingur (bókavörður). Hann sagði að langt væri frá því að því marki væri náð í norskum skólum og að starf slíks fólks og notendafræðsla væri ekki metið að verð- leikum enda fjárveitingar eftir því. Skóla- menn hefðu heldur ekki nægan skilning á því hve skólabókasöfn hefðu þýðingarmiklu hlutverki að gegna. Laugardaginn 13. ágúst var farið í kynn- isferð til bæjarins Fredrikstad sem er við Oslófjörð sunnanverðan, við ós árinnar Blommu. Var fyrst skoðað bókasafn bæjar- ins og síðan snæddur hádegisverður í boði bókasafnsstjórnarinnar. Að því loknu var elsti hluti bæjarins skoðaður en hann var reistur á síðari hluta 16. aldar og átti að vera vígi gegn ásókn Svía. Á heimleiðinni var komið við í Galleri E 15 á Jeloya við Moss og skoðuð málverkasýning en þar eru þekktir sýningasalir. Síðari vika námskeiðsins hófst að morgni mánudagsins 15. ágúst með því að Anne Grete Holm-Olsen, forstöðumaður Norsku deildarinnar í Háskólabókasafninu í Osló, hélt fyrirlestur um Scandia-áætlunina, stöðu hennar og horfur. Scandia-áætluninni var hleypt af stokk- unum árið 1956 og átti hún að stefna að samræmingu aðfanga í norrænum rann- sóknarbókasöfnum. Söfnin áttu að deila með sér ábyrgð á efnisflokkum, þannig að hvert safn drægi að allt mikilvægt efni sem út kæmi í þeim flokki er það bar ábyrgð á. Þetta heppnaðist ekki sem skyldi. Kom þar margt til, ekki síst naumur fjárhagur safn- anna. Tilhneiging varð til þess að kaupa einungis það efni sem nauðsynlegt þótti á hverjum stað en sleppa því sem kaupa skyldi fyrir heildina. Aftur á móti hefur bókfræði- leg samvinna verið þó nokkur og nokkrar samskrár í einstökum greinum hafa verið gefnar jafnaðarlega út. Miðstjórn var tak- mörkuð og laus í reipunum. Árið 1972 var sett á stofn Hovedkomité for Scandiaplanen. Hlutverk þeirrar nefnd- ar var að gera úttekt á því verki sem unnið 14

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.