Bókasafnið - 01.02.1978, Blaðsíða 38
Fréttir í stuttu máli
Norrænn sumarskóli fyrir bókaverði 1978.
Norrænn sumarskóli fyrir bókaverði
verður haldinn í Osló í húsakynnum norska
bókavarðaskólans dagana 26. júní — 7. júlí.
Skólinn er í ár ætlaður bókasafnsfræðingum
er hafa hug á að stunda kennslu í bóka-
safnsfræði eða sem nú þegar stunda kennslu
í greininni. Upplýsingar um skólann, náms-
tilhögun og möguleika á fjárstyrk til þess að
standa straum af dvalarkostnaði, (en ljóst er
nú þegar að þátttakendur greiði sjálfir
ferðakostnað) hjá Else Míu Einarsdóttur, s.
91—24698 eða Þórdísi Þorvaldsdóttur, s.
91-37838.
Landsfundur íslenskra bókavarða 1978.
Eins og kunnugt er lagði aðalfundur
Bókavarðafélags íslands 1977 til að næstu
landsfundir bókavarða yrðu haldnir í sam-
ráði við Samband íslenzkra sveitarfélaga
eftir því sem hægt væri, enda var lands-
fundur bókavarða 1976 haldið í framhaldi
af ráðstefnu Sambands íslenzkra sveitarfé-
laga um almenningsbókasöfn. Þetta fyrir-
komulag gaf mjög góða raun og hafa flest
erindin á ráðstefnu sveitarstjórnarmanna
birst í málgagni þeirra, Sveitarstjórn-
armálum.
Sambandsþing íslenzkra sveitarfélaga
verður haldið dagana 4.-6. september n.k.
Það hefur þess vegna komið til tals að halda
landsfund bókavarða í tengslum við sam-
bandsþingið eða fimmtudaginn 7., föstu-
daginn 8. og laugardaginn 9. september n.k.
38