Bókasafnið - 01.02.1978, Page 18
KRISTlN INDRIÐADÓTTIR
Alþjóðlegi
barnabókadagurinn
Á undanförnum árum hefur verið lögð
meiri rækt við efni og frágang barnabóka á
íslandi en tíðkast hafði áður um langt skeið.
Umsagnir um nýjar bækur eru í flestum
blöðum og veitt eru árleg verðlaun fyrir
bestu frumsömdu og þýddu barnabækurnar
sem út koma. Ákveðnir bókaútgefendur
hafa lagt kapp á að gefa út vandaðar bækur
þó að sölusjónarmiðið ráði enn allt of miklu
um barnabókaútgáfu. í þessari grein verða
rakin lauslega tildrög Alþjóðlega barna-
bókadagsins 2. apríl og sagt frá framlagi ís-
lands til þess að styrkja markmið hans.
Þáttur alþjóðlegra
stofnana
The International Bureau of Education
(IBE) í Genf var fyrsta alþjóðlega stofnunin
sem lét kanna barnabækur um allan heim í
kringum 1930 og birti um það skýrslur upp
úr því. Áhugi á efni og útliti þeirra jókst þó
ekki verulega fyrr en eftir síðari heimsstyrj-
öldina, og á árunum 1960 til 1970 var
blómlegt samstarf á milli International
Federation of Library Associations (IFLA),
United Nations Educational, Scientific and
Cultural Organization (UNESCO), Interna-
tional Youth Library (IYL) og International
Board on Books for Young People (IBBY)
um að efla bamabókmenntir til vegs og
virðingar á alþjóðlegum grundvelli.
Einn helsti frumkvöðull og kveikja þessa
alþjóðlega samstarfs var Jella Lepman, for-
stöðumaður IYL í Munchen frá stofnun
þess 1949. Bókakostur þess safns spannar
valdar barnabókmenntir allra hluta heims á
ýmsum málum og var árið 1969 um 140.000
bindi.
Fyrir atbeina Jellu Lepman var IBBY
stofnað 18. nóvember 1951 í Zurich í Sviss
en markmið þeirrar nefndar er að efla
skilning á útgáfu og dreifingu barnabók-
mennta, bæði í einstökum löndum og landa
í milli. Nefndin í Genf reynir að tengja
starfsemi þátttökuríkja hvaðanæva úr
heiminum og hefur átt frumkvæði að ýms-
um verkefnum sem auka hróður barna-
bókahöfunda, þýðenda og teiknara. T.d.
stofnaði IBBY til fyrstu alþjóðlegu verð-
launaveitingarinnar fyrir barnabók árið
1956, H.C. Andersen verðlaunanna, sem
síðan hafa verið veitt af alþjóðadómstóli
annað hvert ár. Upphaflega voru þau veitt
fyrir einstök verk en síðan 1963 fyrir öll verk
viðkomandi höfundar. Frá árinu 1966 hafa
einnig verið veitt H.C. Andersen verðlaun
fyrir bestu bókaskreytingarnar í barnabók-
um. Sama ár voru allar þátttökuþjóðir IBBY
beðnar um að senda árlegan lista yfir bækur
sem hæfastar þættu til þýðinga á önnur mál
til höfuðstöðva nefndarinnar í Genf.
Árið 1966 fékk Jella Lepman hugmynd-
ina að Alþjóðlega barnabókadeginum sem
skyldi vera 2. apríl ár hvert, á fæðingardegi
danska skáldsins H.C. Andersen. Markmið
þessa dags er að auka alþjóðlegan skilning á
barnabókum og vekja áhuga á þeim í þátt-
tökuríkjum IBBY. Þessa dags var fyrst
minnst 1967 en frá árinu 1969 hafa einstök
þátttökuríki IBBY skipst á um að senda frá
sér alþjóðlegt ávarp til allra barna. Ýmsir
þekktir rithöfundar hafa í því skyni samið
stuttar sögur eða ævintýri. Þá hafa einnig
verið gefin út sérstök veggspjöld eins og t.d.
teikning danska teiknarans Ib Spang Olsen
við ævintýrið Elverhoj (Álfhóll) eftir H.C.
Andersen sem Danir gáfu út árið 1975 á 100
ára ártíð hans, en þá tóku þeir að sér að
minnast dagsins. Veggspjaldið var prentað
18