Bókasafnið - 01.02.1978, Page 29

Bókasafnið - 01.02.1978, Page 29
Númerin sem skráningarlyklarnir vísa á (oftast er fjórði liður bókstafur) eru einungis leitartölur, er vísa til skráningartexta í þeim raðarhluta skrárinnar. Eyða táknar tölu- stafinn einn til aðgreiningar frá bókstafnum 1 í sama dálki (fjórða lið). Fyrstu þrír tölustafirnir í leitartölunni vísa á þá örfilmu, sem geymir viðeigandi skráningartexta. Filmum með skráningar- texta er raðað í töluröð eftir þessum þriggja stafa númerum. Þegar filmu er brugðið í lesvélina koma í ljós dálkar og vísar fjórða tala (eða bókstafur) leitarnúmersins á réttan dálk, lárétt. Síðustu tölurnar vísa aftur beint á ritið sem leitað er, lóðrétt. Myndin hér að neðan skýrir þetta ef til vill betur þótt óskýr sé. Skráningarlykill vísar á leitartöluna 333k21: Áður en þessu spjalli er lokið mætti nefna það, að nú er að koma á markað á örfilmum hillulisti LC frá upphafi fram til ársins 1980 ásamt 15 lykilbindum að filmunum (efnis- orðalykill 6 bindi, staðarnafnalykill 1 bindi, mannanafnaskrá 8 bindi). Hillulistinn telur um sex og hálfa milljón spjalda, svo að þetta er gríðarlegt verk. Forvitnum til fróðleiks má geta þess, að verðið á filmunum ásamt lykilbindum og ársfjórðungslegum viðaukum er „aðeins“ $6.187,-. 1 234abcdefghijklmnoprstuvwxyz 29

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.