Bókasafnið - 01.02.1978, Qupperneq 35
Listabókavörður
En hver er hin sérhæfða staða listabóka-
varðarins? „ . . . Það er hægt að skilgreina
hvað bókavörðurinn þarf að vita eftir teg-
und safnsins“ (Marco og Freitag). Eða kan-
nski öllu frekar þarf hann að hafa hæfileika
til að geta aðlagað sig eftir kröfum safnsins.
P. Pacey telur að listabókavörðurinn þurfi
fyrst og fremst að vita hvað er til í safninu
sem hann starfar við, í öðru lagi að geta
metið réttilega hvað vantar í safnið og hvað-
an hægt sé að fá það, og að lokum þurfi
hann að hafa frjótt hugmyndaflug til að
kynna safnefnið á skemmtilegan hátt og í
samræmi við þarfir safnnotenda.
Fyrsta atriðið bendir réttilega á mikilvægi
þess að listabókavörðurinn hafi góða þekk-
ingu á efni safnsins. Hann þarf að vera vel
að sér í sögulegri þróun hinna ýmsu list-
stefna, auk þess að vera vel að sér í sögu- og
tæknilegri þróun hinna mismunandi að-
ferða í hinum ýmsu greinum listsköpunar.
Auk þess er verkleg reynsla (studio) talin
vera mjög heppileg, þannig kynnist bóka-
vörðurinn aðferðunum enn betur. Hann
þarf að geta leyst úr sögulegum, jafnt sem
tæknilegum „hvemig á að gera það“ spurn-
ingum. Pacey bendir einnig á það hversu
mikilvægt sé fyrir listabókavörð að hafa gott
sjónskyn, hann þurfi að hafa það í sér að
geta greint og gagnrýnt alls konar myndefni.
í greinum Larsen og Marco og Freitag er
skrifað um nauðsyn þess að vera vel að sér í
hinum ýmsu aukagreinum listasögunnar,
s.s. almennri-, þjóðfélags- og menningar-
sögu og hafa þekkingu á 2—3 tungumálum,
þá helst minnst á frönsku, þýsku og ítölsku
fyrir utan ensku.
Annað atriðið bendir á hversu nauðsyn-
leg undirstöðumenntun í bókasafnsfræði er.
Bókavörðurinn þarf að geta metið af kunn-
áttu hvað vantar í safnið, eftir kröfum
safnsins. Hann þarf þess vegna að vera vel
að sér í öllum greinum sem kenndar eru í
bókasafnsfræði og Marco og Freitag benda
á að tilvonandi listabókavörður skuli leggja
áherslu á eftirfarandi með tilliti til lista:
L Sögu og núverandi stöðu prentunar og
útgáfu bæði myndefnis og listabóka.
2. Upplýsingaþjónustu, almenna og sér-
hæfða á sviði lista.
3. Þekkingu á skráningu og flokkun með
sérstaka áherslu á nýsigögn (non-book
35