Bókasafnið - 01.02.1978, Síða 37
Fréttir í stuttu máli
Mót norrænna rannsóknarbókavarða í
Reykjavík 17.—24. júní 1978.
Samband norrænna rannsóknarbóka-
varða (Nordisk videnskabeligt bibliotekar-
forbund) þingar í Reykjavík dagana 17,—24.
júní n.k.
Samtökin voru stofnuð sumarið 1947 í
Kaupmannahöfn á fyrsta norræna bóka-
varðamótinu eftir stríð. Samtökin áttu því
30 ára afmæli í fyrra. Þau halda þing sem
þetta á fjögurra ára fresti. Mótið fer fram í
húsakynnum Háskóla íslands og hefur það
hlotið heitið „Fra norrone skrifter til nord-
iske forskningsbiblioteker“.
Ráðstefnan fer fram í formi framsöguer-
inda og umræðna. Flutt verða erindi um
menntun bókavarða og þá sér í lagi um
menntun bókavarða í rannsóknarbókasöfn-
um, ennfremur um hugsanlega samræm-
ingu bókavarðarmenntunar á Norðurlönd-
um, tölvunotkun í bókasöfnum og síðast en
ekki síst um skipulagsmál og samvinnu
rannsóknarbókasafna á Norðurlöndum.
Framsögumenn á mótinu verða m.a. Chr.
Hermann Jensen kennslustjóri, Ben Rugaas
rektor, Ame Stráng sýslubókavörður og
Morten Laursen Vig yfirbókavörður. Þess
ber og að geta, að dr. Gylfi Þ. Gíslason,
formaður Menningarmálanefndar Norður-
landaráðs, mun flytja erindi um íslenskt
þjóðlíf og íslenska menningu við upphaf
þingsins. Aðalfundur Sambands norrænna
rannsóknarbókavarða fer fram í lok
mótsins.
Erlendir gestir á mótinu verða sennilega
140-150, og er þetta fyrsta mót sinnar teg-
undar hér á landi. Deild bókavarða í rann-
sóknarbókasöfnum sér um mótið, og er
Einar Sigurðsson háskólabókavörður for-
maður undirbúningsnefndar, en formaður
norræna sambandsins er dr. Wilhelm Odel-
berg, yfirbókavörður frá Stokkhólmi.
37