Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1930, Page 147
Merkar nýjar bækur
147
snúningum í þessu máli, enda átti hún þá við meira og
merkilegra að snúast, stríðið við Napóleon.
Magnús Stephensen hefði alveg áreiðanlega helzt
kosið að nota tækifærið til að koma íslandi undir Eng-
land, og að hann hafi í byrjuninni haldið að Bretastjórn
stæði á bak við pá Phelps og Jörgensen er líklegt. En
hann hefur fljótt gengið úr skugga um að svo var ekki,
og yíirráð dansks æfintýramanns yfir íslandi gat hann
ekki þolað eða búizt við að yrði polað af íslendingum
pegar fram í sókti. Hann snerist pví fljótt, eins og kunn-
ugt er, gegn Phelps og Jörgensen — og pað gat hann
sér að ósekju pvi betur gert, par sem Jörgensen hafði alls
ekki lýst pví yfir, að ísland væri háð Bretakonungi, held-
ur pvert á móti sjálfstætt lýðveldi. Pegar svo loks Alex-
ander Jones kemur með brezkt herskip, finnur hann á
íslandi engan íslending af heldri mönnum, sem mæli
með pví að ísland gangi Bretum á hönd, og einmitt sá
maður, sem Bretar áreiðanlega hafa skoðað sem sinn öt-
ulasta fylgismann, Magnús Stephensen, gengur fremst í
pví að halda landinu undir Danakonung. Ef herskipið
hefði komið fyr og Magnús fengið bréfið frá Banks með
pví, hefði Jörgensen aldrei komið til sögunnar á okkar
landi, og framtið lands og pjóðar líklega orðið allt önnur.
Við mundum pá líklega vera brezkir pegnar pann dag í dag.
Corpus Codicum Islandicorum Medii Ævi. Vol. 1.
Flateyjarbók. With an introduction by Finnur Jónsson.
Copenhagen, Levin & Munksgaard, 1930. Verð 360 kr.
ób., 400 kr. innb.
Hér kemur fram ljósprentuð útgáfa af allri Flateyjar-
bók og voru eintök af henni með íslenzkum formála og
titilblaði send að gjöf frá Danastjórn til ýmsra íslenzkra
ríkisstofnana, alpingismanna og nokkurra vísindamanna
nú í sumar á 1000 ára afmæli Alpingis. En petta er
aðeins fyrsta bindið í safni af islenzkum handritum sem
Levin og Munksgaard í Kaupmannahöfn ætla sér að
gefa út. Á par næst að koma Ormsbók af Snorra-Eddu,
sem próf. Sigurður Nordal sér um, og parnæst Konungs-
bók Qrágásar, sem Dr. Páll Eggert Ólason ætlar að gefa
út. Hr. Einar Munksgaard hefur sjálfur skrifað dálitla
bók, skemtilega og fallega að frágangi, „Om Flatobogen
og dens Historie", sem fræðir menn á Norðurlöndum vel
10*