Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Blaðsíða 1
265. TBL. — 71. og 7. ÁRG. — MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1981
fijálst, úháð dagblað
Varðskip dró
Gissur hvíta
til Færeyja
Hornafjarðarbáturinn Gissur hvíti
varð fyrir óhappi á leið sinni til
Englands aðfaranótt föstudags.
Skipið lenti á trédrumbi, þannig að
skrúfan varð óvirk. Aðeins var hægt að
sigla skipinu aftur á bak. Þótt skipið
væri statt skammt undan ströndum
Islands, var varðskip fengið til
aðstoðar og dró það Gissur hvíta til
Þórshafnar í Færeyjum. Þar átti skipið
hvort sem var að fara í slipp.
Gissur hvíti var á leið í sölutúr til
Englands. Ekki lá ljóst fyrir hvort
aflanum yrði landað í Þórshöfn, eða
hvort gert .yrði við skipið til
bráðabirgða, þannig að það kæmist til
Englands,
-JH/Júlía, Höfn.
Natalie
Wood
hvarf í
■ / m
humi
nætur
— sjá erl. f réttir
/ dag verður aðeins kosið í Valhöll og mú húast við að þar verði mikil örtröð. Hins vegar mynduðust engar biðraðir á kjörstöð-
um í gær en aðsókn var nokkuð jöfn yfir daginn. (Mynd: GVA)
„Féllum
ofaníþá
gryfjuaé
vanmeta
Norðmenn"
— sjá íþróttirbls.
24-25 ogaðrar
íþróttafréttir
helgarinnar
bls. 21-28
•
Snúum
vömísókn
— sjá kjallaragrein
Styrmis Gunnars-
sonar Morgun-
blaðsritstjóra
bls. 4
Líflegmenn-
ingarvaka
fatlaðra
— sjá bls. 10
„Finnland-
isering"í
viöskiptum
— sjáSvarthöfða
bls.4
Friðarmenn
sundra
— sjá leiðara bls. 2
, •
Utvarp og
sjónvarp
-siábls. 46-47
Um fjögur þúsund mættu á kjörstað í prófkjörinu í gær:
Liðlega helmingur
á eftir að kjósa
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
jfyrir borgarstjórnarkosningarnar í
iReykjavík næsta vor hófst í gær og
var kosið á fjórum stöðum.
Þegar blm. litu við á tveimur
jkjörstaðanna á nítjánda tímanum í
'gær hafði heldur hægt á kjörsókn en
straumur verið nokkuð stöðugur
allan daginn, að sögn starfsmanna.
Samkvæmt upplýsingum yfirkjör-
stjórnar höfðu 4018 greitt atkvæði er
kjörstöðum var lokað í gær kl. 22.
Tveim tímum áður höfðu um 500
nýir félagar verið skráðir í Sjálf-
stæðisflokkinn. Eru þeir því nær
1800 samtals sem gengið hafa til liðs
við flokkinn siðustu daga og vikur.
Alls voru um 8500 með
kosningarétt í þessu fyrsta lokaða,
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um
árabil. ■
,,Ég held að þátttakan sé í nokkru
samræmi við það sem menn höfðu
búizt við. Um 45% þeirra, sem á
kjörskrá eru höfðu kosið í gær og í
dag er búizt við að bætist verulega
við þann hóp,” sagði Baldur
Guðlaugsson, varaformaður kjör-
stjórnar.
Prófkjörinu lýkur kl. 18 í dag.
Verður eingöngu kosið í Valhöll i dag
og opnar kjörstaðurinn kl. 14.30.
-JB/KMU.