Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Blaðsíða 34
42
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1981.
Fólk
Fólk
Fólk
Fólk
AfmæBshátíö í Grímsey
Hinn 11. nóvember héldu Gríms-
eyingar að venju hátíðlegan fæðingar-
dag síns mesta velgjörðarmanns,
Bandaríkjamannsins Daníel Willard
Fiske, en í ár eru liðin 150 ár frá fæð-
ingu hans. Má segja að 11. nóv. sé
nokkurs konar þjóðhátíðardagur
Grímseyinga.
Kvenfélagið sá að vanda um fram-
kvæmd veislunnar, og var þar hlaðið
veisluborð, sem kvenfélagskonur út-
bjuggu, en einnig sáu þær um alls kyns
skemmtiatriði. Gestur Grímseyinga var
Halldór Blöndal þingmaður, og hélt
hann fróðlegt og skemmtilegt erindi um
Daníel Willard Fiske og um skáklist
Grímseyinga.
Að vísu hefur hinn mikli áhugi, sem
Grímseyingar höfðu á skák og voru
frægir fyrir, dvínað á seinni árum.
Halldór Blöndal og Jóhann Þórir Jóns-
son, ritstjóri Skákar, gáfu bókasafni
Grimseyinga veglega bókagjöf, og
veitti Þorlákur Sigurðsson bókunum
viðtöku fyrir hönd heimamanna.
Einnig var gestkomandi í Grimsey að
þessu sinni séra Pálmi Matthíasson, en
hann býður sig fram til Glerár- og Mið-
garðaprestakalls í Grímsey. Óhætt er
að segja að séra Pálmi hafi heillað jafnt
unga sem aldna með skemmtilegri og
frjálslegri framkomu sinni, og eigi
hann hjá Grímseyingum vísan stuðning
í komandi prestskosningum. í veislu-
lok var haldið barnaball, en oft dansa
þeir fullorðnu fram eftir nóttu, en að
þessu sinni varð ekki úr því, þar sem
afmælisdaginn bar upp á miðvikudag,
og vinnudagur næsta dag. Sá dans-
leikur mun því bíða betri tíma.
Guðni Walderhaug,
Grímsey.
**L
Þorlákur Sigurösson veitti viðtöku mnni
og Jóhanni Þóri Jónssyni.
;r
Veisluborðið var hlaðið kræsingum/ sem kven-
félagskonur útbjuggu.
Hvöt félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík
PRÓFKJÖR í DAG
Sjálfstæðismenn, munið
Konur á fiokkslista
Anna K. Jónsdóttir
aðstoðarlyfjafræðingur.
Erna Ragnarsdóttir
innanhússarkitekt.
Hulda Valtýsdóttir
blaðamaður.
Ingibjörg Rafnar
héraðsdómslögmaður.
Jóna Gróa Sigurðardóttir
skrifstofumaður.
Málhildur Angantýsdóttir
sjúkraliði.
Margrét Einarsdóttir
sjúkraliði.
Sigríður Ásgeirsdóttir
héraðsdómlögmaður.
KOSNINGANEFNDIN.