Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Side 10
10
DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1981.
SMIÐJUVEGI8 KÓPAVOGI
KVÍHTfi furuhúsgögn
Með alþjóðlega viðurkenningu
Nx/hnrn Smiöiuveg'8
I \l y UUI y Sími 78880
An[A. Laugardaga 10-16
sunnudaga frá 14-17
MÁLVERKA-OG MYNDAINNRÖMMUN
Mikið úrvalaf
speglum í römmum.
MYNDA- OG
MÁLVERKASALA
INNROMMUN SIGURJÓNS
■n ÁRMCLA 2’ — SlMI 31788
Önnumst kaup og sölu allra almennra
veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla.
Getum ávallt bætt við kaupendum á við-
skiptaskrá okkar.
Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin.
m
Venlliréfn -
Alnrkniliiriiin
Nýja húsinu
v/Lækjartorg.
12222
Vorum að fá
nýja sendingu
af orginal
myndefni fyrir
Leigjum
einnig út
<P vídeótæki
með VHS kerfi
Ath. opið frá kl. 18.00-22.00 alla virka daga
nema laugardaga frá kl.14.00-20.00
og sunnudaga kl. 14.00-16.00
VÍDEÓ
MARKAÐURINN
Digranesvegur 72
Kópavogi Sími 40161
Tóti trúður mætti á barnaskemmtunina á Hótel Borg í gær og gerði mikla lukku hjá krökkunum. Og ekki minnkaði
ánægjan þegar hann færði nokkrum þeirra bókina um sjálfan sig að gjöf.
(Mynd Einar Ólason).
Lífleg menningar
Menningarvaka tengd lífi og listum
fatlaðra hófst að Hótel Borg á laugar-
dag. Mun hún standa fram á föstudags-
kvöld.
Menningarvakan fer aðallega fram
að Hótel Borg en dagskrár tengdar
henni verða fluttar víðar. Þessi vaka er
lokaátak Alfa-nefndarinnar í tilefni árs
fatlaðra.
Við setningarathöfnina á laugardag
fluttu Margrét Margeirsdóttir, for-
maður Alfanefndar, og Egill Skúli
Ingibergsson borgarstjóri ávörp auk
aðila frá hagsmunasamtökum fatlaðra.
Þar var flutt tónlist og sýnt
brúðuleikrit um fötluð börn.
I gær var svo messa í Langholts-
kirkju og barnaskemmtun að Hótel
Borg. Stjórnandi þar var Bryndís
Schram, en fjöldi gesta kom í
heimsókn. Þeirra á meðal var Tóti
trúður, hljómsveitin Árblik, sem
skipuð er gömlum nemendum úr
öskjuhlíðarskóla, og þær stöllur Helga
Steffensen og Hallveig Thorlacius
sýndu brúðuleikinn Krakkarnir í
götunni. í því voru kynntar hinar mis-
munandi tegundir fötlunar og börnin
sjálf látin spyrja og taka þátt. Brugðið
var á margs kyns leiki og lagið tekið
hraustlega nokkrum sinnum.
Opið hús verður á Borginni í dag
milli klukkan 15.30 og 18.00. Þar mun
Carl Billich leika létta kaffihúsamúsík
og bornar eru fram veitingar. Tinna
Gunnlaugsdóttir og Ingiborg Geirs-
dóttir lesa upp úr ljóðum hinnar síðar-
nefndu og Sigrún Gestsdóttir syngur
lög Sigursveins D. Kristinssonar við
undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
Þá verður einnig sett upp verkstæði og
veitt tilsögn í myndrænni tjáningu. Því
stýrir Sigríður Björnsdóttir. í kvöld
verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
leikrit Gunnars Gunnarssonar,
Uppgjörið, undir stjórn Sigmundar
Arnar Arngrímssonar og verða
umræður um leikritið á eftir.
Ónefnd eru fjölmörg atriði
menningarvökunnar en væntanlega
verður greint betur frá þeim síðar -JB.
Heimsókn utanríkisráðherra Grænhöfðaeyja:
Samningur undirritaður
um aðstoð til fjögurra ára
„Það getur ekkert ríki þrifist án
samvinnu við önnur ríki í meira eða
minna mæli,” sagði Silvino da Luz,
utanríkisráðherra Grænhöfðaeyja, á
fundi sem hann hélt fyrir helgi vegna
nýundirritaðs samnings milli íslands
og Grænhöfðaeyja, sem segir til um
áframhaldandi aðstoð íslendinga til
eflingar fiskveiðum við eyjarnar.
Silvino kom hingað • til lands
síðdegis á miðvikudag ásamt 9 manna
fylgdarliði sínu og hefur hann átt
viðræður við íslenska ráðamenn, auk
þess sem hann hefur kynnt sér
íslenskar fiskafurðir og vinnslu
þeirra.
Fyrir um rúmlega ári gerðu ísland
og Grænhöfðaeyjar með sér samning
um 18 mánaða tækniaðstoð til upp-
byggingar fiskveiðum landsins.
Samningur þessi rann síðan út 30.
september siðastliðinn. Stjórnvöld
Grænhöfðaeyja leggja mikið upp úr
þessari aðstoð og óskuðu þess ein-
dregið að hún yrði framlengd helst
um rúm 4 ár, eða til ársloka 1985, en
það er gildistími þróunaráætlunar,
sem nú er í undirbúningi þar í landi.
Þessi samningur var síðan undirrit-
aður af utanríkisráðherrum beggja
landanna síðastliðinn föstudag og
mun hann gilda til ársloka 1985.
Samningurinn, sem er ramma-
samningur, gerir ráð fyrir að gerðar
verði starfsáætlanir fyrir hvert ár sem
ákvarði hversu mikil aðstoðin verði
hverju sinni.
Vegna framlengingar aðstoðar-
innar til næstu 4 ára er í undirbúningi
smíði fiskiskips sem er sérhannað til
veiða við Grænhöfðaeyjar og í
þróunarríkjum. Er vonast til að
skipið verði tilbúið síðla á næsta ári.
í máli Silvino da Luz á fundinum
kom fram að nýja skipið kemur til
með að henta betur öllum aðstæðum
við eyjarnar. Hann sagði að með
góðri samvinnu við íslendinga gæti
landið nýtt fiskinn við strendur
landsins mun betur en verið hefur, en
vinnsla fiskafurða væri einmitt
undirstaðan fyrir efnahagslegt sjálf-
stæði landsins.
Silvinio da Luz utanríkisráðherra
Grænhöfðaeyja fór héðan af landi
brott í gærmorgun ásamt fylgdarliði
sínu. -SER.
Silvino da Luz i fundinum sem hann
hélt á föstudag i tilefni nýundirritaðs
samnings íslands og Grænhöfðaeyja
um áframhaldandi aðstoð við cyjarnar.