Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Side 20
20
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1981.
„Alltaf haft
þörf fyrir
að búa eitt
hvað til”
Hvernig velurðu þér jólakort?
Kaupir eflaust eitthvað, sem þér
finnst fallegt og höfðar til jólanna.
En hefurðu einhvern tima hugsað um
það, hver teiknaði fallegu myndina,
sem er á kortinu? Já, kannski
hefurðu litið aftan á kortið, séð þar
nafn, og ekki hugsað meira um það.
lEn þú ert heldur kannski ekkj eins
forvitin(n) og við hérna á DB og Vísi.
Við sáum nefnilega jólakort, sem var
tekið eftir veggteppi, en það er kven-
félagið Hringurinn, sem gefur þetta
kort út, til styrktar Barnaspítalasjóð
Hringsins. Á bakhlið kortsins segir
svo: Maria í rós. Veggteppi 120x85
cm unnið 1974 af Guðrúnu
Guðmundsdóttur, Reykjavík. Kross-
saumur úr ullargarni í stramma.
Munstrið er gert með hliðsjón af
mynd frá 3. fjórðungi 15. aldar i
Teiknibókinni i Árnasafni, AM 673a
4to, f. 7 v. og lýstum upphafsstaf í
handriti af Stjórn, AM 227 fol., f.
6v., frá 14. öld. Áletrunin er 55.
erindi Lilju frá um 1350.”
Forvitnin var vakin og Guðrún
Guðmundsdóttir leituð uppi, því
fyrir leikmann virðist óviðráðanlegt
verk að sauma upp eftir gömlum
teikningum.
Heimili Guðrúnar ber þess glöggt
vitni, að þar býr kona, sem ekki
hefur setið auðum höndum um
ævina. Falleg veggteppi prýða veggi,
og eru fjögur þeirra unnin úr
Teiknibókinni, en eitt er unnið eftir
myndum úr Flateyjarbók, út. 1945.
Þegar litið er á þær myndir í bókinni,
verður enn óskiljanlegra hvernig
Guðrún Guðmundsdóttir, hjá
veggteppinu.
Myndin úr Teiknibókinni, sem Guðrún fór
eftir.
... og hér er veggteppið komið á mynd á
fallegu jólakorti.
hægt er að sauma út eftir þeim, svo
smáar og óskýrar sem þær eru.
,,Ég hef alltaf verið mikið fyrir
saumaskap og hvers kyns handa-
vinnu,” sagði Guðrún aðspurð. ,,Ég
er fædd og uppalin í Garðhúsum í
Garði og fluttist til Reykjavíkur
1950. Ég hafði alltaf haft mikla
löngun ti' að búa eitthvað til, og einu
handbæru teikningarnar, sem ég
hafði á þessum tíma, voru lýsingar
— i Flateyjarbók. Ég teiknaði upp
myndirnar, stækkaði og saumaði
síðan út. Það, sem einnig átti sinn
þátt í því, að ég fór að gera þetta, var
að ég hef alltaf verið mikið fyrir allt,
sem er gamalt.
Á þessum árum var ég að eignast
börnin mín fjögur, svo þetta varð
svona meiri „sparivinna”. Ég
saumaði og prjónaði svo til allt á
börnin, og eðlilega situr þá svona
vinna á hakanum. Seinna barst mér í
hendur útgáfa Björns Th. Björns-
sonar af Teiknibókinni í Árnasafni,
og þá fannst mér ég hafa fengið fjár-
sjóð í hendurnar, sem ég vildi gera
eitthvað úr fyrir sjálfa mig. Mér
fannst þetta fagrar teikningar, sem
höfðuðu tjl mín. Eg vona þó svo
sannarlega að ég hafi ekki skemmt
teikningarnar, þegar þær hafa verið
saumaðar, því ég hef reynt að fara
um þær eins mjúkum höndum og ég
hef getað.
Þessi teppi gerði ég þó fyrst og
fremst fyrir sjálfa mig og börnin mín,
og hugsaði aldrei neitt út í að það
yrði neitt meira. En þegar
Hringskonur leituðu til mín og.
báðu um mynd af veggteppi á jóla-
kort, fannst mér ég ekki geta neitað.
ÖIl teppin voru mynduð, og þetta
varð siðan fyrir valinu. Sjálf er ég
mjög ánægð með árangurinn og
finnst kortið mjög vandað.”
Undir það er tekið hér, að kortið
er hið vandaðasta í alla staði. Erindið
úr Lilju, sem er saumað í veggteppið,
er einnig inni í kortinu. Sjálf gerir
Guðrún lítið úr vinnu sinni;
viðurkennir þó að mikil vinna liggi að
baki hverju teppi, og þegar dáðst er
að öllum þeim verkum, sem hún
hefur gert.segir hún hlæjandi: „Já,
ég hef alltaf haft óskaplega þörf fyrir
að búa eitthvað til. . . ” -AKM.
■aófetóiitigiiÍiSMliÍÍÍPÍBt að framleiöa
.... ' ........'"'""‘'"jliiitkunarstaðnum
gamalt
gler —
nýtt
gler —
SIGNA-
óllisti
SIGNA-aðferðin er dáýt, .«wiföld(|ij|||l|||j|gj
A tímom orkuspomaóar er timabœrt aó kynrt«l SiGNA -|eeHÍÍA. jhdA saiyumstefídur of ódlista, fylltuni Mdatt-
drœgu efni og sérhönnuöu SIGNÁ þéttiefni, sertt jhfygat't lúHkMMi samKmhngu milli óls
rafhituóum kopwþroiói. Vinnon fer from innon éjpipi ÁNfiiÍfÍÍinifíi:<9(ig|^*ié^
er á SIGNA oóferóinni hérlendis. Vió veitum 5 óra ábytlfcó á ;.
JÍIlÍtfÍyS SIGNÁ a&i»MrAlnra' ssnamfaf .. É hínfln<n
4>etta er
SIGNA
ómsti ...~^ ^ liiipr. m____________
opnu gaphúsi.
og raf-
u þétti-
efni.”
....meó
rakadrœgu efni...
NifÉllillÍipfeiogar. veitir =
A
Hafndrstrpett )ll; Reykjavik, p.h.589, s. 19013.