Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Side 40
Ný ferdaskrifstofa
að taka til starfa
—„alltafpláss fyrirþá sem hafa eitthvað að segja," segirJón Guðnason
Ný ferðaskrifstofa sér dagsins ljós
fyrstu vikuna í janúar. Ferðaskrif-
stofan heitir Saga 0o er forsvars-
maður hennar Jón Guðnason, en
hann hefur sem kunnugt er lengi
starfað að ferðamálum. Jón er sonur
Guðna Þórðarsonar, fyrrum ferða-
skrifstofukóngs í Sunnu.
Hluthafar í hinni nýju ferðaskrif-
stofu eru sex auk Jóns Guðnasonar.
Jón sagði í samtali við DB&V í
morgun að tilskilin leyfi samgöngu-
ráðuneytis væru fengin til ferðaskrif-
stofurekstursins og auk þess hefði
verið lögð fram trygging fyrir flutn-
ingi farþega hjá Flugleiðum. Ferða-
skrifstofan Saga mun einnig skipta
við önnur flugfélög er fljúga áætlun-
arflug frá landinu, Arnarflug og Is-
cargo.
„Ferðaskrifstofan Saga mun sjá
um alla þjónustu við ferðamenn, inn-
lenda sem erlenda,” sagði Jón í
morgun. „Við höfum ýmislegt nýtt í
pokahorninu, sem er hernaðarleynd-
armál ennþá, en þó má nefna ýmsar
nýjungar á Mallorka, sem ekki hafa
verið í boði áður.
Jón var að því spurður hvort þörf
væri á nýrri ferðaskrifstofu þegar til-
lit væri tekið til hinnar hörðu sam-
keppni sem þegar er á markaðnum.
„Það er alltaf pláss fyrir þá sem hafa
eitthvað að segja. Hlutirnir eru að
breytast. Fólk er farið að gera meiri
kröfur og vill fara eigin leiðir. Ég hef
trú á því að ferðaskrifstofum fjölgi,
en þær verði minni en áður.
Aðalráðgjafi hinnar nýju ferða-
skrifstofu verður Guðni Þórðarson,
en að sögn Jóns er hann þó ekki einn
eigenda ferðaskrifstofunnar.
-JH.
Það dugði lítt þótt þingmenn allra flokka sameinuðust gegn andstæðingum sínum á skákmóti Flugleiða. Fengu þingmenn hina
verstu útreið, enda eru þeir Guðmundur G. Þórarinsson, Vilmundur Gylfason og Halldór Blöndal þungt hugsi yfir stöðunni.
(Mynd Einar Ólason)
Sveit Búnaðarbankans vann
— Þingmennirnir stóðu sig slaklega
Firnasterk sveit Búnaðarbanka
íslands, Reykjavík, bar sigur úr býtum
í skákkeppni stofnana, sem Flugleiðir
gengust fyrir um helgina. Búnaðar-
bankasveitin skaut sveit Rikis-
spítalanna aftur fyrir sig rétt i lokin og
hlaut alls 62 vinninga af 69
mögulegum. Ríkisspítalarnir hlutu 61,5
vinninga og sveit Útvegsbankans varð i
3. sæti með 53 vinninga.
Þátttökusveitir voru alls 24 og þar á
meðal var sveit Alþingismanna. Hún
fékk harla háðulega útreið — náði
aðeins 22 vinningum og varð í 18.-19.
sæti. Helgi Ólafsson, sem tefldi fyrir
Þjóðviljann, hlaut 20,5 vinninga á I.
borði og þeir Jóhann Hjartarson,
Búnaðarbankanum, og Jóhann Ingi
Jónsson, Verkamannabústöðum, 19,5
vinninga. Á 2. borði varð Dan
Hartsson, Ríkisspítölunum, hlut-
skarpastur með 21,5 vinninga og
Guðmundur Halldórsson, Búnaðar-
bankanum, var með sömu vinningatölu á
3. borði.
-SSv.
Stimpilgjald breytist með nýju fasteignamati:
Ös hjá fógetum í dag
Hækkun hjá ÁTVR:
Vodkaí
267 kr.
Frá og með morgundeginum
hækkar tóbak og áfengi um 15%.
Áfengisútsölur verða þvi lokaðar i
dag vegna verðbreytinga.
Sem dæmi um hækkun á ein-
stökum áfengistegundum má nefna
að tslenskt brennivín hækkar úr kr.
167 í kr. 192. White horse viskí.
hækkar úr kr. 232 i kr. 267. Pólskt
vodka hækkar úr kr. 232 í kr. 267
og sjenever úr kr. 241 í kr. 277.
Léttu vínin hækka einnig um
15%. Til dæmis hækkar flaskan af
hvítvíni í meðalverðflokki úr 48 i 55
krónur. Flaska af algengu rauðvíni
hækkar úr 58 í 67 krónur.
Vindlingapakkinn hækkar úr kr.
17.15 í 19.70 og pakkinn af London
Docks vindlum kostár nú 26 krónur
ístað22 áður.
-JSS.
Búist er við ös hjá fógetum og sýslu-
mönnum í dag vegna þinglýsinga á fast-
eignaafsölum, þar sem stimpilgjald
hækkar á morgun með gildistöku nýs
fasteignamats. Meðalhækkun verður
um 55% en dæmi eru um mun meiri
hækkun þar sem fasteignir færast af
byggingarstigi í mati til fullgerðra
eigna.
í Reykjavík er stimpilgjald af meðal
þriggja herbergja ibúð 900—1000.
krónur í dag, auk 28 króna þinglýsing-
argjalds, en stimpilgjald á sömu ibúð
verður á morgun 1.400—1.550 krónur.
herb.
Deilan á Seltjamamesi að leysast:
Fóstmmar taka ákvörðun í dag
Fóstrurnar á barnaheimilinu Sól-
brekku á Seltjarnarnesi hafa enn ekki
tekið ákvörðun um hvort þær dragi at-
vinnuumsóknir sínar hjá Reykjavíkur-
borg til baka og starfi áfram á Sól-
brekku. Er búist við að þær taki
ákvörðun um málið í dag.
Bæjarfulltrúar Seltjarnarnesskaup-
staðar héldu fund með foreldrum
barna á barnaheimilinu á laugardag-
inn. Var fundurinn opinn fóstrunum,
en þær mættu ekki. Þá var félagsmála-
fulltrúanum á staðnum meinað að sitja
hann.
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri
sagði í viðtali við blaðið í morgun að
fundurinn hefði farið vel frant. Menn
hefðu rætt málin og skýrt sín sjónar-
mið.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem
blaðið hefur aflað sér, er nú mikill
þrýstingur á fóstrur að vera áfram.
Hefur meðal annars verið samþykkt
að þær fái eftirvinnu greidda þegar
forstöðukona telur þess þörf. Einnig að
barnaheimilið fái fólk til afleysinga
þegar um veikindi starfsfólks þess er að
ræða. Þetta ásamt fyrirkomulagi á inn
ritunarmálum hefur einkum valdið
deilunum er upp risu á barnaheimil
inu.
-JSS.
Irjálst, úháú dagblað
MÁNUDAGUR 30. NÓV. 1981.
Frambjóðandi
í próf kjörinu:
Fékk ekki
að kjósa!
Einn frambjóðenda í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins, Anders Hansen, fékk
ekki að neyta atkvæðisréttar síns er
hann mætti á kjörstað í gær. Ástæðan
var sú að búið var að merkja við nafn
hans í kjörskrá rétt eins og einhver
hefði þegar fengið afhentan atkvæða-
seðil í hans nafni.
Anders var boðið að kjósa til bráða-
birgða á meðan málið væri rannsakað á
sama hátt og um utankjörstaðaatkvæði
væri að ræða. Því boði neitaði Anders
þar sem óvíst var hvort atkvæðið yrði
tekiðgilt.
„Ég held að þarna hljóti að vera ein-
hver mannleg mistök á ferðinni frekar
en kosningasvindl. Mér finnst líklegast
að einhver hafi farið línuvillt í kjör-
skrá. Ég treysti starfsmönnum flokks-
ins fyllilega til að finna réttláta lausn á
þessu máli,” sagði Anders í samtali við
blaðið í morgun.
-KMU.
Harður
áreksturvið
Svartsengi
Harður árekstur varð á Grinda-
víkurvegi, skammt frá Svartsengi,
siðdegis í gær. Jeppabifreið sem kom
frá Reykjavik, ók á dráttarvél sem kom
frá Grindavík og er talið að jeppabif-
reiðin sé gjörónýt. Engin slys urðu á
mönnum.
Afar slæmt skyggni var á þessum
slóðum þegar áreksturinn átti sér
stað. Skafrenningur og mikil
ofankoma, auk þess sem vegurinn var
fljúgandi háll.
-SER.
Þingmenn áttuðu sig ekki á
því að refskák dugar ekki á
alvöruskákmótum.
hressir betur.