Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1982, Page 2
2
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982.
Stórff elldur þ jóf naður á f lugvélabensíni á ísafirði upplýstur:
Eigandi flugfélagsins hand-
tók þjófana sjálfur og færði
þá á lögreglustöðina
Tveir piltar á tvitugsaldri hafa
játað á sig stórfelldan þjófnað á flug-
vélabensini frá flugfélaginu Ernir á
ísafirði. Nær þjófnaðurinn yfir ailt
síðasta ár og jafnvel árið þar á
undan. Lætur nærri að magn það
sem piltarnir tveir hafa tekið nái tíu
þúsund litrum af bensini en andviröi
þess er á núgildandi verði um 60 þús-
und krónur.
Það var Hörður Guðmundsson,
eigandi ftugfélagsins, sem handtók
piltana og færði þá á lögreglustöðina
á ísafirði: „Okkur var farið að gruna
þetta strax í haust, enda óeðlileg
rýrnun á bensíntanknum. Við létum
lögregluna þá vita,” sagði Hörður
Guðmundsson er DV ræddi við hann
i gær.
„Upp frá því höfðum við gætur á
tönkunum og ég fór þarna inneftir á
ólíklegustu tímum. Það var þó ekki
fyrr en i fyrradag að ég náði þeim. Ég
fékk upplýsingar um mannaferðir
þarna innfrá og þegar ég kom að
voru þeir að byrja að athafna sig,”
sagði Hörður.
,,í rauninni átti þetta ekki að vera
hægt en þar sem einn var kunnugur,
hann vann við flugvöllinn um tima,
gátu þeir notað einhverskonar lykla
við þetta og tengdu framhjá. Þetta er
svipað og þegar guttar eru að stela
bílum, þeir tengja bara framhjá,”
sagði Hörður.
Hann sagði að þó þessir tveir hefðu
komið þarna mest við sögu, hefðu
fleiri félagar fengið að vera með. Við
prufutöku á bensíni á bílum fannst
flugvélabensín á þremur bílum.
„Flugvélabensínið leynir sér ekki,
það er miklu bláleitara og allt öðru-
vísi,” sagði Hörður. Piltarnir mega
eiga von á vélarbilunum i bilum
sinum þar sem flugvélabensínið þykir
ekki góður vökvi fyrir bilvélar.
Piltunum tveimur hefur nú verið
sleppt, en mál þeirra sent fulltrúa
bæjarfógeta á ísafirði til frekari
málsmeðferðar. —ELA
Eskifjörður:
Hreindýr leita
íbyggö
í frosthörkunum í vetur hefur oft komið fyrir
að hreindýr hafi Ieitað niður i byggð. Hafa heilu
hjarðirnar þá sézt hér alveg inni í kaupstaðnum
eða verið rétt við bæjardyrnar, alll að 80—100
dýr.
Ekki ber allt upp á sama dag því að á haustin
þegar leyfð hafa verið dráp á dýrunum, hafa
menn lagl mikið á sig til að komast í skotfæri við
þau. Hafa menn gengið marga kilómetra upp um
fjöll og firnindi til veiða. Veiðina hefur síðan
orðið að bera til byggða á bakinu og hefur það
oft tekið einn til tvo daga.
En nú hefur það oftsinnis borið við að hrein-
dýrin hafa komið í bæinn og verið fremur gæf
eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
Emil, Eskifirði/I)V-m.vnd Emil Thorarensen.
Alþýðubandalagið:
SIÐARIHLUTIFOR-
VALS í REYKJAVÍK
UM HELGINA
Siðari umferð í forvali Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík til borgar-
stjórnarkosninganna i vor fer fram í
dag og á morgun.
A nú að raða í tíu efstu sæti listans
og er úr tuttugu og fimrn nöfnum að
velja. Annars vegar núverandi borg-
arfulltrúum og hins vegar þeim nöfn-
um sem efst urðu i fyrri hluta forvals-
ins. Nokkur forföll eru þó af þeinr
lisla þar sem sjö eða átta manns af
þeim tuttugu og einum sem efstir
voru, gáfu ekki kost á sér.
Þessi síðari umferð mun talin
nokkuð bindandi fyrir efstu sæti end-
anlegs framboðslista, en þó er kjör-
nefnd heimilt að fara fram á breyt-
ingar, þyki ástæða til.
Opið verður á kjörstað sem er að
Grettisgötu 3, í dag kl. 18—23 og á
morgun kl. 10—23.
-,IB.
Forval hjá Alþýðu-
bandalaginu á Akureyri
Alþýðubandalagsmenn á Akureyri
ganga til fyrra forvals fyrir væntan-
legar bæjarstjórnarkosningar nú um
helgina.
Fer þar fram tjjnefning á nöfnum
sem síðan verður raðað á endanlegan
lista helgina 13. —14. febrúar,
Alþýðubandalagið á nú tvo fulltrúa
af ellefu i bæjarstjórn Akureyrar, en
skráðir flokksfélagar eru eitthvað á
annað hundrað.
Kosið er i svonefndu Lárusarhúsi á
Eiðsvallagötu I 8.
-JB.
Áfram rætt um sam-
eiginlegtframboð
í Mosf ellssveit
Orðrómur hefur verið á kreiki um
að slitnað hafi upp úr viðræðum um
sameiginlegt framboð minnihluta-
flokkanna í hreppsnefnd Mosfells-
sveitar. Voru þær sagðar hafa strand-
að á deilum um skipan fjórða sætis á
lista.
„Þetta er ekki rétt, viðræðurnar
eru enn í gangi og fram komnar til-
lögur sem ekki er ólíklegt að leysi
málin,” sagði Haraldur Sigurðsson,
formaður Framsóknarfélagsins í
Mosfellssveit, í samtali við DV. í
sama streng tóku aðrir sem rætt var
við.
-JB.
KULDAKLÆÐNAÐUR
FYRIR
VINNU 0G LEIK
SAMFESTINGAR,
VÉLSLEÐAGALLAR
HETTA
JAKKI
0G
Margra ára reyns/a hér/endis af Rf^lI/jUíW/L kulda.
k/æðnaðinum hefur sannað einstaka endingu og
kuidaþoi.
Takmarkaðar birgðír
Sendum ípóstkröfu
ÁRNIÓLAFSS0N HF.
Vatnagarðar 14, 2 hæð, sími 83188
Stjóm Hreyfils um
Steindórsmálið:
Skorar á
stjornvold
að stöðva
reksturinn
„Stjórn Hreyfils sf. lýsir yfir lull-
urn stuðningi við stjórn bifreiða-
stjórafélagsins Franta og úthlutunar-
nefnd atvinnuleyfa vegna mótmæla
þeirra er varða sölu á Bifreiðastöð
Steindórs um síðustu áramót,” segir i
yfirlýsingu frá Hreyfli.
Vekur stjórn Hreyfils athygli á þvi
að ásiðustu árum hafi verið fækkað i
stétl atvinnubílstjóra. Þrátt fyrir það
hafi Bifreiðastöð Steindórs haft þau
forréltindi að halda sinunt 45 at-
vinnuleyfum óskertum.
Bendir stjórnin ennfremur á að
síðan setl hafí verið á takmörkun at-
vinnuleyfa skv. lögunt og reglugerð
frá 1956, hafi atvinnubílstjórar á
öllum öðrum bilreiðastöðvum i borg-
inni lagt sín atvinnuleyfi inn til
endurúthlutunar til þeirra launþega
sem hafi lengstan starfsaldur i stétt-
inni, svo sem lög og reglugerðir mæli
fyrir um.
Loks lýsir stjórn Hreyfils fyllsta
stuðningi við stefnu samgöngu-
ráðherra í tnálinu og skorar á stjórn-
völd að stöðva rekslur bifreiðastöðy-
ar Sleindórs hið fyrsta.
Jafnteflií
hiðskákinni
Biðskák Guðmundar Sigurjóns-
sonar og Kagans úr fyrstu umferð úr-
xlitakeppni svæðamótsins í Randcrs
lauk nreð jafntefli í gær. Bauð Kagan
Guðmundi jafntelli i upphafi bið-
skákarinnar.
Að þremur umferöum ioknum
hefur Guðmundur einn vinning.
Muray frá fsrael er i efsta sæti með
tvo og hálfan vinning og Lobron frá
Vestur-Þýzkalandi í öðru með tvo
vinninga.
Guðmundur rnætir í dag Borik l'rá
Vestur-Þýz.kalandi. Hel'ur Gttð-
mundur svart. -KMU.
Steindórs-
menn fengu
viku frest
Lögbannsbeiðnin sem sanrgöngu-
ráðherra lagði fram um stöðvun
rekstrar Bifreiðastöðvar Steindórs
var tekin fyrir hjá embætti borgarfó-
geta í gær. Var ákveðið að gefa for-
svarsmönnum stöðvarinnar viku frest
til að leggja l'ram gögn máli sinu til
stuðnings. Að þeint tíma liðnunt. úr-
skurðar fógetaembættið hvort lög-
bann skuli lagt á rekstur slöðvarinnar
eða ekki.
________________ -JSS.
Árangurslaus
sáttafundur
með hjúkrun-
arfræðingum
borgarinnar
„Það kom frant tillaga frá borg-
inni sem okkur þótti hreinlega ekki
taka að ræða um. Svo það hefur aíls
ekkert miðað i samkomulagsátt,”
sagði Svanlaug Árnadóttir um sálla-
l'und mcð hjúkrunarfræðingum
Rey kj avikurborgar i gærmorgun.
Fundurinn var stuttur og hefur
annar ekki verið boðaður, þar sem
ekki er talinn grundvöllur til við-
ræðna á þessu stigi. Hjúkrunarfræð-
ingar sem starfa hjá borginni munu
hittast til fundar á mánudag, þar sem
rætt verður um stöðuna og hvað
framundan sé.
„Við felldum þann aðalkjara-
samning sem BSR B samþykkti um
áramótin og munum alls ekki ganga
að honum óbreyttum,” sagði
Svanlaug. -JB.