Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1982, Síða 16
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982.
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982.
Lena Köppen „íþrótta-
maður Norðurlanda 1981”
Danska badmintonkonan snjalia, Lena
Köppen, Danmörku, var kjörin
„iþrótlamaöur Norðurlanda 1981” í Kaup-
mannahöfn í gær, þegar formenn samtaka
Lena Köppen, iannlæknir i Kaupmannahöfn, hefur verið fremsta badmintonkona heims um
langt árabil.
íþróttafréttamanna á Norðurlöndum komu
þar saman til fundar. Þórarinn Ragnarsson
var fulltrúi islenzku samtakanna þar. Þetta
er i fyrsta sinn sem kona er í efsta sætið í
þessari samkeppni sem hófst 1962. Að henni
standa, auk iþrótíafréttamanna, Volvo-fyrir-
tækið sænska.
Aðrir, sem til greina komu nú voru Jón
Páli Sigmarsson, lyftingamaður
„iþróttamaður ársins 1981” á íslandi,
sænski skíðagarpurinn Ingemar Stenmark,
Tom Lund, knattspyrnumaður Noregi, og
Heikki Mikola, Finnlandi, heimsmeistari i
skíðaskotfimi. Stenmark var „íþróttamaður
Norðurlanda 1980”. -hsim.
Tveirsigrar
KR-inga
— íbikarkeppni í
handknattleik
Þrír leikir voru háðir í bikarkeppni HSÍ í
Laugardalshöllinni á miðvikudagskvöld.
Einn var í meistaraflokki kvenna. Þar sigraði
KR Víking með 18—14. Tveir leikir voru í 2.
flokki karla. KR sigraði Akranes 25—12 og
Víkingur sigraði Þrótt 15—14. -hsím.
Síðari umferðin í 1. deild karla á íslandsmótinu í handknattleik hefst
á morgun. Fjórir leikir háðir um helgina, heil umferð. Tveir slórleikir
verða í þessari áttundu umferð mótsins. Á morgun, laugardag, leika
Víkingur og KR í I.augardalshöll og hefst leikurinn kl. 14.00. Á
sunnudag leika Þróttur og FH á sama stað og tima. Þessi fjögur lið
skipa fjögur efstu sætin í keppninni. Önnur koma ekki til greina í
keppninni um efsta sætið. Eftir fyrri umferðina, sjö leiki, er FH efst
með 12 stig, Víkingur, Þróttur og KR hafa 10 stig hvert félag.
Myndin að ofan er frá leik KR og Víkings í fyrri umferðinni. KR sigraði
í þeim leik með eins marks mun, 19—18, þar sem sigurmarkið var
skorað úr vítakasti á síðustu sekúndum leiksins. KR-ingar höfðu góðar
gætur á Þorbergi Aðalsteinssyni í leiknum en þarna tókst honum að
skora þrátt fyrir gæzluna.
DV-mynd Friðþjófur.
„ÞETTA VAR KVEÐJU-
STUND HJÁ OKKUR”
— sagði Gísli Gíslason landsliðsmaður hjá Stúdentum,
sem töpuðu67-88fyrir ÍR
Við erum nú endanlega búnir að | | ÍR: — Stanley 25,'kristinn 20, Jón J.
kveðja úrvalsdeildina — eftir þetta tap
gegn ÍR-ingum, sagði Gísli Gislason,
landsliðsmaður hjá Stúdentum, eftir
tap þeirra 67:88 fyrir ÍR-ingum í gær-
kvöldi.
— Þetta hefur legið í loftinu sl. þrjú
ár, þar sem endurnýjunin hefur verið
nær engin hjá liðinu, og ég held að það
verði erfitt fyrir Stúdenta að endur-
heimta sæti sitt í úrvalsdeildinni næstu
ár þar sem margir af þeim máttarstólp-
um liðsins eru að hætta, sagði Gísli.
— Það er mikill léttir hjá okkur að
hafa lagt Stúdenta að velli — sigur okk-
ar var aldrei i hættu, sagði Kristinn
Jörundsson, leikmaðurinn snjalli hjá
ÍR-ingum. Stúdentar þurfa nú að vinna
5 af síðustu 6-leikjum sínum, til að ná
okkur — þeim tekst það aldrei, sagði
Kristinn.
ÍR-ingar voru ávallt með undirtökin í
gærkvöldi — voru yfir 41:34 i leikhléi
og síðan var munurinn orðin 20 stig
(61:41) á 7. mín seinni hálfleiksins —
og sigur þeirra kominn í örugga höfn.
Kristinn Jörundsson og Bob Stanley
voru beztu menn ÍR-liðsins og þá áttu
þeir Benedikt Ingþórsson, Hjörtur
Oddsson og Jón Jörundsson góða
spretti.
Ingi Stefánsson var bezti maður
Gisli Gislason.
ur Stúdenta.
. bezti sóknarieikmað-
Stúdenta og þá var Pat Bock þokka-
legur á köflum. Gísli Gíslason og Árni
Guðmundsson voru óvenjulega daufir.
Þeir sem skoruðu í leiknum, voru:
18, Hjörtur 13, Benedikt 10 og Ragnar
2.
ÍS: — Ingi 22, Bock 17, Guðmundur
J. 8, Bjarni Gunnar 12, Gísli 4, Árni 2,
Jón Ó 2 og bróðir hans Þórður Ö. 2.
-sos
Staðan er nú þessi í úrvalseildinni í
körfuknattleik,
gærkvöldi:
Njarðvík
Fram
Valur
KR
ÍR
ÍS
eftir leikinn
1139:1025 22
1094:1001 18
1056:1023 14
1014:1081 14
1089:1150 10
1110:1262 2
Stigahæstu menn:
Danny Shouse, Njarðv. 450
Bob Stanley, ÍR 376
Val Brazy, Fram 372
John Ramsey, Val 285
Dennis McGuire, ÍS 257
Stu Johnson, KR 237
Símon Ólafsson, F'ram 241
Jón Sigurðsson, KR 221
Gisli Gíslason, ÍS 207
Torfi Magnússon, Val 197
Valur mætir Fram
Einn leikur fer fram í kvöld — Vals-
menn mæta Fram í Hagaskólanum kl.
20.00.
HM íalpagreinum í Schladming:
Stúlka frá Sviss með
forastu í tvíkeppni
Maria Walliser, 18 ára stúlka frá
Sviss, sem rétt með naumindum komst
í svissneska HM-liðið, hefur forustu
eftir brunkeppnina í tvíkeppni kvenna
Níumörk Árna
meöMalmöFF
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni frétta-
manni DV í Lundi:
Árni Hermannsson, fyrrum liðsmað-
ur Hauka í Hafnarfirði, átti stórleik
með liði sinu, Malmö FF, i 2. deildinni
sænsku á ntiðvikudagskvöld. Árni var
að sögn Sydsvenska Dagbladet lang-
bezti útileikmaður Malmöliðsins í 32—
28 sigri liðsins yfir Dalhem. Jafnframt
var Árni markhæsti maður liðsins með
9 mörk.
Að sögn Tommy Lindberg, þjálfara
liðsins, hefur Árni verið í stöðugri
framför í vetur. Oft verið lykilmaður í
leik liðsins og er nú auk þess aðal-
markaskorari þess. GAJ, Lundi/-SSv
á heimsmeistaramótinu í alpagreinum.
Það var fyrsta greinin á HM í Schladm-
ing í Austurríki, ný keppnisgrein á HM
og kemur ■ stað gömlu, samanlögðu
keppninnar, þar sem verðlaun voru
veitt fyrir beztan samanlagðan árangur
í bruni, stórsvigi og svigi. Svig-
keppni i þessari nýju tvíkeppni verður á
mánudag. Einnig verður tvíkeppni í
karlaflokki. Brun á dagskrá í dag, svig
á þriðjudag.
Brunbrautin í gær var 2,5 km og timi
MariuWalliser var 1:39,17 mín. Jafnar
i öðru sæti urðu Doris de Agostini,
Sviss, og Cindy Nelson, Bandaríkjun-
um, á 1:39,61 mín. Irene Epple, V-
Þýzkalandi, varð fjórða á 1:39,81 mín.
Erika Hess, Sviss, varð í 12. sæti á
1:40,32 mín. Hún er fremsta svigkona
heims og ætti að hafa góða möguleika
á að sigra í tvíkeppninni á mánudag,
þegar keppt verður í sviginu. Litið hef-
ur borið á Mariu Walliser í keppni
heimsbikarsins í vetur. Bezti árangur
í gær, 28. janúar, varð íþróltasamband íslands 70 ára. í tilefni þess lagði fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ blómsveiga á leiði brautryðjendanna Sigurjóns Péturssonar
Álafossi er var upphafsmaður stofnunar ÍSÍ„ Axels V. Tuliniusar er var fyrsti
forseti ÍSÍ og Benedikts G. Waage er var forseti ÍSÍ í 34 ár. Myndin sýnir er Sveinn
Björnsson, forseti ÍSÍ, leggur blómsveig á leiði Axels V. Tuliniusar. Á myndinni
eru auk hans, frá vinstri, Hannes Þ. Sigurðsson, Álfreð Þorsteinsson, Björn
Viimundarson, Jón Ármann Héðinsson, Þórður Þorkelsson og Hermann
Guðmundsson.
hennar sjötta sæti í bruni í Grindelwald
fyrr í þessum mánuði. -hsím.
|>RÖSTUR SIGMAR ÓSKARSSON
— sést hér með verðlaunin sem hann
fékk.
DV—mynd: Guðmundur Sigf.
Sigmar Þröstur
íþróttamaður
Vestmannaeyja
Sigmar Þröstur Óskarsson, mark-
vörður Þórsliðsins í handknattleik,
hefur verið kjörinn íþróttamaður Vest-
mannaeyja 1981. Sigmar Þröstur hóf
að verja mark Þórsara 16 ára og síðan
hefur hann staðið í markinu og sýnt
miklar framfarir.
Sigmar var markvörður islenzka
landsliðsins, skipað leikmönnum undir
21 árs í HM-keppninni í Portúgal, þar
sem Island hafnaði í sjötta sæti. Þá
hcfur Sigmar leikið með unglingalands-
liðinu.
Þessi ungi markvörður á framtiðina
fyrir sér. Hann var vaiinn í landsliðs-
hópinn i handknattleik fyrir lands-
leikina gegn Dönum á dögunum, en gal
ekki leikið, þar sem hann var ekki
búinn að ná sér eftir matareitrun, sem
hann fékk í Portúgal. Það er Rotary-
klúbhur Vestmannaeyja, sem stendur
fyrir kjöri iþróttamanns ársins.
FÓV-Vestmannaeyjar
IR-ingar í efsta
sætið í 2. deild
Sigruðu Fylki 19-16 í slökum leik í Laugardalshöll í gærkvöld
ÍR náði forustu í 2. dcild í gærkvöld í
fyrsla skipti á leiktímabilinu. Komst
upp fyrir Stjörnuna, Garðabæ, eftir
sigur á botnliði Fylkis 19—16 í Laugar-
dalshöll. Sá sigur var ekki sannfærandi
hjá ÍR-ingum, jafnvel heppnir að sigra
í leiknum. Árbæingar, sem féllu niður
úr 1. deild sl. vor og virðast nú stefna
beint niður í 3. deild, voru ótrúlega
óheppnir með skot í leiknum. Fjölmörg
þeirra lentu í stöngum ÍR-marksins.
Þeir Jens Einarsson, landsliðsmark-
vörður, og Björn -Björnsson gátu iítið
leikið með ÍR í gærkvöld, auk þess,
sem ÍR-liðið var einnig án Brynjars
Stefánssonar. Auðvitað höfðu meiðsli
þessara þriggja leikmanna áhrif. ÍR-
liðið var talsvert frá sínu bezta en það
er þó greinilegt ef ÍR kemst upp í 1.
deild í vor, að erfitt verður hjá liðinu
að leika þar. Sem sagt. Varla 1. deildar-
lið. Fylkisliðinu hefur farið ótrúlega
mikið aftur og það sem verst er, leik-
menn liðsins hafa misst trúna á sjálfa
sig. Höfðu ekki trú á því að þeir gætu
sigrað í gær. Einar Ágústsson lék ekki
með vegna meiðsla.
ÍR hafði tveggja marka forustu í
hálfleik, 9—7, og komst fljótt í 12—8 í
þeim síðari. Þá tóku Árbæingar við
sér. Minnkuðu muninn í 12—11. Það
stóð þó ekki lengi. ÍR náði aftur
þriggja marka forustu, 14—11. Fylkir
minnkaði muninn aftur í j,eilt mark,
14—13, en herzlumuninn vatitaði til að
fylgja þessu eftir. ÍR náði aftur tveggja
til þriggja marka forustu en Fýlkir
greip til þess ráðs að taka tvo leikmenn
ÍR, Sigurð Svavarsson og Guðmund
Þórðarson úr umferð. Það virtist ætla
að heppnast. 17—16, þegar þrjár mín.
voru eftir. En eins og áður tókst Fylki
ekki að fylgja þessu eftir. Meira að
segja skotið yfir mark ÍR úr vítakasti
og ÍR-ingar skoruðu svo tvö síðustu
mörkin í leiknum.
Arnarmótið íborðtennis:
RAGNHILDUR 0G HJÁLMTÝR
ÖRUGGIR SIGURVEGARAR
Hjálmtýr Hafsteinsson, KR og
Ragnhildur Sigurðardóttir,UMSB,
urðu sigurvegarar í meistaraflokki á
Arnarmótinu i borðtennis í Laugar-
dalshöll um helgina. Hjálmtýr sigraði
félaga sinn úr KR, Jóhannes
Hauksson, í úrslitum 21—15 og 21—
19. Ragnhildur sigraði Ástu Urbancic,
Erninum, í úrslitum í meislaraflokki
kvenna 21—12 og 21—13. Kristín
Njálsdóttir, UMSB, varð þar í þriðja
sæti en Stefán Konráðsson, Víkingi,
þriðji í meistaraflokki karla.
1 1. flokki kvenna sigraði Arna Sif
Kærnested, Vikingi. Elísabet Ólafs-
dóttir, Erninum, 21 —11 og 21 —17
I úrslitum. Elín Eva Grimsdóttir
Erninum, varð þriðja. Í 1. flokki karla
Skíðaskóli
Sigurðar
— að hefja starfsemi á ný
Skíðaskóli Sigurðar Jónssonar hefur
störf á ný í byrjun næstu viku og
verður kennt í Bláfjöllum og i
Hamragili. Skíðaskólinn hóf starfsemi
sína í fyrravetur með góðum árangri.
Sigurður Jónsson hefur verið fremsti
skíðamaður íslands í alpagreinum
undanfarin ár og ásamt honum verða
níu aðrir skíðakennarar við störf hjá
skólanum í vetur. Allt þekkt skíðafólk
og með próf erlendis frá í
skiðakennslu.
Fyrsta námskeiðið hefst á þriðju-
dagskvöld, kvöldnámskeið, en einnig
verða námskcið að deginum til, svo og
kennsla fyrir börn og sturfsfólk fyrir-
tækja. Allar upplýsingar um skiða-
skólann er hægt að fá í síma 76740 eftir
kl. 17.00 á daginn.
sigraði Björgvin Björgvinsson, KR.
Vann Árna Gunnarsson, UMFK, 21 —
10 og 21 —16 í úrslitum. Gunnar
Birkisson, Erninum, varð þriðji. í 2.
flokki karla sigraði Kristján Viðar
Haraldsson, HSÞ. Vann Gunnar Hall,
Erninum, 21 —16, 18—21, og 21—8 í
úrslitum. Sigþór Haraldsson HSÞ, og
Guðmundur I. Guðmundsson, Vikingi,
urðu jafnir í 3.—4. sæti.
Punktastaða BTÍ að loknu
Arnarmótinu er nú þannig í meistara-
flokki karla og kvenna
Meistaraflokkur karla:
1. Tómas Guðjónsson KR 86
2. Tómas Sölvason KR 47
3. Hjálmtýr Hafsteins KR 42
4. Bjarni Kristjánss UMFK 33
5. Jóhannes Hauksson KR 27
6. Gunnar Finnbjörnss.Örn 20
7. Kristján Jónasson Vík 18
8. Stefán Konráðsson Vík
9. Guðmundur Maríusson KR
10. Hilmar Konráðsson Vík
Meistaraflokkur kvenna:
1. Ragnhildur Sigurðard. UMSB
2. Ásta Urbancic Erninum
3. Kristín Njálsdóttir UMSB
4. Hafdís Ásgeirsdóttir KR
5. Erna Sigurðardóttir UMSB
18
13
4
2
1
PatBockfrákeppni
Allt bendir til að Pat Bock — Banda-
ríkjamaðurinn hjá Stúdentum, leiki
ekki með þeim næstu leiki í úrvalsdeild-
inni, hann meiddist á hné. í leik þeirra
gegn ÍR-ingum i gærkvöldi og þurfti að
yfirgefa völlinn.
-SOS.
Mörk ÍR í leiknum skoruðu Ársæll
Kjartansson 7, Guðmundur Þórðarson
7/1, Sighvatur Bjarnason 3, Sigurður
Svavarsson og Einar Björnsson eitt
hvor. Mörk Fylkis skoruðu Einar
Einarsson 5, Andrés Magnússon 4,
Gunnar Baldursson, 4/1, Jón Leví 2 og
Haukur Magnússon eitt.
Staðan i 2. deild er nú þannig eftir
sigur IRígærkvöld.
ÍR 9 7 0 2
Stjarnan 10 6 1 3
Þór, Vest. 9 5 13
Haukar 8 4 13
Týr.Vest. 10 4 0 6
Afturelding 8 2 3 3
Breiðablik 8 2 2 4
Fylkir 10 1 2 7
-hsím.
Skíðalyfta Breiða-
bliks vígð á morgun
„Það verður talsverð viðhöfn hjá
okkur í Breiðabliki, þegar hin nýja
skíðalyfta félagsins í Bláfjöllum verður
vígð á laugardag, 30. janúar. Hún mun
vera önnur stærsta skiðalyftan í
Bláfjöllum,” sagði Hafsteinn
Jóhannesson, hinn kunni íþrótta-
frömuður í Kópavogi, í samtali við 1)V.
Snorri Konráðsson, forseti bæjar-
stjórnar Kópavogs, mun flytja vigslu-
ræðuna kl. 13.30 á morgun. Skíða-
lyftan er i Drottningargili í Bláfjöllum
og það er stvrktarmannafélag skíða-
deildar Brciðabliks, sem haft hefur veg
og vanda af framkvæmdum við skíða-
lyftuna. F.ftir vigsluathöfnina verður
frír aðgangur að lyftunni fyrir
almenning. -hsím.
Drott í efsta sæti,
GUIF í fallhættu
Þrátt fyrir góða frammistöðu
Andrésar Kristjánssonar, fyrrum
Hauka-leikmanns, með GUIF’ í All-
svenskan í sænska handknattleiknum
er liðið í fallhættu. Tapaði 32—25 íyrir
efsta liðinu, Drott, í 16. umferðinni um
síðustu helgi. Andrés var markhæstur í
liði GUIF' með sex mörk en landsliðs-
maðurinn sænski, Bo Andersson,
næstur með 5/2.
Úrslit í öðrum leikjum í 16. umferð-
inni urðu þau að H 43 tapaði á heima-
velli í Lundi fyrir Gautaborgarliðinu
Heim 24—29, Vikingarna og Warta
gerðu jafntefli 21—21, Frölunda vann
Kroppskultur 28—24. Redbergslid tap-
aði á heimavelli fyrir Ystad 19—25 og
Karlskrona tapaði á heimavelli fyrir
Lugi 20—23.
Sautjánda umferðin verður leikin nú
um helgina og þá leikur GUiF á heima-
velli við neðsta liðið, Redbergslid. Það
er athyglisvert að Svíar, sem taka þátt í
heimsmeistarakeppninni i Vestur-
Þýzkalandi sem hefst eftir tæpan mán-
uð, hafa leikið sextán umferðir í sinni
meistarakeppni á sama tíma og við hér
á íslandi höfum leikið sjö umferðir.
Það er því talsvert ntikill munur á
framkvæmd meistaramótanna i þess-
um löndum og það kemur ekki niður á
félagsliðum sænsku þó Svíar taki þátt i
heimsmeistarakeppninni.
Staðan í Allsvenskan er nú þannig:
Drott
Heim
Ystads IF
Frölunda
Karlskrona
Warta
Lugi
Kroppskulturló
Guif 16
Vikingarna 16
H 43 16
Redbergslid 16
6 2 8 360—378 14
6 0 10 391—401 12
5 2 9 343—379 12
5 0 11 373—412 10
2311 334 392 7
-hsím.
Atli skoraði
51 mark
Atli Hilmarsson hefur nú gert 51
mark með liði sinu, Hameln, í 2. deild
vestur-þýzka handboltans. Hameln
hefur leikið sextán leiki en Alli missti af
þremur fyrstu vegna meiðsla. Atli
hefur því að meðaltali skorað fjögur
mörk i leik.
Hameln varð fyrsta liðið til að sigra
Aletnhoiz, efsta liðið í riðlinum, en 2.
deildin er leikin í tveimur riðlum. Vann
Hameln örugglega 22—16 er liðin
mættust fyrir hálfunt mánuði.
Hameln er nú í þriðja sæti með 23
stig að loknum 16 leikjum. Alentholz
leiðir með 32 stig eftir átján Jeiki.
Fjórtán lið eru í hvorum riðli, mótið
samtals 26 umferðir.
-KMU.
Norskur
dómari rotaður
Norskir íþróttamenn virðast eiga
erfitt með að hemja skap sitt gagnvart
dómurum. Frægt varð um allan heim
sl. sumar, þegar markvörður í knatt-
spyrnunni rotaði dómara á leikvelii. Og
nú iiggur dómari með heilahristing á
sjúkrahúsi í Osló eftir að liafa verið
sleginn niður af lcikmanni í ishokkey-
leik.
Atvikið átti sér stað, þegar F'risk og
Stjernen léku í Asker-hnllinni sl.
sunnudag. F’risk sigraði 7—4 og það
var Stjörnu-leikmaðurinn Per Öyvind
Myhrene, sem rotaði dómarann Petter
Larby. Dómarinn var þá að reyna að
skilja Myhrenc og Mortcn Setherrene,
Frisk, sem höfðu lent i slagsmálum.
Það heppnaðist ekki og meiðsli
dómarans eru talin það slæm, að hann
muni ekki framar dæma íþróttaleiki.
Myhrene var rekinn af velli það sem
eftir var leiksins. Búast má við að hann
fái mjög strangan dóm.
Myndin til vinstri sýnir atvikið.
Larby dómari i átökum við leikmenn
og Arvid Eriksen, aðaldómari leiksins,
að reyna að koma honum til aðstoðar.