Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1982, Síða 26
34'
DAGBLAÐIÐ& VtSIR. FÖSTUDAGUR 29. JANUAR 1982.
OK veghefill
Komatsu ’75 nýuppgerð
Volvo 1025 ’78
Scania 111 ’78
Scania 141 ’78
Volvo 85 ’77 ekinn aðeins 120 þús.
km.
Liebherr hjólaskófla 4X4
Bröyt X2B 1969, 1970, 1974
Bröyt X20
Ingersoll-Rand 1405 1978 4,2 m3
Internationale grafa.
Símar 81666 og 81757
Andlát
Jón Grétar Sigurösson lögfræðingur,
áður til heimilis að Melabraut 3 Sel-
tjarnarnesi, lézt 21. janúar. Hann var
fæddur 13. maí 1929 á Seltjarnarnesi.
Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson
og kona hans Þuríður Helgadóttir. Jón
Grétar lauk lagaprófi frá Háskóla ís-
lands 1957. Hann var síðan lög-
fræðingur Innflutningsskrifstofunnar
frá 1957 til 1960, er skrifstofan var lögð
niður. Siðan rak hann lögfræðiskrif-
stofu í Reykjavík til 1973. Árið 1974
var hann settur skrifstofustjóri Toll-
gæzlu íslands og starfaði þar æ síðan.
Eftirli fandi kona Jóns er Guðbjörg
Hannesdóttir, þau eignuðust fjögur
börn. Jón Grétar verður jarðsunginn í
dag.
Sigríður Jónsdóttir frá Heimagötu 22,
Vestmannaeyjum andaðist 22. janúar
1982. Hún var fædd 30. mai 1879 að
Dagverðarnesi í Hvolhreppi. Foreldrar
hennar voru Ingveldur Jónsdóttir og
Jón Jónsson. Árið 1902 fluttist Sig-
ríður til Vestmannaeyja, en þaðan varð
hún að flytja 23. janúar 1973. Dvaldi
hún i Reykjavík upp frá þvi.
Meðfylgjandi niynd var tekin á 100
ára afmælisdegi Sigriðar.
Minningarathöfn um Sigríði fer Iram
frá Fossvogskirkju laugardaginn 30.
janúar kl. 10.30. Jarðarförin fer fram
frá Breiðabólsstað i Fljótshlíð kl. 15
sama dag.
Guörún Jónsdóttir, Flókagötu 12, lézt i
Borgarspítalanum 27. janúar.
Hulda Þórðardóttir, Veltusundi 3, lézt
ígær.
Útför Páls Stefánssonar, Borgarnesi,
verður gerð frá Borgarneskirkju laug-
ardaginn 30. janúar 1982 kl. 14.00.
Árnað heilla
Brúöhjónum skal benl á að sendi þau
brúðarmynd til birtingar í Dagblaðið
og Vísi, fá þau í brúðargjöf frá DV
áskrift á blaðinu í einn mánuð.
Fundir
Kvenfélag
Árbœjarsóknar
'heldur aöalfund sinn í safnaöarheimilinu
mánudaginn 1, febrúar kl. 20.30.- Venjuleg
aöalfundarstörf og boðið verður upp á pottrétt.
Stjórnin.
Aðalfundur Handknatt-
leiksdeildar Vals
Handknattieiksdeild Vals heldur aöalfund sinn að
Hlíðarenda fimmtudaginn 4. febrúar kl. 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Kvenfólag
Laugarnessóknar
Aðalfundur verður haldinn mánudaginn 1. febrúar í
fundarsal kirkjunnar kl. 20. Formannsk-iör.
Stjórnin.
Fundir
Kvenfélag Háleigssóknar heldur aðalfund sinn
þriðjudaginn 2. febrúar ki. 20.30 í Sjómannaskólan-
um. Venjuleg aðalfundarstörf. Mætið vel og stund-
víslega. Stjórnin.
Kvenstúdentar!
Fyrsti hádegisfundur okkar á þessu ári verður hald-
inn laugardaginn 30. janúar að Hliðarenda við
Nóatún. Þar mun Steinunn Sigurðardóttir rit-
höfundur tala um einn frumlegasta og skemmtileg-
asta rithöfund íslands, Málfriöi Einarsdóttur, og
lesa úr bók hennar: Bréf til Steinunnar. Fjölmenn-
um. Stjórnin.
Átthagasamtök Héraðs-
manna og Félag Eskfirðinga
og Reyðfirðinga
halda árshátíð í Ártúni laugardaginn 30. janúar.
‘Húsið opnar- kl. 19.00. Aðgöngumiðar seldir í
bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18,
fimmtudag og föstudag frá kl. 16—18.
Afmæli
75 ára afmæli á í dag, 29. janúar,
Guöný S. Richter, Óðinsgötu 8 hér i
Rvik.
Messur
Kvenfélag
Óháða safnaðarins
Eftir messu næstkomandi sunnudag, 31. janúar,
verða kaffiveitingar til eflingar Bjargarsjóði.
Fíladelfíukirkjan
í Reykjavík
Sunnudagaskóli kl. 10.30. Almenn guðsþjónusta
kl. 20.00. Ræðumaður Óskar Gislason frá Vest-
mannaeyjum.
Minningarspjöld
Minningarkort Minningar-
sjóðs Gigtarfélags íslands
fást á eftirtöldum stöðum i Reykjavík: Skrifstofu
Giglarfélags íslands, Ármúla 5, 3. hæð, sími: 20780.
Opið alla virka daga kl. 13—17., hjá Einari A. Jóns-
syni, Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis, s. 27766,
hjá Sigrúnu Árnadóttur Geitastekk 4, s. 74096., í
gleraugnaverzlunum að Laugavegi 5 og i Austur-
stræti 20.
Fundaskró
AA-samtakanna á
íslandi
Föstudagur
REYKJAVÍK
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 14.00
Tjarnargata 5. Græna húsið Enska. kl. 19.00
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið, opinn fjöl-
skyldufundur kl. 21.00
Tjarnargata 5 (91-12010). lokaður uppi kl. 21.00
Tjarnargata 3 Rauða húsið, Hádegisfundur kl. 12.00
Tjarnargata 3 (91-16373). Rauðahúsið kl. 21.00
Hallgrímskirkja, Byrjendafundir kl. 18.00
Neskirkja, 2. deild kl. 18.00
Neskirkja kl. 21.00
LANDIÐ
Akureyri, Sporafundur kl. 21.00
Akureyri, (96-22373), Geislagata 39 kl. 12.00
Heliissandur, Hellisbraut 18 kl. 21.00
Húsavík, Höfðabrekka 11 kl. 20.30
Keflavík (92-1800) Klapparstíg 7 kl. 23.30.
Neskaupsstaður, Egilsbúö kl. 20.00
Selfoss, (99-1787). Sigt. 1, Sporafundur kl. 20.00
Minningarkort kvenfé-
lagsins Seltjarnar
\/kirkjubyggingarsjóös eru seld á bæjarskrifstofun-
um á Seltjarnarnesi og hjá Láru í síma 20423.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og jarðarfarar Hallgríms Garðarssonar,
lllugagötu 34 Vestmannaeyjum.
Addý Guöjónsdóttir,
Sigfríö Hallgrímsdóttir,
Sæþór Hallgrímsson,
Borglind Hallgrímsdóttir,
Marta Hallgrímsdóttir, Jónas Hroinsson
Sigfríð Bjarnadóttir, Garðar Jónsson
Minningarkort
Styrktarfólags
vangefinna
fást á eftirtöldum stöðum:
Áskrifstofu félagsins, Háteigsvegi 6.
Bókabúð Braga Brynjólfssonar, Lækjargötu 2.
Bókaverzlun Snæbjarnar, Hafnarstræti 4 og9.
jBókaverzlun Olivers Steins, Strandgötu 31, Hafnar-
firði.
Athygli er vakin á þeirri þjónustu félagsins að
tekið er á móti minningargjöfum í síma skrif-
stofunnar 15941 og minningarkortin síðan innheimt
hjá sendanda með giróseðli.
Þá eru einnig (il sölu á skrifstofu félagsins
minningarkort Barnaheimilissjóðs Skálatúns-
heimilisins.
Tilkynningar
Hótel Loftleiðir — hár-
snyrting, nudd, Ijós, gufa og
fl.
Hársnyrtistofan að Hótel Loftleiðum hefur nú tekið
til starfa undir stjórn þeirra Sigríðar Guðmunds-
dóttur hárgreiðslumeistara og Svönu L. Ingvalds-
dóttur hárskera- og hárgreiðslusveins. Rakarastofan
sem áður var á öðrum stað í húsinu og hárgreiðslu-
stofan hafa nú verið sameinaðar og eru miðsvæðis í
húsinu, næstar sundlaug og snyrtistofu.
Þær Sigriður og Svana störfuðu áður á Rakara-
og hárgreiðsluslofunni á Klapparstíg. Sigriður lærði
hins vegar hjá Helgu Jóakimsdóttur en Svava lærði
á Rakara- og hárgreiðslustofunni á Klapparstig. Þær
annast alhliða hársnyrtingu og klippingar. Breyting
sú sem hér hefur á orðið er til hagræðingar fyrir
hótelgesti og aðra viðskiptavini sem koma úr
Reykjavík og nágrannabæjum.
Snyrtistofan að Hótel Loftleiðum undir stjórn
Elisabetar Matthiasdóttur snyrtifræðings er næst
hársnyrtistofunni. Elisabet hefur starfrækt snyrti-
stofuna að Hótel Loftleiðum í rúmt ár. Hún starfaði
áður á Snyrtistofu Rósu og Maju i Hafnarfirði, en
lærði hjá Snyrtiskóla Margrétar Hjálmtýsdóttur.
Á sömu hæð hótelsins og snyrtistofurnar tvær er
einnig sundlaugin. Þar er að finna gufuböð og ljósa-
lampa sem einnig eru ætlaðir til lækninga. Enn-
fremur heilsuræktartæki og nuddsérfræðingur er á
staðnum sem annast þá hlið þjónustunnar. Sérstök
vatnsnuddtæki verða sett upp i sundlauginni á næst-
unni.
Með þeim breytingum og hagræðingum sem nú
hafa verið gerðar að Hótel Loftleiðum er þar nú á
einum og sama stað heilsuræktarstaður og alhliða
snyrtistaður.
Flóamarkaður Félags ein-
stæðra foreldra
Flóamarkaður í undirbúningi. Óskum eftir öllum
mögulegum gömlum munum sem fólk þarf að losa
sig við. Gömul eldhúsáhöld og slíkt vel þegið.
Sækjum helm, sími 11822
Samtök áhugafólks um
áfengisvandamálið
Fræðslu og leiðbeiningastöð SÁÁ. i Síðumúla 3—5,
Reykjavík. Viðtalstimar leiðbeinenda alla virka daga
frákl. 9—17. Sími 82399.
Fræðslu- og leiðbeiningastöð Síðumúla 3—5,
Reykjavík. Upplýsingar veittar í sima 82399.
Kvöldsimaþjónusta SÁÁ alla daga ársins frá kl.
17—23 i síma 81515.
Athugið nýtt heimilisfang, SÍÐUMÚLI 3—5,
Reykjavik.
Getum við orðiö þér að liði?
Er ofdrykkja í fjölskyldunni, i vinahópnum eða
meðal vinnufélaga? Ef svo er — mundu að það er
hlutverk okkar að hjálpa þér til að hjálpa öðrum.
Hringdu i fræðslu- og leiöbeiningastööina og leitaðu
álits eða pantaðu viðtalstíma.
Hafðu það hugfast að alkóhólistinn sjálfur er sá
sem minnst veit um raunverulegt ástand sitt.
Samtök áhugafólks
um áfengisvandamáliö.
Barnaspítalasjóður
Hringsins
í desember sl. færði Barnaspítalasjóður Hringsins
Umsjónarfélagi einhverfra barna kr. 250.000 að
gjöf. Hannes Ástþórsson arfleiddi Barnaspítalasjóð-
inn að öllum sínum eignum og er þetta beint framlg
þaðan. Fjárhæðinni skal varið til kaupa á húsbúnaði
og tækjum til notkunar í hinu nýja meðferðarhcimili
einhverfra (geðveikra) barna að Trönuhólum 1,
Reykjavik.
Kvenfélagið Hringurinn, sem stjórnar Barna-
spítalasjóðnum, er löngu þjóðkunnt fyrir starf í
þágu sjúkra barna og hafa geðveik börn áður notið
þess eins og vel kom fram við uppbyggingu Geö-
deildar Barnaspitala Hringsins.
Ágóði hlutaveltu til Sjálfs-
bjargar
Þessi ungmenni héldu hlutaveltu í Riúpufelli 44
laugardaginn 23. janúar. Ágóði hennar, kr. 233.-
rann til Sjálfsbjargar, Félags fatlaðra í Reykjavík.
Börnin á myndinni eru í aftari röð: Hrefna,
Ásmundur og Guðbjörg, fr. röð: Helen, Daðey og
Gerðar.
Samkomuherferð í Reykja-
vík
Foringjar og herskólanemar frá Herskóla Hjálp-
ræðishersins í Osló koma til Reykjavikur á morgun,
föstudaginn 29. janúar.
Með i hópnum eru tveir íslendingar, þau
29. janúar. Með i hópnum eru tveir íslendingar, þau
Rannveig María Nielsdóttir og Erlingur Níelsson.
Þessi hópur mun fara víða um bæinn, á vinnustaði,
sjúkrahús og elliheimili, auk þess sem haldnar verða
útisamkomur i miðbænum. Á hverju kvöídi veröa
samkomur í Herkastalanum, þar sem þetta unga
fólk mun syngja, spila og tala. Þessi samkomuher-
ferð verður til og með sunnudeginum 7. febrúar.
Báða sunnudagana verða einnig samkomur fyrir
hádegi. Barnasamkomur verða i Hóiabrekkuskóla
báða laugardagana kl. 14, sunnudagaskóli i hersaln-
um og barnasamkomur á hverjum degi 1.-5.
febrúar.
Á myndinni má sjá hópinn sem kemur hingað.
Þetta er reyndar aðeins lítill hluti af nemendum Her-
skólans þvi samtímis þessari herferð eru líka her-
ferðir víða í Noregi og í Kaupmannahöfn. Þetta
unga fólk, sem kemur hingað, er afskaplega duglegt
að syngja og spila. Viljuin við þvi hvetja Reykvík-
inga og nærsveitamenn að fjölmenna á þessar sam-
komur.
/