Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 28. JUNI1982.
Háskólinn skilar af sér
39 LÆKNAR, 35
VERKFRÆÐINGAR,
HJÚKKUR OG
LÖGFRÆÐINGAR...
263 kandídatar voru brautskráöir frá
Háskóla Islands síðastliöinn laugar-
dag. Brautskráningin fór fram viö
hátíðlega athöfn í Háskólabíói.
Aö þessu sinni voru brautskráöir sex
guöfræðingar, 39 læknar, einn aðstoö-
arlyfjafræöingur, tuttugu hjúkrunar-
fræðingar, tólf sjúkraþjálfarar, 25 lög-
fræöingar, einn íslenzkur málfræðing-
ur, einn sagnfræöingur. 33 voru braut-
skráöir meö B.A.-próf í heimspeki-
deild, tveir erlendir stúdentar meö
próf í í íslenzku, tólf byggingarverk-
fræöingar.þrettán vélaverkfræöingar,
tíu rafmagnsverkfræöingar, 28 með
B.S.-próf í raungreinum, 38 viðskipta-
fræöingar, sex tannlæknar og sextán
kandídatar voru brautskráðir meö
B.A.-próf í f élagsvísindadeild.
-KMU.
Á fremsta bekk á Háskólahátíð sátu prófessorar og heiöursgestir. Guömundur Magnússon háskólarektor situr á
milli Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands og Kristjáns Eldjárn fyrrum forseta. Næst okkur á myndinni er
Haildóra Eldjárn fv. forsetafrú. DV-mynd Einar Olason.
SHppfétagió íReykjavíkhf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi
Símar 33433og33414
CIR VMfttQ ÞCKUR
önnur eykur endinguna.
UT/R
Nýju litakortin okkar hitta alveg í mark.
Á þeim finnurþú þinn draumalit.
AKRD
VITRETEX Sandmálning er hæfilega gróftil að
regn nái að þrífa vegginn og litirnir njóta sín í áraraðir,
hreinir og skinandi.
mm
Góð ending VITRETEX Sandmálningar er viðurkend
staðreynd. Reynslan hefur þegar sannað hana,
sem og ítarlegar veðrunarþolstilraunir.
VCRÐ
Hlutfall verðs og gæða VITRETEX Sandmálningar
teljum við vera hið hagstæðasta sem býðst á markaðnum
og er það líklegasta skýringin á sífeldri
aukningu sölunnar,-auk þess auðvitað hve litirnir eru fallegir.
Ný litakort á fimm sölustöðum í Reykjavík
og fjölda sölustaða út um land allt.
mmiNmMÐ vmmx
Fyrsta prestverk
nýs prests í Árnesi
Sr. Einar Jónsson er nýfluttur aö
Ámesi meö fjölskyldu sína. Hans
fyrsta prestverk var í gær, er hann gaf
saman í hjónaband Olöfu Brynju Jóns-
dóttur og Reyni Snæfeld Stefánsson.
Brúöhjónin komu aö Árnesi alla leið
frá Bolungarvík þar sem þau búa.
Olöf er yngsta bam hjónanna á
Munaðarnesi, PálínuGuðjónsdóttur og
Jóns Jens Guðmundssonar. Viö athöfn-
ina var einnig skírt bamabarn þeirra
Pálinuog Jóns.
I ár veröur ekkert bam fermt í
Ámeshreppi en a.m.k. tvö á næsta ári.
-Regína Gjögri.
Fannstu jarö-
skjálftann í
síöustu viku?
— lesendur beðnir um aðstoð við rannsókn
á áhrifum skjálftans
Jaröeölisfræðideild Veöurstofu Is-
lands hefur farið þess á leit viö Dag-
blaðið og Vísi að birta spurningalista
vegna jarðskjálfta sunnudaginn 20.
júní síðastliðinn klukkan 15.45. Átti
skjálftinn upptök sín nálægt Kleifar-
vatni.
Jarðskjálfti þessi fannst talsvert
víöa suðvestanlands. Aö sögn Veður-
stofunnar hefur það hagnýtt og
vísindalegt gildi að almenningur veiti
Nafn:
Hvarstaddur, heimi/isfang: Á hvaða hæð. . .?
Undirstaða húss: Klönn . móhel/a . sanrfur ?
Er húsið steinhús r timhurhús , hlaðið r ?
Já Nei Veit ekki
■ □ □ □ Fannst skjálftinn? (Ef ekki sleppið öðrum spurn- ingum)
□ □ ' □ Fundu flestir innanhúss jarðskjálftann?
□ □ . □ Fundu hann allir innanhúss?
□ □ □ Fann einhver skjálftann utanhúss?
□ □ □ Fundu hann flestir, sem úti voru?
□ □ □ Fannst skjálftinn sem veikur titringur?
□ □ □ Fannst hann eins og þungt farartæki æki hjá?
□ □ □ Virtist hann eins og högg eða sprenging?
' □ □ . □ Hriktiigluggum eða ofnum?
□ Q □ Sveifluðust Ijósakrónur eða aðrir hlutir, sem lausir hanga?
□ □ □ Brakaði i veggjum eða gólfi?
□ □ □ Hristust húsgögn?
□ □ . □ Hreyfðust myndir á veggjum?
□ □ ■ . □ Stöðvaðist pendúlklukka?
□ □ □ Færðust smáhlutir úr stað eða ultu?
□ □ □ Hrukku hurðir upp eða skullu aftur?
□ □ □ Duttu bækur úr hillum?
!0 f? ■Q. 1 1 I að þið klipptuð spurningalistann úr blaðinu og
senduð hann útfylltan, jafnve/ ítarlegrí lýsingu með. Heimilisfangið
er: Veðurstofa íslands. Jarðeð/isfræðidei/d. Bústaðavegi 9, 108 Reykjavik.
sem mestar upplýsingar um áhrif
jarðskjálftans. Em lesendur því beönir
um að svara spumingunum, sem hér
fylgja, með því að setja kross í viö-
komandi reitl Þess er ennfremur óskaö
að spumingalistinn verði klipptur úr
blaðinu og sendur Veðurstofu Islands.
Æskilegt er að fá einnig svör frá fólki
sem býr tiltölulega nálægt upptökun-
um, svo sem í Reykjavík, jafnvel þótt
það hafi ekki fundið skjálftann.