Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 28. JUNÍ1982. Ert þú ráðþrota? Baráttan við kísil, ryð og fitu, sem setzt hefur í handlaugar, sturtubotn, eða baðið, þekkja allir. Ef þú crt í vandræðum, liafðu þá samband, » m A n 1 In *• /vni* Ait* RYÐVÖRN sf. SMIÐSHOFÐA 1, S 30945 BÍLARYÐVÖRN UNDIRÞVOTTUR M ÓTOR ÞVOTTUR GÓA HF. - SUMARLEYFI Verksmiðja okkar verður lokuð vegna sumarleyfa frá 2. júlí til 5. ágúst. SÆLGÆTISVERKSMIÐJAN GÓA HF. Reykjavíkurvegi 72 Hafnarfirði. 2 BMW og Volkswagen Golf GTI til sölu nýinnfluttir frá Þýzkalandi. Borgartúni 29 Rcykjavík Símar: 28288 - 28488 - 28255. ÚTBOÐ Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboðum í rafbún- að fyrir rafveitustöð að Keldeyri við Tálknafjörð og Mjólkárvirkjun við Arnarfjörð. Útboðsgögn fást hjá Orkubúi Vestfjarða, Stakka- nesi 1, ísafirði, sími 94-3211. Tilboð verða opnuö þriðjudaginn 17. ágúst kl. 14.00 og þurfa tilboðin að hafa borizt fyrir þann tíma. Orkubú Vestfjarða, tæknideild. Neytendur Neytendur Ney OPINN DALKUR: Stórum kartöflih pokum dreift út á landsbyggöina — minni pokar seldir á Reykjavíkursvæðinu Sigurlaug hringdi frá Kaupfélagi Vest- ur-Barös trendinga: Viö erum ekki ánægö meö þaö hér úti á landsbyggöinni aö geta ekki keypt kartöflur í 2 1/2 kg pokum frá Græn- metisverzlun landbúnaöarins. Þau svör sem við fengum þaöan voru, aö svo mikil sala í 2 1/2 kílóa pokum væri á höfuðborgarsvæðinu, aö ekki væri hægt að afgreiöa annaö en 5 kg poka út á landsbyggðina. Hingaö kemur mikiö af ferðafólki og getum viö ekki boðið því upp á 5 kílóa kartöflupoka, né heldur finnst okkur réttiátt aö viö þurfum að vigta kartöflur í jafn litla poka og verzlanir á Reykjavíkur- svæöinu geta fengiö tilbúna til sölu. Sama er aö segja um aðra staöi lands- byggðarinnar, þangaö eru ekki seldir nema 5 kílóa pokar. Hvaöa rétt hafa kaupmenn á höfuöborgarsvæöinu fram yfir verzlanir úti á landi? Forstjóri Grænmetisverzlunar land- búnaðarins verður fyrir svörum: „Viö höfum reynt aö sinna því sem viö getum, vélamar afkasta ekki meiru. Þaö fer jafn mikill tími í aö setja kartöflur í minni og stærri pok- ana. Viö getum ekki sinnt öllu landinu, þá afgreiöum viö minni pokana til þeirra sem hafa viö okkur föst og mikil viöskipti, en einungis hina stærri til þeirra sem hafa ekki viöskipti við okkur nema endrum og eins. Islenzku kartöflurnar eru búnar, nú höfum viö hollenzkar og ítalskar kar- töflur. Frá Homafirði eru seldar kar- töflur til Vestmannaeyja, frá Svalbaröseyri eru seldar kartöflur um Noröurland og á Vestfiröina. Þeir lentu í óhöppum fyrir noröan vegna frosts og snjóa, svo aö þunginn hefur færzt yfir á okkur.” Starfsmenn kaupfélaga landsbyggö- arinnar eru ekki ánægðir meö aö þurfa að vigta kartöflur úr 5 kg pokum í 2 1/2 kg poka, þegar verzlanir á höfuöborgarsvæöinu geta fengiö minni pokana tilbúna til endursölu. Milupa bamamatur skemmist—athugið síðasta söludag Móðir ungs bams hringdi: Bamið mitt, nokkurra mánaða, varð fyrir þeirri óþægilegu reynslu aö boröa skemmdan bamamat. Þama er um aö ræöa Milupa-matarduft, sem hrært er saman við sjóöandi vatn. Á botni hvers Milupa pakka er merkt.ur síðasti sölu- dagur. Ég veitti því ekki athygli, fyrr en barnið veiktist, þá sá ég stimpil undir pakkanum 1.8. ’8L Þessir stimpl- ar sjást ekki í fljótu bragöi, en þeim er þrykkt á pakkana. Ég fór í matvöruverzlunina, lét þar vita af þessum gömlu vömm sem þar voru seldar. Kvaöst verzlunarstjórinn ekki hafa vitaö aö á þessum Milupa- umbúöum væm stimplaðir síöustu söludagar. Viö nánari athugun kom í ljós aö'mikill hluti barnamatsins var oröinn gamall. Hluti hans var dagsett- ur meö síöasta söludegi í marz 1981 og dagsetningar á pökkunum vom allt til maímánaöar 1983. Meö þessum oröum mínum vil ég aðvara fóik um aö kaupa Milupa- barnamat svo og aörar matvömr, án þess aö líta á síðasta söludag. Milupa barnamatur er á verðinu frá 7—14 krónurpakkinn. —sem er þrykkt undir pakkana Síöasta söiudegi á Milupa-barnamat er þrykkt undir pakkana. Stimpillinn sést ekki nema að sé gáð. Fólki er ráðlagt aö líta undir pakkana, því barnaduftiö hefur ekki ótakmarkaö geymsluþol. DV-mynd RR. Buxumar létu lii — skaðinn bættur að hálfu verzlunarinnar Ásta Guömundsdóttir hringdi: Ég keypti mér rauöar síöbuxur í verzluninni Sautján viö Laugaveg 51. Buxumar eru rauðar aö lit og bera merkið Italía. Þegar ég þvoöi þær létu þær mikinn lit, hvítu vasarnir urðu rauðir og buxumar gráleitar, þær líkt- ust einna helzt margþvegnum galla- buxum. Ekki var ég ánægö meö flíkina og fór því aftur í verzlunina með nýþvegnu buxurnar. Ég ræddi við verzlunar- stjórann og mætti þar mikilli alúð og almennilegheitum. Engar kvartanir höföu borizt áöur yfir þessari gerö buxna. Fúslega fékk ég afhentar aörar buxur og var ég beðin að þvo þær ein- ungis ásamt hvítum klút til að sjá hvort þær létu lit. Ég var spurö hvort buxumar hefðu skemmt einhvern þvott, þá væri verzlunin fús til aö greiða skaöann. — Þetta erfyrirmynd- arþjónusta og flyt ég verzluninni þakkirfyrir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.