Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 28. JUNI1982. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd NÝTT TILBOÐ FRÁ PLO VEKUR VONIR UM FRIÐ — Palestínuskæruliðar bjóðast til að af henda líbanska hernum vopn sín ef ísraelsmenn draga sig til baka 5 km f rá Beirút Frelsissamtök Palestínumanna, PLO, hafa sett fram nýja tillögu sem vonir eru bundnar viö að komið geti í veg fyrir að úrslitaorrusta ísraelska innrásarliðsins í Líbanon og Palestínuskæruliða verði háö inni í Beirút, höfuðborg Líbanons. PLO-menn hafa boðizt til að láta vopn sín af hendi við stjómarher Líbanons og verða á brott með fimm þúsund liðsmenn sína frá Beirút. I staðinn krefjast Palestínumenn þess að Israelsmenn dragi herlið sitt til baka í fimm kilómetra fjarlægð frá borginni þannig að brottflutning- urinn gæti átt sér staö án áhættu. Svo virtist sem þetta nýja tilboð PLO uppfylli þau skilyrði sem ísraelska ríkisstjórnin kraföist á fundi sínum í gær. Miklar vonir eru bundnar við að þetta tilboð geti forðað Beirútborg frá algjörri eyöi- leggingu og frekara mannfalli óbreyttra borgara. Nýja tilboöið var sett fram eftir stööuga fundi í gærkvöldi á milli leið- toga PLO og ráöherra úr stjórn Líbanons, þar á meðal Shafiq Al- Wazzan forsætisráðherra sem bauðst til að segja af sér embætti á föstudag. Israelsmenn höfðu í gær hvatt Palestínumenn til að leggja niður vopn eða eiga á hættu algera útrým- ingu ella. Israelskir embættismenn sögðu í gærkvöldi að svo virtist sem vopnahlé sem komið var á síöastlið- inn föstudag væri haldið. Eftir langan ríkisstjómarfund í gær tilkynntu Israelsmenn að þeir gætu fallizt á að Palestínuskæruliðar afhentu stjómarher Líbanons vopn sín og að þeir fengju síðan að fara frá Beirút undir vemd Rauða krossins til Sýrlands. Áætlað er að á milii fimm og sex þúsund vopnaðir liðs- menn PLO séu í Beirút. Philip Habib, sérlegur sendimaður Bandaríkjastjórnar í Libanondeil- unni, hefur undanfarna daga verið i Beirút þar sem hann hefur reynt aö miöla málum. Ariel Sharon, varnarmálaráö- herra Israels, sagði í gær að Israels- stjórn hefði ekki útilokaö mögu- Jeikann á að beita valdi gegn skæru- liöum í Beirút. Hann sagði að ísraelska stjórnin „legði sig alla fram um að fá palestínsku hryðju- verkamennina frá Beirút án bardaga.” Hann bætti því við að ef skæruliðar legðu niður vopn myndu þeirbjargalífisínu. Sharon sagði aö ekki væri fyrir nein stjómarsamþykkt í Israel um að ekki yrði ráðizt inn í Beirút. Hann sagöi þó að ísraelska stjórnin yrði að samþykkja slika árás áöur en hún yrðigerð. Mannfjöldinn krafðist þess að Lech Walesa yrði látinn laus. PÓLVERJAR MINNAST ÓEIRÐA1956 Guðsþjónustur og minningarhátiðir eru á dagskrá í borginni Poznan í vest- urhluta Póllands í dag til minningar um óeirðimar sem uröu þar árið 1956 er meira en s jötíu manns létu lífiö. Kertaljós loguðu í nótt við tvö minn- ismerki um óeiröirnar á torgi i mið- borg Poznan. Kransar veröa í dag lagðir við verksmiðjur þar sem flestir verkamannanna létu lífið í óeirðunum. Mörg hundmð stuðningsmenn Ein- ingar, sem tóku í gær þátt í hinni opin- beru minningarhátíð, kröfðust þess að Lech Walesa, hinn fangelsaði leiðtogi samtakanna, yrði látinn laus. Fólkið lirópaði: „Látið Lech Walesa lausan” er þaö gekk framhjá minnismerki sem Eining, samtök hinna óháöu verka- lýðsfélaga í Póllandi, lét reisa í fyrra. Á sams konar hátíð í fy rra hlýddu 150 þúsund Pólverjará LechWalesaflytja ávarp í Poznan. Þar lýsti hann því yfir að Pólverjar heföu stigiö fyrsta skrefiö í átt til alvöru frelsis verkalýðshreyf- ingarinnar. Israelsklr hermann halda fyrlr eyrun um lelö og þeir senda sprengikúlur sínar í átt að Beirút. Vopnahléð hefur aö mestu verið haldið um helgina. NÝKOMIÐ- NÝKOMIO- NÝKOMIP- M/LE-€>UR3ðL-A TEGH05 str-^v^ ( U'TÍR TJósbrÚnt LE-ÐUR ‘ M/6ÚMMÍStX.fl 06 ÍNWLE66Í TEG: 2.207 —71/ mSjöOJO m/6ÚmmÍS0LA OG INNLE66Í TEGM75 St R: 40'4-5/4 r\~2/\ LlTlR'- BRlJNT JUJjO le-dur — SKÓVERZLÞÓRÐAR PÉTURSSONflR ÍÆstrStissÍmí:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.