Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1982, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 28. JONI1982. 43 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Tíma-Krumma eykst fiskur um hrygg Krumminn á baksíðu Tím- ans sendi Jónasi Kristjáns- syni ritstjóra DV kveðju á föstudaginn. Þar vitnar krummi í leiðara blaðsins þar sem segir: „Eftir því sem Israelsmönnum jókst fiskur um hrygg, jukust bemaðar- yfirburðir þeirra í heims- hlutanum”. Siðan segir kramminn: „Þetta er senni- lega aiveg rétt hjá Jónasi, en það er nú samt betra að iáta mönnum vaxa fisk um hrygg.” Ábending krumma er vin- samleg. Rétt er þó að benda honum á Islenzkt orðtakasafn eftir Halldór Halldórsson. Þar segir á bls. 143: „Vaxa fiskur um hrygg” eflast að völdum, áhrifum o.s.frv.”. Orðtakið er kunnugt frá 18. öld... Frá sömu öld eru einn- ig dæmi um afbrígðin: aukast | fiskur um hrygg og vaxa börkur um hrygg.” Banka- sameining á Akureyri Þau stórmerki era í deigl- unni að þrír bankar sameinist með fleirum um byggingu stórhýsis á auðu lóðinni við Geislagötu á Akureyri, næst Ráðhústorgi. Bæjarráð hefur samþykkt að gefa ríkissjóði (bæjarfógeta), verkalýös- félögunum, KEA, Alþýðu- bankanum, Búnaðarbankan- um og Iðnaðarbankanum sameiginlega kost á að bygg ja á lóðinni. Ekki veit ég hvað KEA ætl- ar að brambolta með, en beinast liggur við að hafa þaraa innlánsdeildina og þar með fjórðu peningastofnun- ina. Það verður gaman „að fara i bankann” i höfuðstað Norðurlands þegar nýja hús- ið verður komið i not. Þá geta menn valið sér góða gang- stéttarhellu á Ráðhústorginu og hoppað inn í einhvera af bönkunum fimm við torgið, innlánsdeild KEA eða annan af sparisjóðunum tveim. Alla vega verður nóg af peningum viö þetta merkilega torg. Annars þyrfti varla að um- kringja það með átta um- svifamiklum peningastofnun- um. Höfðingjar í boði þjóðarinnar Ingiríður, fyrram Dana- drottning, var hér á ferð á dögunum í boði forseta og þjóðarinnar. Varð nokkurt tUstand af því, eins og siða- reglur gera ráð fyrir. Þegar drottningin var ferj- uð yfir hafið tU íslands, urðu fjórir farþegar með sömu Flugleiðavél of seinir um borð og var búið að loka á eftir drottningu, þegar þá bar að. Ekki kom tU mála að opna á ný og lengdist því ferð fjórmenninganna tU næstu nætur. Dvöldu þeir þangað tU áfram í kóngsins Kaupmannahöfn i boði flug- félagsins, en fengu síðan næturferð heim. Á þeysu um landið fylgd- ust fjölmiðlar með, ýmist úr fjaríægð eða nálægð. Að minnsta kosti á Austfjörðum komst Morgunblaðið í návigi við drottningu, þar sem gest- gjafar tóku í senn á móti hennar hátign Ingiríði og Elinu Pálmadóttur blaða- manni, sem þangað kom einnig í boði þjóðarinnar, á öðrum lögreglubUnum, sem fylgdi drottningu. Chester- field fékk uppreisn Vestmannaeyingar, sem era gestgjafar af Guðs náð, bjuggu sig að vanda vel und- ir móttökur þegar von var á Ingiríði drottningu i síðustu viku. Meðal þess sem þeir höfðu spurair af i háttum gestsins var að drottningin notaði vindlinga. Var auðvit- að ákveðið að hafa slika vindlinga sem hún vildi á boðstólum og enga haUærís- vindlinga. Nú brá hins vegar svo við að uppáhald drottningarinnar, Chester- field, fannst ekki i Eyjum. Eftir fyrirspurair í landi fannst búð i höfuðborginni, þar sem gjaraan eru boðnar sjaldgæfar tóbakstegundir. En þar sem skammur timi var til stefnu var flugvél mönnuð og send eftir nokkr- um pökkum. Má nærri geta að ekki hafa áður verið reyktir dýrari vindlingar en Chesterfield i veizlu Eyja- manna með fyrrverandi Danadrottningu. Umsjón: Herbert Guðmundsson Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Britania Hospital: Ný kvikmynd frá Lindsay Anderson eftír langt hlé Það vekur ætíð athygli þegar Lindsay Anderson sendir frá sér nýja kikvmynd, enda einn vandvirkasti og merkilegasti leikstjóri sem Bret- ar eiga í dag. Þessa dagana er verið aö frumsýna í London nýjustu mynd hans: Britania Hospital. Myndin er snörp ádeila á brezkt samfélag nútímans. Tilgangslaust líf Bretans, þar sem yfirborðsmennsk- an og heimskan eru í hávegum höfð, er dregið sundur og saman í háði. Bretinn setur markið hátt í heimi, semsiglir hraðbyri niður á við. Britannia Hospital er fyrsta mynd Andersons síðan 0, Lucky Man, sem hann gerði á sjöunda áratugnum. Anderson er enn í þessari mynd jafn óvæginn og gagnrýninn á lífið og tilveruna og hann var í If.. . fyrir næstum fimmtán árum, þar sem skólakerfið var skotmarkið. I samvinnu við David Sherwin, sem skrifaði líka handrítin af tveim- ur fyrrnefndum myndum hans, tekst þeim félögum vel upp. Á bráð- skemmtilegan hátt er dregin upp mynd af einum degi á Brítannia Hospital og það er enginn venjulegur dagur, því að drottningarinnar er von í heimsókn. Ringulreiðin og stjómleysið er í algleymi. Allir vilja sinn hlut stærstan. Það er Malcolm McDowell sem leikur aöalhlutverkið, Mick Travers, en það var einmitt nafn söguhetjunn- ar bæði í If.. . og O, Lucky Man og hafa sumir viljað kalla Britannia Hospital síðustu mynd í „þríleik” Andersons. HK. Lindsay Anderson, fáar en eftirtekt- Malcolm McDowell leikur aðalblutverkið í Britania Hospital, en hann lék arverðar kvikmyndir. einnig aðalhlutverk i myndum Anderson U.. . og O Lucky Man. TIL SÖLU Nýlegur 17 feta Shetland-bátur með Chrysler 55 LP mótor. Einnig fylgir kerra meö dráttarspili og vindblæja meö gluggum. Uppl. í símum: 84863 - 39015 og 81780. Þjónustuverkstæðið verður ^ lokað vegna sumarleyfa frá 19. júlí til 3. ágúst. KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 TIL SÖLU O/dsmobile I Cutlas Brougham ÁRG. 1980, EIIMIM SÁ GLÆSILEGASTI OG MEÐ ÖLLU. 8 cyl. (302 cub) meö FM, EM stereó, útvarps- og kassettutæki, rafdrifin sæti, upphalarar, út- varpsstöng, rafmagnslæsingar og fleira. Ekinn 13.400 mílur. Upplýsingar í síma 25101 milli kl. 9 og 6 og 39931 eftir kl. 7.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.